26.02.1924
Neðri deild: 8. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1201 í C-deild Alþingistíðinda. (2665)

30. mál, þingfararkaup alþingismanna

Jakob Möller:

Einn hv. þm. mintist, í sambandi við þetta mál, á frv. mitt frá í fyrra, um launakjör starfsmanna Landsbankans. En það, sem út af því var leitt, var alt saman bygt á misskilningi á tilvitnuðum orðum. Aðalástæðan fyrir launahækkuninni var það, að ófært væri að láta menn í svona ábyrgðarmiklum stöðum sæta lægri launum en annarsstaðar gerist á viðskiftasviðinu, vegna þess, að stofnunum ríkisins væri nauðsynlegt að hafa bestu menn í þjónustu sinni, en til þess að það væri trygt, yrðu þær að greiða eins hátt kaup og annarsstaðar gerðist. Annars get jeg játað, að hvað greinargerðina fyrir frv. snertir, þá man jeg ekki, hvernig hún var orðuð; hún var samin af hv. þm. N.-Ísf.; en jeg get fullyrt, að það vakti alls ekki fyrir okkur, sem að frv. stóðum, að bankastjórarnir, ef þeir byggju við lægri launakostinn, færu að grípa til fjár bankans þessvegna, heldur einungis það, að gera bankann samkepnisfæran, hvað það snerti að fá sem besta og hæfasta menn í sína þjónustu. Fleira held jeg að ekki sje þörf að taka fram viðvíkjandi þessu atriði.