08.04.1924
Neðri deild: 45. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1217 í C-deild Alþingistíðinda. (2680)
30. mál, þingfararkaup alþingismanna
Jón Kjartansson:
Hv. 3. þm. Reykv. (JakM) er alveg sjálfráður um sínar skoðanir á leikaraskap og jeg læt hann um þær.
En jeg vildi leiðrjetta misskilning, sem blandað hefir verið inn í þetta mál og snertir stjórnarskrármálið í hv. Ed. Það er vitanlegt, að það var ekki flokksmál í Íhaldsflokknum, hvort afnema skyldi landskjörið eða ekki, enda gátu sumir af þeim flokki fallist á það í hv. Ed. Sama var og um sum hjeruð, þar sem Íhaldsmenn voru kosnir. Það var t. d. samþ. á þingmálafundi í Vestur-Húnavatnssýslu að leggja til, að landskjörið væri afnumið. Hverjir hafa átt sök á því, að frv. var felt í Ed., er ekki staður nje stund að ræða hjer nú; það bíður síns tíma, og verður eflaust gert á öðrum stað.