19.03.1924
Neðri deild: 27. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1180 í C-deild Alþingistíðinda. (2644)

76. mál, bann gegn áfengisauglýsingum

Flm. (Tryggvi Þórhallsson):

Mjer dettur í hug í sambandi við þetta mál, sem hjer liggur fyrir, ræða hins mikla mælskumanns, Ciceros, sem hann hjelt til varnar Sixtusi Rosciusi, manni, sem kærður var fyrir að hafa drepið föður sinn. Hann tekur það fram, að engin ákvæði um föðurmorð hefðu verið til í grískum lögum, svo ólíklegt hefði það þótt, að slíkir glæpir yrðu drýgðir.

Eitthvað hið sama mætti víst segja um áfengisauglýsingar. Það má merkilegt teljast, að þær voru ekki strax bannaðar, en það sýnir aðeins, hve sjálfsagt mönnum hefir fundist, að til þess kæmi ekki, að þær yrðu nokkurntíma birtar hjer, eftir að bannlögin voru sett. En reynslan hefir sýnt oss annað. Nú mora blöðin af áfengisauglýsingum, þær eru festar upp á götunum, og þær eru jafnvel birtar í ritum opinberra stofnana, svo sem í símaskránni.

Jeg býst ekki við að þurfa að vera margorður um þetta mál, svo ljóst er það. Aðeins eitt vil jeg þó minna á, sem er, að þó þjóðin hafi verið neydd til þess að slá af bannlöggjöf sinni í bili, til bjargar atvinnuvegum sínum, þá hefir hún ekki breytt um þá skoðun sína, að áfengisnautnin sje skaðleg, og því fordæmir siðferðismeðvitund hennar það, að liðið skuli vera að halda víni að mönnum opinberlega.

Og að lokum þetta eitt.

Ef til þess kæmi, að einhverjum dytti í hug, að þetta frv. mitt væri fram komið af öfund við þau blöð, sem hafa tekjur af áfengisauglýsingum, og þar sem mitt blað, „Tíminn“, hefir ekki haft neinar slíkar auglýsingar, þá vil jeg taka það fram, að frv. þetta er fyrst og fremst fram komið að tilhlutun Stórstúku Íslands, og í öðru lagi hefir mjer borist mikið af áfengisauglýsingum, en hefi jafnan neitað þeim um rúm.

Að síðustu vil jeg óska, að mál þetta fari til allshn.