28.04.1924
Neðri deild: 57. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1141 í C-deild Alþingistíðinda. (2595)

42. mál, einkasala á áfengi

Ásgeir Ásgeirsson:

Það er nú þegar búið að taka margt af því fram, sem jeg hafði ætlað mjer að gera að umtalsefni, og get jeg því verið stuttorður. Jeg nota tækifærið til þess að láta ánægjunina í ljós við háttv. 3. þm. Reykv. (JakM) yfir því, að hann vill þó ekki leggja fje til höfuðs landsversluninni. Jeg minnist þess, að þegar hjer lá fyrir þessari hv. deild frv. um breytingu á háskólalögunum, að í nál., sem því fylgdi frá mentmn., gerði hún það að skilyrði, ef það frv. yrði samþ., að Alþingi sýndi fulla alvöru í því að spara alstaðar, sem því mætti við koma. Þá afgr. mentmn. og hv. deild það frv., án þess að taka tillit til mótmæla alls háskólans, sem eindregið var öllum breytingum á lögunum mótfallinn. Nú, þegar heyrist kurr í einhverjum verslunarstjóra ríkisins, verður eyra Alþingis einkennilega þunt, og þá vantar háttv. þm. ekki skilninginn, en þó að mótmæli komi frá háskólanum eða hæstarjetti, heyrir enginn eða skilur. Það er að vísu búið að taka þetta fram áður, en jeg endurtek þetta samt, vegna þess, að þetta er minn skilningur á þessum málum — að með samþykt breytingarinnar á háskólalögunum og ef, eins og vænta má, hið sama verður uppi með hæstarjett, hafi Alþingi skuldbundið sig til þess að samþykkja þetta frv., eða að minsta kosti þessi háttv. þingdeild. Slíkur sparnaður og sá, sem hjer um ræðir, á ávalt að ganga fyrir. Á þessu á að byrja undan öllu öðru. Skrifstofukostnaður ríkisstofnana hefir tútnað svo út, að undrun sætir, án þess að nauðsyn sjáist til þess, og getur því þessi sparnaður engum orðið að meini. Verði þetta frv. felt, sem jeg þó vona að ekki komi til, er það eingöngu af því, að óvinir landsverslunarinnar vilja láta hana blæða sem mestu fje sjer til ólífis, en ekki af því að hugsað sje um hag ríkissjóðs. En mjer er ánægja að sjá það, að 3. þm. Reykv. (JakM), vill ekki leggja fje til höfuðs landsversluninni.