06.05.1924
Efri deild: 65. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í C-deild Alþingistíðinda. (2630)
42. mál, einkasala á áfengi
Forsætisráðherra (JM):
Eins og drepið hefir verið á hjer í deildinni, er í ráði að breyta bráðlega um fyrirkomulag áfengissölunnar. Verður smásölunni svo fyrir komið, að ríkissjóður hefir ekki minstu áhættu af smásölu. Heildsalan hefir verið rannsökuð nákvæmlega, og hefir engin óregla fundist þar. Annars er mál þetta undir rannsókn, og sje jeg því ekki ástæðu til þess að fara frekar út í það nú. (JJ: Ber ekki forstjórinn ábyrgð á rekstri verslunarinnar?) Málið er undir rannsókninni komið. Heyrist mjer ekki einusinni hv. 5. landsk. bera neina óráðvendni á forstjórann.
Viðvíkjandi innkaupum vína vil jeg geta þess, að langt er síðan farið var að kaupa þau frá Spáni.
Hvað laun forstjóra áfengisverslunarinnar snertir, minni jeg á, að maðurinn var tekinn úr ábatasamri stöðu og var ráðinn aðeins til stutts tíma.
Jeg sagði, að það yrði að láta slag standa, hvernig háttv. þm. tækist að verja aðgerðir sínar í þessu máli gagnvart kjósendum. Þetta er jeg fús til að endurtaka.