15.03.1924
Neðri deild: 24. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1277 í C-deild Alþingistíðinda. (2771)
79. mál, sparisjóðir
Flm. (Magnús Torfason):
Eins og getið er um í greinargerðinni, þá er raun sögu ríkari, að misfellurnar á stjórn sparisjóða hjer á landi hafa verið bæði margar og miklar. Hefir það og verið mjög í hámælum haft síðustu árin. Jeg hafði því búist við því, að hæstv. stjórn hefði borið fram frv. á þessu þingi til að taka í taumana hjer, og býst jeg við, að ýmsir fleiri hafi vænst þess sama. Má vera, að hæstv. stjórn hafi þótt ástæða til að bíða með þetta, þar til skipaður væri eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum, til þess að hún gæti heyrt till. hans í þessu máli. En jeg hefi nú ekki haft eins mikla þreyju til að bíða með þetta eins og hæstv. stjórn, og hefi jeg því borið fram þetta frv., enda tel jeg mjer það ekki síður skylt en öðrum.
Skal jeg svo fylgja þessu frv. úr hlaði með nokkrum orðum og skýra málið með því að drepa á nokkur atriði úr sögu þess.
Á þinginu 1913 var fyrst borið fram frv. þessa efnis. Hafði landritari og bankastjóri Landsbankans gert það úr garði, og gekk það út á það að takmarka útlán sparisjóða gegn lausatryggingum og svo að stofna til eftirlits með sparisjóðum. Þetta voru aðalatriði frv. Frv. gekk fram í Ed., dálítið skemt, en þegar það kom hingað í deild, þá var það skemt, og síðan felt með 3 atkv. mun. Á þinginu 1914 kom aftur fram stjfrv. sama efnis. Það var samþ. í þessari deild, en varð svo seint fyrir, að það dagaði uppi í Ed. og var vísað til stjórnarinnar með rökstuddri dagskrá. Að lokum kom það svo enn fram á þinginu 1915, og varð þá að lögum. En þá var upphaflega frv. svo rúið og rakað, skinið og bert, að það hjekk varla saman á horgrindinni. Öll tryggingarákvæðin voru tröllum gefin. Ávextirnir af þessum lögum urðu líka eftir því sem til var stofnað, því ekki hefir verið unt að koma nokkursstaðar auga á þá, jafnvel þótt leitað væri með smoggeislum. Nú býst jeg við, að margur muni spyrja, hvernig það hafi getað skeð, að lögin fengu slíka útreið. Jú, það er skiljanlegt. Þessi ár voru veltiár. Menn voru búnir að gleyma gersamlega áföllunum, sem þjóðin hafði fengið 1908 og árin þar á eftir, og sáu ekkert nema gróða og gengi. Skal jeg t. d. taka, að í umr. um málið kom það fram, að sparisjóðir voru skoðaðir sem gróðafyrirtæki, sem stofnað væri fyrir lánveitendur. Líka kom það fram á þessum þingum, að þorskur væri ágæt trygging, þótt hann væri ennþá á tvöþúsund faðma dýpi. Þá þótti mönnum og goðgá, að farið væri að stofna til nokkurs kostnaðar af eftirliti með sparisjóðunum. Öðru máli gegnir, hvort þetta var afsakanlegt.
Alþjóðareynsla hafði sýnt og sannað, að tæplega yrðu settar nógu styrkar tryggingar fyrir sparisjóðsfje. En Íslendingar voru vaxnir upp úr slíkum barnalærdómi.
Aðrar þjóðir höfðu að baki sjer mörg hundruð ára reynslu í notkun víxla og sjálfsskuldarábyrgða, er þær komust loks að þessari niðurstöðu.
Íslendingar höfðu þá 10 ára reynslu. Og önnur eins gáfuþjóð þurfti eftir svo langt nám ekki að binda sig við slíkar kerlingakreddur; sjálfskuldarábyrgðir og víxlar gátu ekki farið oss að voða. Það er alþjóðakenning, að fyrsta skylda sparisjóða sje að vernda eigendur fyrir tapi. Hún var í vorum augum forngripur, sem best var geymd í elstu deildinni hjá Matthíasi. Nei, við töldum okkar fyrstu skyldu vera þá, að láta engan lausagopa fara synjandi frá sparisjóðsdiskinum.
Aðrar þjóðir litu svo á, að hafa þyrfti sjerstakt eftirlit með sparisjóðunum. Við vorum algerlega hafnir yfir það. Ill meðferð á landsfje, að offra 1200 kr. í slíkan hjegóma! Þetta nægir til að sýna stefnuna þá. Það voru auðvitað nokkrar raddir, sem þá mótmæltu, en þær voru kæfðar. Í hóp þeirra var prófessor Eiríkur Briem, sem mesta þekkingu hefir haft allra landsmanna á sparisjóðsmálum, en fjármálaspekingar þeirra tíma þóttust hafa annað að hugsa en hlusta á viðvaranir hans og annara, sem lengra sáu, kölluðu það karlanöldur. Þetta eru vitanlega engar afsakanir. Eina afsökunin, sem hægt er að finna þessum þingum til varnar, er sú, að þau vissu ekki, hvað þau voru að gera.
Nú líta menn öðruvísi á þetta mál. Benda lögin um eftirlitsmann með bönkum og sparisjóðum greinilega í þá átt. Og það var fyrir þá sök, að jeg hafði djörfung til þess að bera fram þetta frv.
Jeg hefi tekið upp í frv. öll tryggingarákvæðin frá 1913 og auk þess bætt nokkrum við, sem menn ættu nú að safa í slíkum lögum. Eru þar meðal annars sett ákvæði, sem ákveða hámark útlánsvaxta. En með því er skotið loku fyrir það, að sparisjóðsholur, sem sjúga svo að segja blóðið úr landsmönnum, geti orðið að svindilbraskbönkum.
Síðustu tímar hafa kent mönnum mikið í þessum efnum, og vænti jeg þess, að hv. deild taki þessu frv. vel, ef henni er á annað borð alvara með það að tryggja viðskiftin og starfrækslu peningastofnananna hjer á landi. Er það mikils virði, ef stöðva á gengi krónunnar. Vona jeg því fremur, að þessu máli verði tekið vel, þar sem nú hefir nýlega verið lýst yfir því, að orðin sjeu greinaskifti í fjármálum landsins.
Vænti jeg því svo, að mál þetta megi ganga til 2. umr.