29.02.1924
Neðri deild: 11. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1076 í C-deild Alþingistíðinda. (2556)

35. mál, afnám kennaraembættis í hagnýtri sálfræði

Bjarni Jónsson:

Jeg er svo vel settur nú, að jeg þarf fáu að svara viðvíkjandi efninu sjálfu, og þær fáu efnisaths., sem jeg þarf að gera, get jeg átt tal um við þann hv. þm., sem mjer er ljúfast að ræða við þá hlið málsins; jeg á þar við hv. 2. þm. Eyf. (BSt). Hann sagði, að þetta embætti hefði verið stofnað með tilliti til þessa manns. Þetta er nákvæmlega rjett. Embættið var stofnað í því skyni, að þessi maður færi ekki af landi brott og til Danmerkur, og með þetta fyrir augum var það einmitt bundið við hans nafn. Það var einmitt stofnað sökum þess, að Alþingi skildi þá, að þegar maður hefir varið helming æfi sinnar til þess að búa sig undir ákveðið lífsstarf, þá er það enginn sparnaður að láta þessa krafta hans fara forgörðum eða falla í skaut öðrum þjóðum. Því hefir þessi síður verið tekinn upp, eins og rjett er af svo fátækri þjóð, að ríkissjóður stuðli að því, að þessir vísindamenn, sem til eru á hverjum tíma, fái tækifæri til að starfa að áhugamáhun sínum, án þess að stofnuð sjeu að staðaldri sjerstök embætti. Jeg skal t. d. taka Ólaf Daníelsson. Það hefði átt að fara þannig að með hann. Hann er maður með sjerstaklega mikla hæfileika á sínu sviði, sem koma þó að litlum notum, sökum þess, að mestur hluti starfsorku hans fer til tímakenslu. Við eigum völ á nægum mönnum til að annast þá kenslu svo í lagi sje, en hitt er eigi jafnvíst, að við á hverjum mannsaldri eigum völ á slíkum stærðfræðingi. En það er svo oft um þessa þjóð sem um Gyðingana forðum, að hún þekkir ekki sinn vitjunartíma. En það verð jeg að taka fram, að stofnun þessa embættis í hagnýtri sálarfræði var til lofs því þingi, sem það gerði.

Háttv. 2. þm. Eyf. hjelt því fram, að háskólinn hjer væri stofnaður með þeim hætti, að sameinaðir hefðu verið embættaskólarnir og svo bætt við heimspekisdeildinni. Leit hann svo á, að embættadeildirnar væru höfuðatriðin. Það er að vísu gott, en því má þó ekki gleyma, að heimspekisdeildinni var ætlað að bera uppi nafn Jóns Sigurðssonar, og má því eigi afrækja hana með öllu. Það var og ávalt tilætlunin, bæði hjá mjer og mörgum öðrum, að háskóli landsins yrði annað meira en tómur embættaskóli. Fyrir okkur vakti það, að hann yrði jafnframt vísindastofnun. Og þarna bauðst tækifæri að ná í færan vísindamann í þessari grein, og þingið skildi það og bætti honum við deildina.

Jeg rakti það síðast, að ekki væri hægt að segja þeim manni, sem er vel lærður heimspekingur, að hætta við sín vísindi eða leggja hann upp í bókaskáp. Auk þess veit jeg ekki til þess, að það embætti sje nú laust, sem menn eru að ræða um. Er undarlegt að ætla sjer að fara með gamla og gegna embættismenn landsins eins og afsláttarhross og ráðstafa embættum þeirra á þennan hátt, án þess þeim hafi dottið í hug að segja af sjer. Annars er hitt aðalatriðið, að þessum manni hefir verið lofað þessu embætti, og því má ekki rifta.

Jeg skal ekki vefengja, að hv. 2. þm. Eyf. kunni vel að fara með orf og ljá. En jeg býst við, að honum sje eins og mjer kunnugt um fjölda manna, sem aldrei hafa lært að búa í hendurnar á sjer. Er ýmist orf eða ljár af skakkri lengd eða of stutt eða langt á milli hæla. Þótt nú G. F. gerði eigi annað en mæla orf og ljá hv. 2. þm. Eyf. — sem jeg samkvæmt orðum hv. þm. geri ráð fyrir, að sjeu í besta lagi — og hjeldi síðan fyrirlestra og brýndi fyrir mönnum að fara eins að og hann, þá væri það eitt afarmikils virði. Því að það veltur ekki á neinu, hver fyrst finnur bestu aðferðina, en á hinu ríður mikið að breiða út þekkinguna á henni, svo að sem flestir fái notið hennar. Og það er einmitt þessi hliðin á starfi G. F., sem gerir það svo mikilsvert, að hann vekur meir en nokkur annar almennan áhuga á verklægni.

Hugsum okkur, að einhver hefði stungið upp á því í tíð Torfa í Ólafsdal, að hann yrði settur á laun í því skyni að hann reyndi að bæta vinnuaðferðir. Það hefði sjálfsagt þótt nokkuð mikil fjarstæða þá. En ætli það myndi ekki kveða við annan tón nú, er menn hafa sjeð, hvaða gagn ljáblöðin hans Torfa hafa gert íslenskum bændum? En það er hjer sem víða, að menn eiga erfitt með að meta rjett störf sinna samtíðarmanna. — Jeg tók þetta sem dæmi til þess að sýna, að það er oft lítið, sem getur gert ómetanlegt gagn heilum atvinnuvegi.

Að því er snertir sjávarútveginn, þá skal jeg geta þess, að eitt fjelag hjer hefir nú ráðist í að byggja allstóra veiðistöð eftir fyrirmælum G. F. Ef hún reynist vel þá kann það að koma upp úr kafinu, að hann hafi þar komið fram með hlut á borð við ljáina hans Torfa. Hver treystist yfirleitt til að segja um eitthvað, sem nýtt er og óreynt, að þetta verði aldrei barn í brók? Hversvegna á endilega að slá niður alla möguleika, áður en þeir eru byrjaðir? Jú, nú hefir hv. 2. þm. Árn. (JörB) svarað á þann hátt, að það sje gert til að spara. Hann er kominn að þeirri undarlegu niðurstöðu, að landið sje of fátækt til þess að það megi vinna sjer gagn. Þarna er fjármálamaður! Hann furðaði sig á því, að jeg hefði nú í þriðja sinn sagt æfisögu þessa manns, og kvað það ekki koma málinu við. Jeg talaði bara um manninn, sem á að slátra, og væri undarlegt, ef hann kæmi ekkert málinu við. Hann kvartaði um það, hve harðorður jeg væri, og vildi ekki láta mig tala svo hastarlega til hv. 2. þm. Árn. En það er ekki jeg, sem dæmi hv. þm. það eru verk hans, sem dæma hann svo hart, að hann mun hjer eftir aldrei reisa höfuð sitt á Alþingi.

Já, svo kom rothöggið. Háttv. þm. (JörB) sagði, að Guðm. Finnbogason hefði fengist við alþýðufræðslu; mæli jeg ekki gegn því, en hinsvegar get jeg ekki fallist á þá rökskýring, að þjóðin geti tekið embættismenn sína hvenær sem er úr stöðu sinni og skipað þeim að vinna hvaða verk sem er. (JörB: Hafði hann ekki búið sig undir fræðslumálastarf?) Hann bjó sig undir að verða heimspekingur, en ekki það, að búa til barnaskóla, og það er honum ekki lagið. Hefir hann gert stórar yfirsjónir í mentamálatillögum sínum, þótt hann sje ágætur heimspekingur. Já, jeg get meira að segja sagt: eins vel og mjer er við hann sem heimspeking, eins illa er mjer við hann í þeim málum.

Jeg vil að hver maður fái að njóta hæfileika sinna; jeg vil ekki, að sjómaðurinn sje settur til að temja hesta, en landkrabbinn látinn róa á sjó.

Háttv. þm. (JörB) telur það ekki svik að ganga á orð sín, finst ekkert að því, þótt Alþingi hafi sagt við einhvern mann: Jeg hefi með lögum sett á stofn embætti við háskóla minn, sem þú átt að gegna hjeðan í frá, en komi svo eftir 1–2 ár og segi við þann sama mann: Farðu, farðu, farðu, jeg vil ekki nýta þig til neins! Þetta er ekki orðháksháttur? En í Dölunum gæti þessi háttv. þm. (JörB) heyrt vísuna:

Hafðu ekki á þjer heldra snið

höfðingja, sem brosa,

en eru svona aftan við

æru manns að tosa.

Svo þykjast menn gera velgerningar, við að bjóða þessum mönnum, sem reka á, hitt og þetta, eins og frv. nokkur, sem komið hafa fram í háttv. Ed., sýna, t. d. það, að gera Guðm. Finnbogason að forstöðumanni landsbókasafnsins, en láta hann þó jafnframt halda áfram kennarastarfi sínu. Mig undrar mest, að þeir skuli ekki gera hann að kennara við sjómannaskólann, og láta hann um leið vera formann á nokkrum fiskibátum.

Nú er hin brýnasta þörf á afarduglegum manni við landsbókasafnið, því sakir þess, hve menn hafa verið bráðir á að spara þar alt mannahald, hefir safnast fyrir ógrynni af bókum, sem marga menn verður að fá til að koma lagi á. Nú vilja menn taka heimspeking og segja við hann: Komdu nú öllu í lag. Nei, þetta er sami sparnaðurinn og æfinlega, sá, að spara krónuna og kasta milljónunum. Það er sú almenna fjárhagsspeki hjer. En háttv. þm. heyra bergmálið af sínum eigin sparnaðarræðum á þingmálafundunum, og þora því ekki annað en gera einhvern skollann, hversu vitlaust sem það er. — Háttv. þm. (JörB) hjelt langa ræðu um uppeldi mentamanns, fanst það liggja í augum uppi, að hann gæti tekið við öðru embætti á efri árum. Reynslan hefir sýnt, hversu vel það gefst. Eins þótti honum skrítið, að menn gætu ekki haft ofan af fyrir sjer, þó þeim væri velt úr embætti á gamals aldri. Sannleikurinn er sá, að flestir gætu valið arðvænlegri stöðu, því þjóðin hefir alla tíð svelt þjóna sína, og varla er sá embættismaður til, sem ekki hefir dáið gjaldþrota.

Honum láðist aftur á móti að geta þess, sparnaðarmanninum, að þjóð og þing eyðileggur allan þann styrk, sem það hefir látið í tje til þess að menta þessa menn, ef það setur þá að loknu námi til að rækja eitthvað annað en þeir lærðu til. Til hvers er t. d. að láta læknanema njóta gjafkenslu, ef svo þingið setur hann að náminu loknu við bátasmíði. Ef það segir við hann fullnuma: Farðu, góði minn, og smíða báta! Það er tískan.

Þá er eitt til marks um sannleiksást háttv. flm.; það var reikningur hans yfir nemendafjölda heimspekisdeildarinnar. (JörB: Hann var eftir árbókunum.) Jeg vissi það vel, hve þekking hans ristir djúpt, því í árbókunum er ekki talinn nema örlítill hluti af nemendatölunni. Hann veit ekki einusinni, hvað forspjallsvísindi er. Í þeim fræðum hafa 158 tekið próf. Ennfremur heyrir grískan mín til heimspekisdeildarinnar. Hana þekkir hann ekki, veit ekki, að menn úr laga- og málfræðisdeild hafa sótt tíma í henni, auk guðfræðinganna. Í fyrstu var ekkert próf í henni lögskipað, og þeir, er þá lögðu stund á hana, eru því ekki taldir með, en 27 hafa tekið próf í grein þeirri. Ekki mintist hann á almennu fyrirlestrana, sem Guðmundur Finnbogason heldur, ekki síður en hinn heimspekiskennarinn, fyrir fólkið. Hafa þeir þó stundum þótt dágóðir.

Jeg ætla að minnast á það, áður en jeg gleymi því, að háttv. þm. (JörB) talaði fagurt um það ódæði, að jeg hefði neitað manni nokkrum um eftirlaun. Satt var það, en sjaldan hefir mjer verið brigslað um að vera naumur á fje, en gott var, að það kom einusinni fram líka. Sannleikurinn var sá, að jeg var ekki sannfærður um sakleysi mannsins í máli hans, og vildi því ekki með atkvæði mínu neyða stjórnina til að gjalda honum laun, væri hann þeirra ekki verður. Fús hefði jeg greitt atkv. með styrk handa honum.

Undarlegt er það með sparnaðar- og bjargráðamenn þingsins. Þeir sjá ekki nema þennan eina mann. Þeir koma ekki einusinni auga á heila skóla. Því koma þeir ekki fram með frv. í þá átt að leggja niður kennaraskólann, já, alla barnaskóla og hvern kennara. Því ekki að slátra þeim, þó þeir hafi búið sig undir sjerstakt starf eins og þessi vísindamaður. Það munaði um þann sparnað. Og háttv. flm. (JörB) gæti sjálfsagt fært rök fyrir því, hversu barnafræðslan er ljeleg. Hann þekkir hana.

Háttv. þm. (JörB) talaði um maurflugur og var mjög djúpskygn á þeirra hætti. Hann sagði, að embættismenn háskólans og þessa lands þyrftu eins og þær að láta færa sjer matinn. Sjálfur er hann eitt af grófgerðum vinnudýrum þeirrar stjettar.

En hvað sem fyrverandi „heimastjórnarmaður“, hvað sem fyrverandi sjálfstæðismaður, hvað sem fyrverandi jafnaðarmaður og hvað sem núverandi ótímamaður, háttv. 2. þm. Árn. (JörB), segir, kemst hann ekki út úr því, að þetta frv. er af fávisku og illvilja gert. Jeg vil nú vera honum svo velviljaður að ætla, að 9/10 sjeu af fávisku, en 1/10 af illvilja — getur hann svo reiknað, hvað eftir er.