29.02.1924
Neðri deild: 11. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í C-deild Alþingistíðinda. (2558)

35. mál, afnám kennaraembættis í hagnýtri sálfræði

Bjarni Jónsson:

Mjer þótti hv. þm. (JörB) standa sig vel að flytja engar harmatölur eða kjökuryrði. En býst við, að hv. þdm. þyki nú nóg komið. Vildi jeg óska eftir nafnakalli, þegar frv. verður nú borið upp, hvort það eigi að ganga til 2. umr. Jeg vildi óska þess, að það yrði þegar felt, svo enginn blettur yrði á þinginu, og það, sem þegar er gert, gæti gleymst.