01.03.1924
Neðri deild: 12. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1108 í C-deild Alþingistíðinda. (2576)

42. mál, einkasala á áfengi

Flm. (Sveinn Ólafsson):

Hv. 1. þm. Skagf. (MG) ljet þau orð falla, að mjer hefði verið að kenna undanþága álagningar á áfengi til lyfja á þingi 1921. En jeg held, að ef einhverjum ætti að kenna um hana, þá sje það allsherjarnefndir þess þings. En þar átti jeg þá ekki sæti. En eftir þeim upplýsingum, sem nefndunum voru gefnar af lyfjafróðum mönnum og fulltrúum lyfjabúðanna hjer, munu þær hafa horfið að þessu ráði að hafa áfengi til lyfja undanþegið álagningu. Á þetta fjelst jeg, en vissulega var ekki meiningin, að áfengi til iðnaðar slyppi við álagningu, nje það áfengi, sem hefir — því miður — lent á óleyfilegum stöðum og orðið lyfjabúðum og læknunum sumum að fjeþúfu. Það er framkvæmd þessarar undanþágu, sem hneyksli hefir valdið, en ekki ákvæðið sjálft.

Jeg tek ekki nærri mjer að játa, að jeg hefi skift um skoðun í þessu atriði málsins frá 1921, af því að jeg sje, að framkvæmd þess hefir leitt til misbrúkunar og tjóns fyrir ríkissjóð. Af reynslunni verðum vjer allir að læra, og það er ekkert sjerstaklegt fyrir mig.

Þessvegna er það líka út í hött talað hjá hv. 1. þm. Skagf., að skaði ríkissjóðs á sölu vínandans til lyfjabúða og lækna brenni á baki mjer. Sök á þeim skaða, ef um sök gæti verið að ræða, hvílir vitanlega á þeim þingmeirihl., sem lögin samþykti 1921, og fyrst og fremst á allsherjarnefndunum, sem rjeðu meðferðinni að lokum.

Fyrir því er þetta olnbogaskot hv. 1. þm. Skagf. ófyrirsynju og óþarft.

Háttv. sami þm. kvartar yfir því, að við flm. hefðum ekki reiknað út upphæðir þær, sem mundu sparast við þetta frv., ef það yrði að lögum. Jeg tók það fram, að okkur hefði vantað gögn til þess, og því ljetum við okkur nægja að benda á helstu sparnaðaratriði. Í greinargerð frv. eru líkur leiddar að því, að sparast geti 1/3 mannahalds beggja einkasölugreina, og er þar því nokkur áætlun um sparnaðinn. Hinsvegar brast okkur og brestur upplýsingar um það, hve mikið áfengi er afhent læknum og lyfjabúðum án álagningar og getum því ekki áætlað að svo komnu, hve miklu nemur álagning þess áfengis, ef upp verður tekin. En með vissu vitum við þó, að hjer er að ræða um talsverða upphæð, og jafnvel alvarlega misbrúkun á lyfjaáfengi.

Upplýsingar um þetta o. fl., sem máli skiftir, hlýtur væntanleg nefnd að útvega, og má álítast hennar verkefni.