01.05.1924
Neðri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1160 í C-deild Alþingistíðinda. (2614)

42. mál, einkasala á áfengi

Frsm. 3. hl. (Jakob Möller):

Jeg stend nú upp til þess að bera af mjer ákærur. Og það kynlega við þessar ákærur virðist mjer vera það, að þær koma úr tveim áttum og eru með öllu ósamhljóða.

Hv. 1. þm. N.-M. (HStef) ber mjer það á brýn, að jeg vilji landsverslun feiga, af því að jeg er meðmæltur þessu frv. Hv. 1. þm. G.-K. (ÁF) heldur því aftur á móti fram, að jeg sje með frv. af því, að jeg vilji binda stofnanirnar landinu ennþá fastar. Býst jeg ekki við, að neinn lái mjer það, þó að jeg verði að líta svo á, að þessar ákærur geti varla haft við full rök að styðjast báðar tvær. Annars vildi jeg minna hv. 1. þm. G.-K. (ÁF) á, að hann er tæplega rjetti maðurinn til þess að segja: við, sem viljum leggja niður ríkisverslun. Jeg minnist þess, að þegar atkvæðagreiðsla fór hjer fram um tóbaksverslunina, þá var hann hvergi nærri. Nú vill hann ekki á nokkurn hátt hrófla við þessum fyrirtækjum ríkisins, ekki einu sinni að þær sjeu sameinaðar og reynt að draga úr rekstrarkostnaðinum. En jeg vil minna á það, að meðan landsverslunin var umfangsmesta verslun landsins, datt engum í hug að greina hana sundur í margar verslanir eða hafa fleiri en eina skrifstofu. Mundi líka engum kaupmanni detta í hug að hafa margar skrifstofur, þó að hann verslaði með fleiri vörutegundir en eina, og síst jafnhagsýnum manni og 1. þm. G.-K. Enda vita menn það, að flestar verslanir á landi hjer versla með fleiri en eina vörutegund, en hafa hver um sig að eins eina skrifstofu.

Hv. 1. þm. N.-M. (HStef) tók sjer fyrir hendur að færa rök að því, að ekki væri unt að losna við lyfjafræðinginn. En heldur hv. þm. (HStef), að lögin um lyfjasöluna og lyfjabúðaeftirlitið sjeu það á annan veg en önnur lög, að þeim verði ekki breytt eða þau numin úr gildi? Samkv. frv., eins og það nú er, má lyfjaverslunin leggjast niður, og jeg fyrir mitt leyti sje ekkert eftir henni. Lyfjabúðaeftirlitð má fela landlækni eins og áður.

Hv. sami þm. (HStef) talaði um það, að skrifstofur stórra fyrirtækja væru tiltölulega mannfrekari en skrifstofur smærri reksturs. Þetta er hv. þm. auðvitað vorkunnarmál fyrir sakir skorts á þekkingu á þessum málum, en fjarstæða er það.

Afstöðu hv. 1. þm. G.-K. (ÁF) get jeg alls ekki skilið, og jeg veit, að fleirum en mjer hlýtur að veitast örðugt að skilja hana. Hann segist ekki vilja sameina stofnanirnar, af því að hann vilji, að þær verði sem fyrst lagðar niður. En hversvegna má ekki spara sem mest við rekstur þeirra, meðan þær eru við líði? Því að sparnaður er sameiningunni samfara; það höfum við hv. 1. þm. S.-M. glögglega og ómótmælanlega sýnt fram á.

Háttv. þm. (ÁF) talaði um það, að tóbaksverslunin mundi bráðlega lögð niður. Hvað hefir hann fyrir sjer í því? Jeg veit það eitt um það mál, að afnám hennar hefir verið felt hjer í deildinni, og jeg býst við því, að hún fái að standa óhreyfð til næstu kosninga. Það er því með öllu óhætt að gera þá stórkostlegu byltingu „um húsnæði o. fl.“, sem hann var að fjargviðrast um. En mjer dettur nú í hug, hvort það muni nú ekki einmitt vera þessi húsnæðisbylting, sem stendur mest í hv. þm.