01.03.1924
Neðri deild: 12. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1114 í C-deild Alþingistíðinda. (2580)
42. mál, einkasala á áfengi
Magnús Guðmundsson:
Mjer skildist það á háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ), að hann teldi það olnbogaskot til sín, að jeg benti á skoðanaskifti hans síðan á þinginu 1921. Jeg gerði það alls ekki í þeim tilgangi, að hann hefði óvirðing af því. Það gleður mig einmitt, að hann er kominn á mína skoðun í þessu máli síðan, og jeg virði hann að meira fyrir, enda hefir hann og gengist mannlega við því. Háttv. þm. (SvÓ) var frsm. nefndar þeirrar, er um þetta mál fjallaði á því þingi, og það var fjárhagsnefnd en ekki allsherjarnefnd, eins og hann ljet í veðri vaka. Nú sjer hann, að það munar engu á lyfjaversluninni, þó ríkissjóður taki ágóðann af vínandanum, en fyrrum taldi hann ósæmilegt að ríkissjóður græddi á vínanda, þar sem hjer væri bannland. Hefir honum því líka snúist hugur síðan í þessu efni. (SvÓ: Já, óviðeigandi að græða á sjúkingum!) Það kemur alls ekki sjúklingum við, hvað sje óviðeigandi í bannlandi eða ekki. Jeg segi þetta alls ekki til að ámæla hv. 1. þm. S.-M., því nú erum við sammála.
Viðvíkjandi orðum hv. 1. þm. Árn. (MT) lýsi jeg mig samþykkan honum í því, að bæði seðlaútgáfan og drengskaparvottorðin sjeu óþörf. Aftur á móti get jeg ekki sagt hið sama um skoðun þessa hv. þm. á því, að lögin frá 1899 sjeu enn í fullu gildi (MT: Aldrei fallið úr gildi!), eða ekki verið feld úr gildi og nú komin á aftur. Um þetta má að vísu deila, en jeg held því fram, að þau lög hafi fallið niður með bannlögunum.