28.04.1924
Neðri deild: 57. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1253 í C-deild Alþingistíðinda. (2727)

83. mál, fátækralög

Frsm. minnihl. (Jón Baldvinsson):

Það ætlar að ganga erfiðlega að koma fram breytingum á fátækralögunum, þó flestir hinsvegar viðurkenni, að þær sjeu rjettmætar. Þegar til þess kemur, að þær á að samþykkja, þá fara menn að nota allskonar undanbrögð, svo sem að þeir sjeu að bíða eftir að lögin öll verði endurskoðuð o. s. frv. Jeg játa fúslega, að frv. á þskj. 118 gengur langt í því efni að reyna að koma í veg fyrir, að menn missi rjettindi sín vegna þess, að þeir af óviðráðanlegum ytri orsökum hafa neyðst til að leita hjálpar af sveit sinni. En þetta álít jeg einmitt kost á frv. Vil jeg þó taka það fram, að jeg gerði mig ánægðan með það, þó það næði ekki alt fram að ganga í einu, ef nokkur hluti þess yrði samþ., og því hefi jeg fallist á, til samkomulags, að gera brtt. við frv., og er þær að finna á þskj. 244. Jeg vil taka það fram, að misprentast hefir 1. brtt. við b-liðinn, þar sem falla eiga burtu orðin: „eða vottorð tveggja skilvísra manna“, og auk þess orðin: „þar sem ekki næst til læknis“. Vil jeg biðja hæstv. forseta að taka tillit til þessa við atkvgr.

Jeg held nú, að þegar búið væri að samþ. brtt. þær, sem eru á þskj. 244, að fella niður c-liðinn, og úr b-liðnum, þá sje ekki mikið eftir, sem menn geti amast við að gangi fram. Auk þess feld niður 2. og 3. gr. frv., sem sjálfsagt verða þá að bíða betri tíma. Og eiginlega hefir hv. frsm. meirihl. (JK) ekkert á móti frv. Hann viðurkennir fyllilega rjettmæti þess, en það er nú svo, sem stundum áður, þegar til alvörunnar kemur, að menn ýmist setja fyrir sig afleiðingarnar eða vilja bíða eftir því, að löggjöfin verði endurskoðuð. Skil jeg þó satt að segja ekki þá aðstöðu að vilja ekki grípa tækifærið til að ráða bót á þeim agnúum, sem menn sjá og viðurkenna að eru á lögunum. Það, sem hv. frsm. meirihl. (JK) fann að c-lið 1. gr., var það, að hann væri of víðtækur, og er það satt, að hann gengur langt. Og þó það sje, eins og jeg áður tók fram, kostur í mínum augum, þá verður sá liður þó líklega ekki með í frv., til þess að það spilli ekki fyrir öðrum greinum þess, sem annars væri lífs auðið. Jeg vil því mælast til, að hv. forseti beri upp í fernu lagi 1. gr. frv. C- liður kemur þá eftir brtt. og sömuleiðis a-liðurinn.

Það er náttúrlega svo, að lög ganga ekki altaf jafnt yfir, en það er ætíð verið að reyna að stíla þau þannig, að sem fæstir verði hart úti. En hjer er um það að ræða, að ekki eingöngu fáir einstaklingar, heldur mörg þúsund manns, heill hópur manna, verður hart úti, og sýnir það ranglæti það, sem felst í ákvæðum þessara laga.

Jeg vænti því, að 1. gr. fái að minsta kosti að standa, með þeim breytingum, sem gert er ráð fyrir á þskj. 244, og þá er frv. orðið svo fjarskalega sanngjarnt, að það getur ekki lengur verið neinn þyrnir í augum þeirra manna, sem engar stórfeldar breytingar vilja gera.