08.04.1924
Neðri deild: 45. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í C-deild Alþingistíðinda. (2527)

58. mál, stofnun háskóla

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Mentmn. hefir sent frá sjer nál. um þetta mál, og þarf jeg ekki miklu við að bæta það, sem þar er tekið fram. Jeg vil þó aðeins drepa á helstu atriðin í áliti hennar.

Jeg skal þá fyrst taka það fram, að nefndin er mótfallin því, að laga- og heimspekideildin verði sameinaðar, enda býst hún við, að þetta verði ekki að neinu ágreiningsefni, þar sem flm. lýsti yfir því við 1. umr., að sjer væri þetta atriði ekki fast í hendi.

Að því er snertir þá breytingu, að biskup komi í stað eins prófessors við guðfræðideildina, þá gerir nefndin þá breytingu, að hann komi í stað dósentsins við deildina. Þykir nefndinni eðlilegast, að 2 prófessorar sjeu við guðfræðideildina eins og við hinar deildirnar, enda er naumast að búast við því, að biskup hafi á hendi fulla kenslu á við prófessora deildarinnar. Það má að vísu segja, að deildin sje skert með þessu, en það er þó ekki svo mikið, að það sje nein frágangssök. Að því er snertir þá mótbáru, sem fram hefir komið, að óviðeigandi sje, að biskup hafi slíkt starf á hendi, þá er ekki það að óttast. Því verður ekki móti mælt, að biskup hefir nægan tíma til þessa. Alþingi hefir upp á síðkastið tekið af honum allmörg störf, og er þá rjettmætt, að honum sje bætt upp með þessu. Þetta er og í fullu samræmi við starfsemi biskups, enda er það algengt erlendis, að prófessorar hafi jafnframt á hendi prestsstörf, og þykir vel fara saman. Veit jeg t. d. til þess, að prófessorarnir í guðfræði við Uppsalaháskólann hafa til þessa, auk kenslunnar, þjónað sjerstökum söfnuðum. Var þetta ekki talið koma í bága við kenningarfrelsi deildarinnar, og því síður myndi það vera gert a voru landi, því íslenska kirkjan er frjálslyndasta kirkjan á Norðurlöndum. Hjer er kenningarfrelsi presta ekki minna en prófessora háskólans. Það er engum blöðum um það að fletta, að þetta gæti orðið til gagns bæði fyrir kirkjuna og guðfræðideildina. Eins og menn vita er hlutverk deildarinnar ekki einasta að veita mönnum guðfræðilega mentun, heldur og líka að búa þá undir prestsstarfið. Það er því síður en svo, að nokkuð sje á móti því, að deildin standi í nánu sambandi við kirkjuna. Má segja, að þetta yrði til þess að gera guðfræðideildina lítið eitt íhaldsamari, en biskupinn aftur á móti frjálslyndari, og myndi hvorttveggja til góðs leiða.

Það hefir verið bent á það, að þessi breyting sje ekki í samræmi við það ákvæði í gildandi lögum, að biskup skuli kosinn af öllum prestum landsins. Mjer er nú í rauninni alls ekki fast í hendi um þau lög, en þó er engin ástæða til að breyta þeim vegna þessa. Ef biskupskosningin hepnast og maður er kosinn, sem er vaxinn því veglega starfi, þá er hann um leið vaxinn því að veita kenslu við háskólann sem aukakennari. En hinsvegar ef aukakenslan við guðfræðisdeildina mistækist með þessu vali, þá væri það samt lítils virði hjá hinu, að mistekist hefði að velja mann í biskupssætið, en sú hætta er jafnt opin, þótt þetta frv. verði ekki samþ.

Þá kem jeg að því atriði frv., að lagadeildin verði svift einum prófessor, og þeirri brtt. nefndarinnar, að í stað hans komi lögákveðinn aukakennari. Í frv. var gert ráð fyrir, að bætt yrði við aukakennara, ef þörf krefði, en nefndin lítur svo á, að sú þörf sje þegar fyrirhendi, og vill því fastákveða þessa aukakenslu í lögunum. Það virðist ekki vera nein ástæða til að hafa fleiri prófessora í lagadeildinni en hinum, enda geri jeg ráð fyrir, að harðfylgi góðra manna hafi fremur gert það að verkum, að prófessorarnir voru upphaflega ákveðnir 3, heldur en að bein þörf hafi verið fyrir fleiri prófessora í þeirri deild en öðrum. Er sumum nefndarmönnum því ekkert sárt um að svifta lagadeildina þessum eina prófessor, þar sem auðsætt er, að hægt er að fá góðan mann til að gegna aukakenslu við deildina. Hjer er gott val ungra lögfræðinga, sem myndu telja sjer hag og heiður í því að fá slíkan starfa, auk þess sem þar væri að fá besta undirbúninginn fyrir þá menn, sem hefðu í huga að verða prófessorar seinna meir.

Þá vil jeg minnast á þá brtt. nefndarinnar í að í stað þess að einn prófessor og einn dósent sjeu í íslenskum fræðum, þá komi tveir prófessorar, svo sem áður hefir verið. Nefndin er þó ekki sammála í þessu efni, því 2 nefndarmenn hallast fremur að ákvæði frv. En sá hlutinn, sem jeg fylgi, leggur ríka áherslu á, að íslensk fræði verði ekki skert frekar en búið er að gera með því að fella niður aukakennarann, eins og gert var við 3. umr. fjárlaganna.

Það gegnir nokkuð öðru máli um íslensk fræði en önnur fræði við háskóla vorn. Það má með miklum rjetti segja um lögfræði, læknisfræði og guðfræði, að það sjeu aðeins kenslugreinir, en hin íslensku fræði aftur á móti vísindagrein við okkar háskóla. Það eru ekki gerðar þær kröfur til háskólakennaranna í fyrnefndum greinum, að þeir sjeu sjálfstæðir vísindamenn, heldur aðeins, að þeir geti miðlað íslenskum embættismannaefnum þeim fróðleik og kunnáttu, sem þeim er nauðsynleg, hverjum í sínu starfi. En aftur á móti er sú krafa gerð til háskólakennarans í íslenskum fræðum, að hann standi í broddi fylkingar þeirra vísindamanna, sem íslensku og norræna fræði stunda. Það á að vera okkur metnaðarsök, að háskóli Íslands leggi hið besta til vísindanna á þessu sviði. Við verðum að gera okkur ljósa grein fyrir því, í hvaða efni við getum staðið öðrum þjóðum á sporði, þrátt fyrir fátækt og fólksfæð, og hvar okkur þýðir að keppa við stærri þjóðir og auðugri. Það er augljóst, að í ýmsum fræðigreinum þýðir ekkert fyrir okkur að keppa við auðugri þjóðir. En í norrænum fræðum getum við staðið öllum þjóðum á sporði. Þessvegna leggur meirihl. ríka áherslu á það, að tveir verði prófessorar við háskólann í íslenskri málfræði, sögu og bókmentasögu, svo sem nú er. Báðir mennirnir, sem nú skipa þessar stöður, eru hinir mætustu menn, og mun enginn vilja lækka þá, og það er okkar von, að þó umskifti verði, þá skipi altaf ágætir menn þessar stöður.

Þá kem jeg að þeim tveim atriðum, sem hingað til hafa valdið mestri deilu. En það er kennarastóll í klassískum fræðum og prófessorsembættið í hagnýtri sálarfræði. Þessi tvö embætti eru svo þrautrædd, hjer innan þings, að ekki ætti að þurfa að fara um þau mörgum orðum við þessa umræðu. Það eitt er eftir, að skera úr því með atkvæðum, hvaða leið menn vilji fara til þess að skipa þessum umþráttuðu embættum. Tillögur nefndarinnar eru hjer hinar sömu og till. hv. flm. (JÞ): að kennaranum í klassiskum fræðum sje haldið, þangað til hann flytur úr embættinu eða fellur frá. Jeg vil taka það skýrt fram, að nefndin ætlast alls ekki til þess, að sá maður, sem nú skipar embættið, sje fluttur í nokkra aðra stöðu. Hún skilur þetta ákvæði svo, að hjer sje gerð samskonar skipun eins og veiting embættisins væri bundin við nafn Bjarna Jónssonar. Þegar embættið fellur niður að honum látnum, má ráðstafa kenslu þeirri, sem hann hefir með höndum, á annan hátt. Sá maður, sem hjer ræðir um, hefir verið svo þarfur þjóðinni í ýmsum málum, þó rás viðburðanna snúist nú í ýmsu móti hans hugsjónum, að nefndin vill, að þingið sýni honum þá nærgætni, sem skylt er og þjóðin vafalaust heimtar.

Hvað snertir hitt embættið, þá er nefndin sammála um, að það sje ekki nauðsynlegt. Og með því, að í því situr maður, svo hæfur til margvíslegra starfa, sem þjóðin þarf að láta vinna, og hann mundi fá betur notið vinnukrafta við, þá er það vilji nefndarinnar, að stjórnin fari þess á leit við hann, að hann flytjist í annað embætti jafntekjumikið og virðulegt. Það er alkunnugt, að þessi maður er bókfróður og í tölu bestu rithöfunda þjóðarinnar, og því vel farið, að hann tæki við einhverjum þeim störfum, sem skyldari væri bókmentunum en þau, sem hann gegnir nú.

Jeg fer svo ekki fleiri orðum um þetta að sinni, enda hygg jeg, að málið sje þegar svo þrautrætt, að ekki sje annað eftir en atkvæðagreiðslan. Jeg skal að síðustu geta þess, að einstakir nefndarmenn hafa sjerstöðu í einstöku greinum, og munu þeir skýra frá afstöðu sinni, hver fyrir sig.