08.04.1924
Neðri deild: 45. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í C-deild Alþingistíðinda. (2672)
30. mál, þingfararkaup alþingismanna
Frsm. 2. hl. (Sveinn Ólafsson):
Það þykir engin nýlunda hjer á þingi, að nefnd klofni, og svo hefir fjhn. farið í þessu máli. En það, sem nýlundu sætir, er það að nefndin hefir klofnað þannig, að hvorki hefir getað orðið til meiri- eða minnihluti úr 7 manna nefnd. Hæstv. fjrh. (JÞ) gat þess, að nefndin hefði klofnað í 3 hluta, en hjer liggi fyrir aðeins tvö nál., sem nefnd eru nál. nr. 1 og nál. nr. 2. Fljótt á litið virðist nefndin því hafa klofnað þannig, að maður sje í hvorum nefndarhluta. (JakM: Jeg frábið mjer, að verða skift á milli nefndarhlutanna; jeg fylgi hvorugum að málum!) Það má vel vera, — en þegar borin eru saman þessi tvö nál., er það ekki ýkjamikið, sem á milli ber. Báðir nefndarhlutarnir eru sammála um það, að ekki verði skift um til bóta með því að taka upp fastákveðna ferðapeninga. fyrir þingmenn, í stað þess að greiða ferðakostnaðinn eftir reikningi. Hefir hæstv. fjrh. (JÞ) gert ljósa grein fyrir því, á hverju þetta er bygt. Báðir nefndarhlutarnir vilja því halda sjer við gildandi lög um þetta. En um dagpeninga ber nefndarhlutunum nokkuð á milli. Hvorugur getur aðhylst frv., sem ekki er von, en um kaupgjaldsupphæðina er meginsmunur lítill hjá nefndarhlutunum, og hvortveggi vilja gera nokkurn mun á dagkaupi þm. búsettra í Rvík og aðkominna. Aftur á móti kemur stefnumunurinn fram í því, að 1. nefndarhluti vill ákveða lægra kaup með dýrtíðaruppbót, en vjer hinir litlu hærra og án uppbótar. Viljum vjer líta svo á, að þetta sje bráðabirgðaráðstöfun, sem þó sje fullforsvaranleg, meðan það harðæri helst, sem nú er, og takmarka verður allar greiðslur úr ríkissjóði. Yfir höfuð lítur nefndin svo á, hvort sem miðað er við nál. nr. 1 eða nál. nr. 2, að kaupið sje það allra lægsta, sem verið geti, og því aðeins sje forsvaranlegt að láta þessi ákvæði gilda, að sparað sje á öllum sviðum, þar sem unt er að koma því við. Það er hugboð mitt, að allur almenningur muni líta svo á, að ekki sje forsvaranlegt, að þm. sitji við þau sultarlaun, að þeir verði að leggja fje með sjer sjálfir meðan þeir sitja á þingi, en nær því mun þó stappa, eftir till. vorum, og reyndar bersýnilega eftir frv., þegar litið er til utanbæjarmanna.
Hvað sem ofan á verður af þessu, hvort heldur það verður till. flm. frv. eða till. annarshvors nefndarhluta, getur varla hjá því farið, að þessu verði breytt aftur áður en langt um líður, og verður þetta þá aðeins stundarráðstöfun.
Jeg skal ekki fjölyrða frekar um það, sem nefndarhl. muni bera á milli, enda bera nál. það með sjer, en jeg verð að fara örfáum orðum um brtt. á þskj. 47, frá hv. þm. Str. (TrÞ) og mjer, er hún að því leyti samstæð stefnu háttv. flm. frv., að hún miðar við lágmark frv. um aðkomumenn, en fer mjög fjarri stefnu þeirra í öðru.
Eftir frv. kemur niðurfærsla kaupsins harðast niður á bændum og launalausum aðkomumönnum. En við teljum það ranglátt og viljum láta alla fórna nokkru hlutfallslega. Þessvegna viljum við draga enn frekar úr þingfararkaupi þeirra manna, sem sitja í opinberum embættum hjer í bænum, eða hafa styrk af opinberu fje á annan hátt, og hafa því ekki sömu þörf fyrir þennan eyðslueyri og hinir, sem lengra eru að komnir og engra annara launa njóta af opinberu fje. Þegar slík takmörkun er gerð, sem hjer er stefnt að, þá er það í alla staði óviðeigandi að láta hana koma þyngst niður á mönnum úr hinum fjarlægari hjeruðum. Og til þess að koma í veg fyrir það órjettlæti, er till. okkar hv. þm. Str. (TrÞ) fram borin.
Fleira býst jeg ekki við að þurfa að taka fram, enda geri jeg hvort sem er ráð fyrir, að hv. þm. hafi þegar ákveðið, hvernig þeir haga atkvæðum sínum í þessu máli.