29.04.1924
Neðri deild: 58. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (273)
1. mál, fjárlög 1925
Bernharð Stefánsson:
Jeg á tvær brtt. á þskj. 460, sem jeg vildi minnast nokkuð á. Fyrri brtt. er við 14. gr. fjárlaganna, við námsstyrk stúdenta erlendis, og fer aðeins fram á það, að í stað þess, að frv. ætlast til, að þeir námsmenn, sem stundað hafa nám 2–3 ár, sitji fyrir styrknum, þá komi: 1–3 ár. Tillaga mín byggist á því, að þessi námsstyrkur, sem veittur hefir verið undanfarin ár stúdentum, sem stundað hafa nám við erlenda háskóla, hefir verið skoðaður sem framhald af Garðstyrknum, eða að hann kæmi í staðinn fyrir hann. En Garðstyrknum var þannig varið, að sá stúdent, sem hann hlaut á annað borð, hjelt honum í 4 ár og gat treyst á að eiga hann vísan, svo framarlega sem hann bryti ekki af sjer. Stúdentar þeir, sem hjeðan hafa farið til náms við erlenda háskóla og annaðhvort hafa þegar notið styrksins eitthvað eða fengið loforð fyrir honum, þeir hafa treyst því, að við það stæði. Og þeir mundu að sjálfsögðu ekki hafa utan farið, ef þeir hefðu ekki treyst á þetta, sumir þeirra að minsta kosti. Ef nú aths. við þennan lið í frv. er samþykt óbreytt, þá má ganga að því vísu, að þeir stúdentar, sem ekki hafa stundað nám í full 2 ár, verði algerlega sviftir styrknum, því upphæðin er ekki hærri en það, að jeg býst við því, að hún þyki ekki of mikil handa hinum, sem lengur eru búnir að njóta styrks og komnir eru lengra áleiðis með nám sitt. Það liggur því ekki annað fyrir þessum námsmönnum en að komast í óbotnandi vandræði í ókunnu landi, eða að fara heim að öðrum kosti og taka fyrir alt annað nám eða hætta alveg. En hvort heldur sem er, þá má kalla, að þessi eitt til tvö ár sjeu glötuð með öllu. En jeg álít mjög athugavert að grípa þannig inn í líf manna. Mannsæfin er ekki svo löng, að vert sje að stuðla að því, að glatist þó ekki sje nema tvö ár af þroskaaldrinum og verði að engu.
Hv. frsm. (ÞórJ) sagði um þetta, að óhugsandi væri að halda lengra á þessa braut: að styrkja alla stúdenta til náms erlendis á þennan hátt, og væri óumflýjanlegt að nema staðar. En það væri ekki hægt nema það kæmi hart niður á einhverjum. Jeg get að nokkru leyti tekið undir þetta, en jeg er ekki sammála háttv. frsm. um það, hvar takmörkin skuli sett, og álít, að það muni ekki ríkið fjárhagslega miklu. En jeg get ekki greitt því atkvæði, að styrkurinn sje stöðvaður á þennan hátt. Jeg get fallist á það, að mönnum sje ekki hleypt út á þessa braut, þannig, að hætt sje að styrkja nýja menn til náms við erlenda háskóla, eða að minsta kosti takmarkað. En þeir stúdentar, sem fengið hafa loforð fyrir þessum styrk og byrjaðir eru að njóta hans með þeim skilningi sjálfra sín og annara, að þetta sje fjögurra ára styrkur, þeir verða mjög hart úti, ef þeir eru sviftir styrknum alt í einu. Og þannig hlýtur lífsstefna þeirra að breytast og verða öll önnur en hugsað var.
Ef nú brtt. mín verður samþykt, en upphæðin óbreytt, þá er vitanlegt, að þeir stúdentar, sem lengra eru komnir, fá minni styrk heldur en annars, ef hinir, sem skemra eru komnir, yrðu útilokaðir frá styrknum, svo sem hv. fjvn. leggur til. En jeg tel það skárra heldur en að gera þessum fáu mönnum svona feikilega rangt til. Það er ekki alveg óhugsandi, að þeir geti klofið áfram með tiltölulega minni styrk. En óhugsandi er, að fátækir menn geti komist áfram við nám sviftir öllum styrk. Það er líka hálfundarlegt, að maður, sem búinn er að stunda nám ytra í tvö ár, skuli fá styrk áfram, en fjelagi hans, sem er svo óheppinn, að hafa ekki stundað námið nema eitt ár, en er alveg eins nýtur og efnilegur stúdent, hann fær enga hjálp. Honum er gert ómögulegt að halda áfram námi. Og þó hafa þessir menn farið utan til náms síns jafnöruggir að þessu leyti. Jeg vona því, að þessi brtt. mín verði samþykt.
Þá á jeg aðra brtt. á sama þskj., við 22. gr. Tillaga þessi fer fram á það, að stjórninni sje veitt heimild til þess að ábyrgjast 300 þús. kr. lán fyrir Siglufjarðarkaupstað, til þess að koma á rafmagnsveitu.
Háttv. þdm. kann að finnast, að hjer sje farið fram á nokkuð mikið. En ef á þetta er litið með fullri sanngirni og góðvild, þá verður að játa, að hjer er ekki mikil hætta á ferðum fyrir ríkið, þó að það taki á sig þessa ábyrgð. Enda er sleginn varnagli með sjálfri till., þar sem svo er tekið til orða, að ábyrgðin komi ekki til greina nema því aðeins, að hæstv. stjórn telji fullkomlega örugt og óhætt.
Jeg vil nú með fáum orðum skýra ögn nánar frá því, hvernig á þessu máli stendur. Á Siglufirði er gömul rafmagnsveita, sem er algerlega orðin ónóg fyrir kaupstaðinn, vegna þess að vatnsaflið, sem hún er rekin með, er of lítið. Nú hefir kaupstaðurinn keypt vatnsafl í Fljótum, og er ætlunin að koma þar upp nýrri rafmagnsstöð og leggja rafmagnsleiðslu yfir Siglufjarðarskarð, sem vitanlega er nokkuð löng leið og kostnaðarsamt. Nú er það kunnugt, að það er ekki eins og peningum sje fleygt í sjóinn að koma á slíkri rafmagnsveitu, heldur er hugsað til þess, að hún geti borið sig vel og orðið auk heldur til hagnaðar fyrir bæinn. Enda eru sjerstakar ástæður fyrir hendi á Siglufirði, sem gera slíkt líklegt. Þar eru ýmsar verksmiðjur, sem sjálfsagt má selja afl til rekstrar með góðum hagnaði. Um hag bæjarins er það annars að segja, að ekki sýnist nein ástæða þess vegna að óttast það að ganga í ábyrgð fyrir hann. Samkvæmt efnahagsreikningi bæjarins frá síðustu áramótum, þá sýnist hagur hans vera góður. Skuldlaus eign hans er þar talin samtals á fjórða hundrað þús. kr., sem er alls ekki lítið, þegar þess er gætt, að þetta er lítill kaupstaður og ungur.
Jeg mun svo ekki þreyta hv. deild með öllu fleiri orðum um þessa till. En eins og jeg gat um áðan, ætti sá varnagli, sem í till. sjálfri felst, að nægja til þess, að ábyrgðin verði greiðlega heimiluð. Sjerstaklega vonast jeg eftir því, að hv. stjórnarflokkur telji með öllu óhætt, að hæstv. stjórn sje gefin slík heimild. Hann mun treysta stjórninni til þess að veita ekki ábyrgðina, ef hún telur það að einhverju leyti varhugavert fyrir ríkið. Með öðrum orðum: Þetta á ekki að kosta ríkið eyrisvirði. Ábyrgðin er aðeins gefin til þess, að kaupstaðnum sje gert mögulegt að fá lán til þessa nauðsynlega fyrirtækis. Og þó ekki sje endilega nauðsynlegt að taka tillit til þess, þá vil jeg minna á það, að ríkið hefir á undanförnum árum gengið í ábyrgðir fyrir ýms bæjarfjelög, t. d. Reykjavík. Einnig gekk ríkið í ábyrgð fyrir Akureyri, til þess að koma upp rafmagnsveitu þar. Og jeg hugsa, að þær ábyrgðir sjeu á engan hátt tryggari eða álitlegri en þessi. Og óneitanlega þætti mjer kenna misrjettis gagnvart Siglufjarðarkaupstað, ef honum yrði neitað um þetta, sem aðrir kaupstaðir hafa fengið.