28.04.1924
Efri deild: 56. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1221 í C-deild Alþingistíðinda. (2690)

121. mál, þingsköp Alþingis

Frsm. (Jónas Jónsson):

Um 1. brtt. er það að segja, að eftir skoðun okkar flm. og meirihl. allshn., þá er hún til mikils sparnaðar. Undir venjulegum kringumstæðum tekur það fjvn. Nd. langan tíma að ljúka störfum sínum. Í fyrra voru liðnar 8 vikur af þingtímanum, þegar nefndin skilaði áliti sínu. Enda verður það oftast svo, að þegar nefndin hefir lokið störfum sínum, þá er svo áliðið þingtímans, að fjárlögunum verður að hroða af á stuttum tíma. Sjerstaklega á þó fjvn. Ed. örðuga aðstöðu í þessu efni. Sakir þess, hve lengi Nd. hefir fjárlögin til athugunar, þá fær Ed. ekki nema örstuttan tíma til þess að gera athugasemdir sína við þau og rannsóknir. Er sá tími svo stuttur, að hann er algerlega ófullnægjandi, hversu vel sem nefndin starfar, sjerstaklega vegna þess, að á meðan fjvn. Nd. fæst við fjárlögin, þó veit fjvn. Ed. ekkert um meðferð hinnar nefndarinnar á fjárlögunum. Jeg man ekki betur en að þessi hugmynd sje upprunalega frá fyrverandi forseta þessarar hv. deildar, Guðm. Björnsyni, landlækni. Fyrir honum vakti það, að bæta aðstöðu Ed. við að vinna að fjárlögunum. Við flm. reyndum að leysa það óleysanlega, að láta fjárveitinganefnd koma saman á undan þingi eftir nýjar kosningar. Við fjellum því frá því, en meirihl. allshn. samþykti breytinguna, eins og hún er nú. Fyrirkomulag það, sem um er að ræða, á þó ekki að ná til þinga fyrst eftir nýjar kosningar. Við álítum, að hægt væri að koma þessu fyrirkomulagi við í 3 skifti af 4, með núverandi skipulagi. Með þessu móti kæmu fjárlögin mjög fljótt til umræðu í Nd., og væri mikið við það unnið, þar eð það er oftast látið ráða um lengd þingtímans, hvenær fjárlögin eru tilbúin. Við flm. álítum, að ef hægt verði að koma fjárlögunum 6 vikum fyr inn í þingið en hingað til, þá muni það flýta þinginu svo vikum skiftir. Jeg veit það, að einn nefndarmanna, hv. 1. þm. Rang. (EP) lítur svo á þessa breytingu, að með henni fái fjvn. meira vald en ef hún starfar samhliða þinginu. Held jeg, að það sje ekki rjett. Fjvn. halda fundi sína út af fyrir sig og byggja starf sitt á þeim skjölum og skilríkjum, sem fyrir liggja. Jeg tel það, að menn sjeu að heimsækja nefndina, illan sið, sem ætti að afnema. Nefndin ætti sem mest að líta á þær tölur og þau skjöl, sem fyrir henni liggja, en ekki þær persónur, sem hlut eiga að máli. Þar sem ætlast er til, að kosið verði í nefndina með hlutfallskosningu, þá ættu allir flokkar að geta notið sín þar, og þeir, sem það vilja, geta snúið sjer til nefndarinnar skriflega. Nefndin breytist því ekkert við þetta, og þó að svo væri, þá er þó nokkuð vinnandi til þess, að stytta þingtímann að miklum mun.

Um hina till., að hafa sjerstakan ræðustól í hvorri deild um sig og takmarka ræðutímann, er það að segja, að þær miða báðar í sömu átt og 1. till., að stytta þingtímann. Að hafa ræðustól tíðkast víða erlendis, enda er það álitið nauðsynlegt þar, sem þingmenn eru margir. Einn af nefndarmönnunum hefir litið svo á, að þetta ætti fremur við í Nd. en í þessari hv. deild, og má það vel vera. Meirihl. nefndarinnar hefir þó lagt til, að brtt. þessi verði samþ., þar eð hann lítur svo á, að það verði til þess að fækka ræðunum og þannig stytta þingtímann. Till. gengur því í sömu átt og 1. till.

Að því er síðustu till. snertir, um að stytta ræðutímann, þá má vera, að sumum hv. þm. finnist koma vel á vondan, að jeg mæli með henni. En jeg sætti mig fullkomlega við það að vera skorinn niður sem aðrir, þó að jeg hinsvegar noti frelsið í þessum efnum eins og aðrir, meðan það er. Það hefir læknir einn í bænum bent mjer á það, að við værum ekki róttækir í þessum till. okkar. Sagði hann mjer, að á allsherjar læknafundum erlendis mættu menn ekki tala lengur en ¼ úr klukkustund.

Jeg skal játa það, að jeg tel ekki miklar líkur til, að þetta verði samþykt í þetta sinn. Og þó að það verði samþ. í þessari hv. deild, þá er nú svo áliðið þings, að það vinst sennilega ekki tími til að koma því í gegnum hv. Nd. á þessu ári. En að því leyti sem málið skýrist nú, flýtir það fyrir því á næsta ári.