28.04.1924
Neðri deild: 57. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1133 í C-deild Alþingistíðinda. (2592)
42. mál, einkasala á áfengi
Frsm. 3. hl. (Jakob Möller):
Jeg tók ekki til athugunar till. hv. 2. hl. nefndarinnar, þar sem hv. frsm. þess hl. (JörB) hafði þá ekki gert grein fyrir till. En nú hefir hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) tekið af mjer ómakið. Jeg gat ekki fallist á till. hv. 2. hl., þar sem þær draga úr sparnaðinum með ákvæðinu um sjerstakan mann til innkaupa á vínum, lyfjum og hjúkrunargögnum. Jeg lít svo á, að verslun ríkisins með lyf og hjúkrunargögn sje ekki til neinna bóta fremur en önnur ríkisverslun, og mætti leggja hana niður. Verði frv. samþykt, hefir stjórnin heimild til þess, ef henni sýnist.
Það sem hv. frsm. 2. hl. (JörB) sagði, um að forstjóri landsverslunar hefði talið verslunina hafa húsrúm í minsta lagi, ef af sameiningu yrði, virðist benda á, að forstjórinn haldi, að allar vínbirgðirnar verði fluttar upp í landsverslun. En fólki fjölgaði aðeins við borðin á skrifstofunni, og yrði þó færra en samanlagt er nú í áfengis- og landsverslun. Gjaldkerinn yrði t. d. sá sami, yfirbókarinn sá sami o. s. frv. Held jeg líka, að forstjórinn hljóti að fara nærri um þetta, en hitt er auðvitað, að hann kærir sig ekki um að bæta á sig störfum og ábyrgð.
Hv. þm. N.-Ísf. vildi gera mikið úr áliti forstjóranna, meðan ekki hefði sannast, að þeir færu með rangt mál. En reynslan hefir einmitt sannað það, og fullkomnari sönnun en hún er alls ekki til.
Háttv. frsm. 1. hl. (ÁF) sagði, að það væri aðallega af praktiskum ástæðum, að hann væri á móti sameiningu vínverslunar ríkisins við tóbakseinkasöluna. En hverjar eru þá þessar praktisku ástæður? Núverandi forstöðumaður vínverslunarinnar er bráðum búinn að vera út þann tíma, sem hann var ráðinn til, og þessi sparnaður getur því komist í framkvæmd á næsta ári við sameiningu þessara tveggja stofnana. Menn mega sannarlega vera þakklátir fyrir að fá tækifæri til að samþykkja sparnað, sem getur komið til framkvæmda á næstu árum, hvað þá heldur strax á næsta ári. Sparnaðurinn við hæstarjett kemst alls ekki í framkvæmd á næstu árum, þó það verði samþ., og eru þó mjög margir hv. þdm. ákafir í því, að það nái að verða að lögum, vegna sparnaðarins við það. Það er meira að segja vansjeð, að sá sparnaður komist í framkvæmd á næstu 10 árum, og yfirleitt getur hvert þing ekki samþykt annan sparnað en þann, sem kemur fyrst til framkvæmda á næsta ári, en alls ekki fyrir yfirstandandi ár, vegna þess, að fjárlögin eru jafnan afgreidd fyrirfram fyrir hvert ár. (ÁF: En það verða þó að vera einhverjar vörur til, til þess að versla með). Það er gert ráð fyrir, að ekki verði heft innkaup á vínum, næstu árin að minsta kosti. Nema þessar „praktisku“ ástæður háttv. frsm. (ÁF) sjeu þær, að bíða eftir því, að samningur ríkisstjórnarinnar við forstöðumann vínverslunarinnar renni út þann 1. jan. 1925, og ráða síðan annan mann í hans stað, t. d. til 3 ára, og leyfa Alþingi þá fyrst að fara að ræða um sparnað í þessu efni? Það væri máske vit í því? Nei, einmitt þessar „praktisku“ ástæður heimta það, að þessu sje ráðstafað nú á þessu þingi, en eigi látið bíða þangað til erfiðara verður um. Núverandi forstöðumaður vínverslunarinnar verður auðvitað látinn enda út sinn samningstíma; það hefir aldrei verið ætlast til annars, en svo er spurningin, hvað þá taki við. Það er um það, sem nú skal tekin ákvörðun.
Háttv. frsm. 1. hl. (ÁF) sagði, að það væri undir öllum kringumstæðum nauðsynlegt, að sjerfræðingur veitti vínversluninni forstöðu. Hvaða sjerfræðingur í vínum var til, þegar vínverslunin var stofnuð? Eða hvaða sjerfræðingur hefir veitt tóbaksversluninni forstöðu? En nú vill einmitt svo til, að frá næstu áramótum er hægt að fá sjerfróðan mann í báðum þessum verslunargreinum til þess að veita þessum stofnunum báðum forstöðu. Það er hægt að fá mann, sem hefir til að bera sjerfræðiþekking í báðum þessum greinum, sem er margfalt sjerfróðari en báðir núverandi forstjórar, með þeirra 2 ára reynslu. Og þetta er sameinað í einum og sama manni. Mundi því eigi vera hagur í sameiningu þessara beggja ríkisstofnana? Það mælir sem sagt alt með þessari sameiningu, úr því það á að vera að því að halda þessum verslunarrekstri áfram. (ÁF: Hver segir það?) Það segir þingið, sem hefir ákveðið að halda þessum stofnunum uppi. Háttv. þm. N.-Ísf. (JAJ) var hissa á ástæðum mínum og taldist ekki skilja, hversvegna jeg væri þessari sameiningu meðmæltur, er jeg hefði sagt, að jeg mundi ekki hafa stutt hana, ef tóbakseinkasalan hefði verið lögð niður. En þetta er þó afarskiljanlegt. Hefði tóbakseinkasalan verið lögð niður, var ekkert eftir til þess að sameina vínverslunina við. Hefði þá komið til mála að sameina steinolíu- og vínverslanirnar, skal jeg játa, að jeg sá síður ástæðu til þess. En olíuverslunin er einmitt nú mjög í óvissu, hvað um hana verður, en annars útheimtist ekki verslunarþekking til þess að sjá um það fyrirtæki, sem er þrælbundið með föstum samningi. Það er verkstjórn ein og annað ekki. Verslunarstjórn kemur þar ekki til greina. En ef að ríkið á að vera að því að reka ýmiskonar verslun, er enginn vafi á því, hvernig þeim verslunarrekstri á að haga. Það á að taka sjer til fyrirmyndar verslunarrekstur einstakra manna, þau fyrirtæki, sem best er stjórnað. Jeg er ekki í vafa um það, að ef einstakur maður hefði á hendi tóbaks- og vínverslanir, mundi hann reka þær með sameiginlegri skrifstofu og forstjóra. Þessari reglu á ríkið að fylgja, ef það á annað borð vill vera að basla við þetta.