28.04.1924
Neðri deild: 57. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1261 í C-deild Alþingistíðinda. (2734)

83. mál, fátækralög

Bjarni Jónsson:

Það er eftir lögunum talin skammarblettur á mönnum að vera fátækir, því að þau leggja við slíku það, sem kallað er ignominia í rómverskum lögum, það er, að menn missi rjettindi sín fyrir þær sakir. Hitt er rjett, að sumir eru fátækir fyrir leti og slóðaskap, en það er hart að láta skömm þeirra líka lenda á hinum, sem þrátt fyrir dugnað sinn geta ekki komist af.