01.05.1924
Neðri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1291 í C-deild Alþingistíðinda. (2791)

139. mál, almenn sjúkratrygging

Flm. (Jón Sigurðsson):

Jeg skal ekki þreyta menn á langri ræðu, en bara taka það fram, að þar sem þetta mál er svo seint flutt, þá er ekki við því að búast, að það komist út úr þinginu að þessu sinni; heldur er tilgangurinn sá, að glæða með þessu umr. um málið út um land. Því hefir að vísu verið hreyft nokkuð áður, en það er nú löngum svo, að meðan slík mál eru ekki fram komin í neinu ákveðnu formi, þá svífa umr. um þau að meira eða minna leyti í lausu lofti.

Jeg hefi ekki stuðst hjer við neina útlenda fyrirmynd, heldur miðað frv. eftir íslenskum staðháttum. Jeg hefi og borið mig saman um þetta við menn, sem einnig hafa áhuga á málinu, þar á meðal Kr. Linnet sýslumann, sem hefir gefið mjer margar góðar bendingar í þessu máli. Jeg geri að vísu ráð fyrir, að einhverjir hv. þm. muni sjá ljón á veginum hjer, sem annarsstaðar, en jeg er sannfærður um, að þetta mál er þess virði, að því sje gefinn gaumur, og ekki síst þar sem nú er búið að binda ríkissjóðnum þungan bagga með berklavörnunum.

Jeg skal geta þess, að sú áætlun, sem gerð er í greinargerðinni, er miðuð við það, sem ríkisfjehirðir hefir gefið upp fyrir árið 1923. Jeg býst þó við, að greitt verði allmiklu meira nú á þessu ári. Þar sem nú er áliðið dags, skal jeg sleppa því að fara frekar út í málið, enda er það skýrt allítarlega í greinargerð frv.