29.04.1924
Neðri deild: 58. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 982 í B-deild Alþingistíðinda. (278)
1. mál, fjárlög 1925
Jón Kjartansson:
Það er ein brtt., sem jeg á hjer á þskj. 460 og jeg vil fara um nokkrum orðum. Hún er um styrk til sjúkraskýla og læknisbústaða og er í fullu samræmi við það, sem þessi hv. deild gerði í því máli við 3. umr. fjárlaganna. Hv. Ed. breytti þessu og hefir bundið styrkinn við sjerstakt sjúkraskýli, sem sje það, sem hv. fjvn. hjer mælti með, sjúkraskýlið í Borgarfirði.
Jeg er enn á þeirri skoðun, sem jeg hefi altaf haldið fram, að ekki sje hægt að gera upp á milli þeirra fjögra læknishjeraða, sem sótt hafa um styrk í þessu skyni. Jeg veit heldur ekki, hvort það er meining hv. fjvn., að þörfin sje brýnust þarna, heldur hafi þær fremur kosið að taka eitt skýlið út úr og veita því fullkominn styrk, í stað þess að veita fleirum nokkurn hluta. Jeg er ekki þessarar skoðunar, því ef nauðsynin er sú sama á fleiri stöðum, þá er það hin rjetta stefna, sem hæstv. forsrh. (JM) var mjer og fleirum sammála um hjer við 3. umr., að veita ákveðna upphæð, svo fleiri hjeruðum sje gert fært að byggja. Sjeu hjeruðin mörg, sem þessa þarfnast, geta þau vitanlega ekki fengið fullan styrk í einu, en samkv. brtt. minni ætlast jeg til þess, eins og hv. deild var áður sammála um, að þessum hjeruðum sje gert fært að byrja að byggja, þó styrkurinn dreifist á 2–3 ár. Jeg skal ekkert segja um það, hversu mörg hjeruð gætu komið upp skýlum, ef þau fá ekki þegar allan styrkinn, en jeg get sagt það um Mýrdalshjerað, sem jeg ber mest fyrir brjósti, að það getur strax hafist handa, fái það einhvern styrk. Það er ákveðið af þeim, sem hlut eiga að máli, að byggja skýlið á næsta ári, og eins og áður hefir verið skýrt frá, er nú búið að safna til þess 25–30 þús. kr. innanhjeraðs, sem að mestu eru innborgaðar. Er því ekki annað sjáanlegt en að undirbúningurinn þarna sje svo góður, sem á verður kosið. Hafi hv. fjvn. eitthvað að athuga við áætlun þá, sem gerð hefir verið um skýlið, þá er frá mínu sjónarmiði ekkert á móti því, að stjórnin lagfæri hana, því það er ekki nema gott og æskilegt, að skýlið yrði ódýrara en áætlað er.
Af þessum ástæðum, að jeg hefi ekki viljað gera upp á milli þessara fjögra læknishjeraða, sem sótt hafa um þennan styrk, hefi jeg flutt þessa till., í stað þess að koma fram með till. um sjerstakan styrk til Mýrdalshjeraðs, eins og hv. þm. Dala. (BJ) hefir borið fram viðvíkjandi Flateyjarhjeraði. Og af því mjer virtist hv. deild líta svo á við 3. umr., að veita bæri vissa fjárhæð í þessu skyni og láta hv. landsstjórn og heilbrigðisstjórn um að skifta henni milli hjeraðanna, eftir því, hve vel málið væri undirbúið hjá hverju fyrir sig og þörfin brýnust, og jeg vænti því, að till. mín verði samþykt.
Jeg verð að telja það óforsvaranlegt, ef Mýrdalshjerað verður látið sitja á hakanum, svo það verði síðast af þessum hjeruðum og verði að bíða eftir skýlinu 4–5 ár. Jeg hefi haft tækifæri til þess bæði við 2. og 3. umr. að lýsa erfiðleikunum þarna eystra á þessu sviði. Mýrdalsbúar verða næstum undantekningarlaust að leita á náðir læknanna í Síðu- og Rangárhjeraði, ef nokkuð kemur fyrir, og hefir það gífurlegan kostnað í för með sjer, og oft ekki nægilegt, því þeir læknar eru vitaskuld fyrst og fremst bundnir við sín hjeruð. En sem betur fer hafa þeir þó oftast tekið því greiðlega að koma í Mýrdal, þegar á hefir þurft að halda. En eins og jeg hefi áður tekið fram, hefir ekki tekist enn að fá ungan, góðan lækni í Mýrdalinn, því þar eru fáir íbúar og lítil von um „praksis“, og því von, að fáa fýsi þangað, ef þeir fá ekki læknislaun. En læknir sá, sem nú er, hefir hinsvegar skuldbundið sig til þess að fara undireins og skýlið er komið upp. Trúi hv. deild ekki þeim orðum mínum, sem jeg tel hana ekki hafa ástæðu til að vefengja, þá liggur fyrir yfirlýsing um það frá sýslumanninum í Vík. Þessi maður er líka orðinn roskinn og búinn að vera mjög lengi í embætti, og því von, að hann fari að segja af sjer.
Af því að málið liggur svo fyrir, að erfitt er að gera upp á milli hjeraðanna, hefi jeg borið fram varatill., ef þessi till. verður ekki samþykt, um að styrkurinn til Borgarfjarðarhjeraðs falli niður. Jeg verð að líta svo á, að þetta sje skoðun deildarinnar, að veita ákveðna upphæð til sjúkraskýla, og treysti jeg því, að hv. þm. Dala. taki sína till. aftur, þegar hann hefir kynt sjer málavexti frá 2. og 3. umr. fjárlagafrv.
Jeg ætla svo ekki að fara fleiri orðum um þetta, en treysti því, að háttv. fjvn. vilji fallast á till. mína um að orða styrkveitinguna þannig.
Jeg ætla ekki að fara neitt út í aðrar brtt., en vildi aðeins taka það fram, hvort jeg hefði ekki skilið ummæli hæstv. atvinnumálaráðherra (MG) um stúdentastyrkinn rjett á þann hátt, að ef ekki fengist fje úr sáttmálasjóðnum, ættu stúdentar ekki að gjalda þess. Jeg tók það fram áður við 2. eða 3. umr., að erfitt myndi að fá fje til stúdenta þaðan, og jeg býst við, að ekki sje hægt að knýja sáttmálasjóðinn til þess að leggja neitt af mörkum. Og hafi jeg skilið hæstv. atvrh. rjett, eiga stúdentar ekki að gjalda þess, þó háskólaráðið taki illa í málið. Tel jeg það vel farið. Þó er jeg auðvitað langt í frá að hafa á móti því, að hæstv. stjórn reyni þessa leið, ef hún er fær.