01.05.1924
Neðri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1150 í C-deild Alþingistíðinda. (2607)

42. mál, einkasala á áfengi

Frsm. 3. hl. (Jakob Möller):

Jeg hefi hálfgert ógeð á því að vera að berjast fyrir sparnaðarráðstöfunum, eftir að hæstv. stjórn hefir notað atkvæði sin hjer í deildinni til þess að koma fram málamyndasparnaði með því að rýra hæstarjett. Jeg þykist þess líka fullviss, að hvernig sem frv. þessu reiðir af, þá muni hæstv. stjórn reyna að sjá svo um, að sparnaðurinn verði sem minstur.

Afleiðingin af því, ef þessi till. verður samþ., er sú, að sameiningin, sem frv. gerir ráð fyrir, nær þá ekki fram að ganga, og sá sparnaður, sem af því leiddi, kemst ekki á. Og þó má vafalaust ná á þennan hátt hálfu meiri sparnaði heldur en með frv. því, sem áðan var samþykt hjer, um skerðing á hæstarjetti. Og hv. þd. á það við sjálfa sig, hvort hún neitar að spara 40 þús. kr. á sameining verslana ríkisins, en samþykkir á hinn bóginn að spara 20 þús. kr. á því að rýra hæstarjett þjóðarinnar. Í till. þessari er gert ráð fyrir þeim óhugsanlega möguleika, að ekki verði kostur á manni, sem geti tekið að sjer vínverslunina. Þetta getur engum dottið í hug, að ekki muni kostur á vel færum manni til þessa starfa. Þeir eru vitanlega mýmargir til. Sem sagt: þetta tilfelli, sem till. gerir ráð fyrir, getur alls ekki komið fyrir. En þar með er líka girt fyrir þann möguleika, að sameiningin fari fram, því ef hæstv. stjórn á kost á hæfum manni til þess að veita vínversluninni forstöðu, þá m á ekki leggja hana undir landsverslun, eftir þessari till. Enda leggjast háttv. flm. hennar (ÁF og HStef) eindregið á móti sameiningunni. Þeir vilja komast hjá því, að hjer verði sparaðar 40 þús. kr. En við fyrri umr. sýndi jeg ljóslega fram á, að sparnaðurinn af frv., ef fram gengi, mundi að minsta kosti nema því. Jeg skal ekki beina þessu svo mjög til hv. 1. flm. (ÁF). En mig furðar alveg á hv. 2. flm. till. (HStef), sem er nýbúinn að greiða atkvæði með fækkun dómara í hæstarjetti í sparnaðarskyni, sem hann mun engar þakkir hljóta fyrir, hvorki í sínu kjördæmi nje annarsstaðar.