01.05.1924
Neðri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1158 í C-deild Alþingistíðinda. (2613)

42. mál, einkasala á áfengi

Sveinn Ólafsson:

Háttv. 1. þm. G.-K. (ÁF) heldur fast við það, að enginn sparnaður í mannahaldi verði við sameining þessara stofnana. Er það furðulegt, að hann skuli í sífellu berja höfðinu við steininn, þar sem hjer er um jafnaugljóst mál að ræða og þetta er.

Þessar stofnanir eru alls ekki stærri en það, að engin ástæða er til að ætla, að þær verði ekki reknar með jafnmiklum hagnaði, þó að þeim stjórni aðeins einn maður. Og jeg lít á það sem fjarstæðu eina, að ekki verði sparnaður við að hafa skrifstofuhaldið í einu lagi. En um þetta tel jeg ekki nauðsyn að eyða fleiri orðum. Hv. 3. þm. Reykv. (JakM) hefir sannað og sýnt, að hjer getur og á að vera mikil sparnaðarvon.

Jeg lít svo á, að þessar verslanir velti ekki svo miklu fje, að ofætlun sje einum manni að hafa á hendi gjaldkerastörfin. Þarna er t. d. alls ekki um meiri veltu að ræða en í bankaútibúunum, og þar nægir einn gjaldkeri. (ÁF: En menn við þessar verslanir vinna að fleiri störfum.) Já, þeir hafa auk þess mörg ritstörf og önnur verk á hendi.

Mjer virtist hv. 1. þm. G.-K. (ÁF) gera ráð fyrir, að frekar yrði misferli á rekstrinum, ef stofnanirnar væru undir hendi eins manns. Jeg veit ekki á hverju það er bygt. Nú á þessum vetri hafa orðið misferli á rekstri vínverslunarinnar, þótt sjerstök væri. Þau hafa ekki orðið nein í landsverslun, auk heldur ekki, þegar hún var miklu stærri en nú. Jeg lít svo á, að slíkt þurfi alls ekki frekar að koma fyrir, þó að af sameiningu verði. En vitanlega getur það altaf borið við, ef eftirlitsmennirnir eru ekki nægilega glöggir eða samviskusamir.

Þá er talað um það, að með þessu sje aðeins tjaldað til einnar nætur, af því að landsverslun verði bráðlega lögð niður. Þetta getur verið eðlilegt frá þeirra sjónarmiði, sem vilja landsverslunina feiga, en frá sjónarmiði okkar flm. frv. liggur það ekki fyrir. Við viljum með þessu gera reksturinn ódýrari og einfaldari, svo að ríkið geti haft af stofnununum svo mikinn arð sem efni eru til.

Annars sje jeg ekki ástæðu til að elta ólar við fullyrðingar þeirra manna, sem mæla á móti þessu frv. Þeir staðhæfa aðeins, en rökstyðja ekkert og sannfæra því engan.