01.05.1924
Neðri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1162 í C-deild Alþingistíðinda. (2615)
42. mál, einkasala á áfengi
Frsm. 1. hl. (Ágúst Flygenring):
Hv. 3. þm. Reykv. (JakM) þótti það undarlegt, að jeg skyldi hafa greitt atkvæði með frv. um að leggja niður tóbakseinkasöluna, en væri andvígur þessu frv. Vildi hann bera mjer á brýn, að jeg væri hlyntur landsverslun og ríkisrekstri. Þessu vísa jeg aftur heim til föðurhúsanna, því að jeg er hvenær sem er reiðubúinn að greiða atkv. með því, að þessar ríkisstofnanir verði lagðar niður. Annars hefi jeg áður tekið glögglega fram um afstöðu mína í málinu. og læt jeg vera að svara öðru í ræðu hv. þm. (JakM).