08.04.1924
Neðri deild: 45. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1213 í C-deild Alþingistíðinda. (2678)

30. mál, þingfararkaup alþingismanna

Jakob Möller:

Jeg ætla ekki mikið að segja, kvaddi mjer hljóðs til að vara hv. þm. V.-Sk. (JK) við. Jeg held, að það sje hættulegt, ef hann ætlar sjer þegar að fara að lifa í þeirri gleði, sem það muni valda kjósendum, ef með þessu móti yrðu sparaðar 10–15 þús. kr. Jeg er gróflega hræddur um, að gleðin muni verða minni en hann kann að búast við. Jeg veit ekki, hvort hann hefir gert samanburð á fjárlögunum, sem nú er búið að samþ. hjer í deildinni, og fjárlögum fyrri þinga, en ef hann hefir gert það, hefir hann sjeð, að þrátt fyrir alt sparnaðarhjalið, nurlið og niðurskurðinn á því, sem helst horfir til menningar hjá þessari þjóð, þá er þó sparnaðurinn ekki nema rjett ½ milj. króna. Og, vel að merkja, sá sparnaður stafar að langmestu af því, að dýrtíðaruppbót er áætluð lægri en áður og verklegar framkvæmdir feldar niður. Hitt er alt hverfandi, sem til sparnaðar horfir, og því verður gleðin sjálfsagt ekki mikil, enda þótt þessar 10. þús. kr. væru sparaðar. Nei, þessir menn, sem fyrir kosningar voru að „rassskella“ landið fram og aftur með sífeldu sparnaðartali, en sem svo ekkert hafa sparað, verða óefað vonsviknir, þegar þeir finna kjósendur aftur og verða spurðir að: Hvað hafið þið sparað?

Jeg verð annars að segja það, að þrátt fyrir ræðu hæstv. fjrh. (JÞ) og ummæli hans um leikaraskap, vil jeg hafa leyfi til að gera mjer mínar hugmyndir um það, hvað sje leikaraskapur hjer á þingi. Jeg vil hafa leyfi til að slá því föstu, að það hafi verið leikaraskapur, hvernig farið var með stjórnarskrármálið í hv. Ed. Þar var fyrst barist af ákafa um lítilsverða breytingu (fækkun ráðherra), en þegar það nægði ekki til að eyða frv., þá var einn maður úr Íhaldsflokknum fenginn til þess að greiða atkv. með efnisbreyting, til þess síðan að hafa átyllu til þess að fella frv.

Hversvegna var þessi leikaraskapur? Af því að hv. þm. voru búnir að fara um land alt og lofa að spara þingkostnaðinn annað hvert ár. Íhaldsflokkurinn gat komið frv. í gegnum háttv. Ed. án þess að landskjörið yrði lagt niður, en hann ljet samþ. þá breytingu, til þess að frv. yrði felt. Jeg skal ekki frekar deila um, hvort þetta er leikaraskapur eða ekki. — Kjósendurnir skera úr um það.

Jeg segi ekki, að það sje af leikaraskap, að hv. þm. V.-Sk. (JK) ber þetta fram — jeg þekki hann ekki að slíku persónulega — en í heild sinni verð jeg að skoða það leikaraskap af þinginu að burðast með slíkan málamyndasparnað, sem hjer ræðir um. Jeg varð hissa, þegar hæstv. fjrh. (JÞ), sem er frsm. 1. hl., fór að gera grein fyrir því, hversvegna útgjöld ríkisins hefðu vaxið úr 2 milj. upp í 8 á fáum árum, og sagði það hafa komið smátt og smátt við samþ. svona smáupphæða. Hann veit sjálfur, að þetta er fjarri sanni. Útgjöldin hafa aukist af alt öðru, fyrir miklu stærri upphæðir. Jeg get t. d. tekið einn lið, sem eitt árið varð 400 þús. kr. hærri en áætlað var, hækkaði úr 30 þús. upp í 440 þús. (Fjrh., JÞ: Hvaða liður er það?) Þ. e. barnafræðslan. Og það eru margir liðir, sem líkt er að segja um. Hvað hafa ekki útgjöldin til læknaskipunarinnar margfaldast. Útgjöldin til prestastjettarinnar, dýrtíðaruppbótin o. s. frv. Nei, ef ekki hefði verið nema um svona smáupphæðir að ræða, þá hefðu ekki útgjöldin vaxið um 6 milj. kr. á fáum árum. Það eru ekki smáupphæðirnar, sem bjarga landinu — síður en svo.

Það var rangt hjá hæstv. fjrh. (JÞ), að þessi ákvæði um þingfararkaup stæðu ekki í neinu sambandi við launalögin. Jeg veit vel, að það eru ekki sömu lögin, en hvorttveggja voru sett á sama þingi og komu fram frá sömu nefnd, og sömu ákvæðin látin gilda um dýrtíðaruppbótina. Eru þau því í fullu samræmi, enda liggur það í hlutarins eðli, að svo á að vera.

Hvort endurskoðun launalaganna verður víðtæk eða ekki, veit jeg eigi, en hitt er mjer kunnugt um, að þegar farið er fram á að bæta eitthvað kjör þeirra, sem verst verða úti og bágast eiga, þá er þeirri endurskoðun altaf barið við, þá er ekki sparað að slá á þá strengi, að sú endurskoðun sje yfirvofandi og ekki megi bæta þessum mönnum neitt fyr en henni sje lokið, ekki taka þá út úr.

Nú — hæstv. fjrh. (JÞ) sagði, að þingfararkaupið hefði aldrei verið til þess ætlað, að hægt væri að framfleyta fjölskyldu af því. Það má vel vera, en þess verður að gæta, að þegar það var upphaflega ákveðið, þá voru alt aðrar kringumstæður en nú eru, og eftir því sem tímar hafa liðið, hefir mönnum orðið það ljóst, að ef allir menn ættu að geta notið þess rjettar, að sitja á þingi, þá væri kjörum vissra manna svo háttað, að þingfararkaup þeirra yrði að geta framfleytt fjölskyldu. Að öðrum kosti væri stórum hluta landsbúa bolað frá þingsetu. Vitanlegt er það, að flestir hv. þm. vinna að öðrum störfum, sem þeir hafa lífsuppeldi sitt af. En það er óhugsandi, að þeir gegni þeim yfir þingtímann, nema fá þá annan mann í stað sinn, og það kemur vitanlega í sama stað niður, hvort þeir þann tíma verða af launum sínum eða borga honum þau.

Svo er það, ef þingfararkaupið nú er athugað og borið saman við það, sem það var upphaflega, þegar það var 6 kr., þá er stórt álitamál, hvort það er raunverulega hærra nú. Og enginn vafi er á því, að 6 kr. þá voru meira virði en grundvallarkaupið er nú. 12 krónur jafngilda ekki 6 gullkrónum. En auk gengismunarins kemur verðfall gullsins til greina, en það nemur eins miklu og dýrtíðaruppbótin, svo sem sjá má af verðskýrslum hagstofunnar. Eða með öðrum orðum, dýrtíðin er miklu meiri en samsvarar gengislækkuninni. Og því er það, ef mönnum var ekki fyrrum ætlað að lifa af þingfararkaupinu, þá verður þeim ekki fremur ætlað það nú.