29.02.1924
Efri deild: 8. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1323 í C-deild Alþingistíðinda. (2846)
45. mál, fræðsla barna
Flm. (Jónas Jónsson):
Út af aths. hv. 2. þm. G.-K. (BK) vil eg geta þess, að í frv. mínu er ekki gert ráð fyrir, að fyrirhuguð nefnd hafi eftirlit með öðru en barna- og unglingaskólum.
Jeg get því ekki sjeð, að ef að menn eru færir um að búa kennara við þessa skóla undir æfistarf þeirra, þá geti þeir ekki eins gefið sjerfræðilegar bendingar um, hverjum skuli veita slíkar stöður. Jeg get hugsað mjer, að háttv. þm. (BK) hafi litið svo á, að frv. ætlaði nefndinni stærra starfssvið, en svo er ekki. Henni er aðeins ætlað að gera till. viðvíkjandi þeim skólum, sem eru hvort eð er tengdir kennaraskólanum. (BK: Þannig skildi jeg frv. líka.) Þá get jeg ekki sjeð, hvernig hv. þm. (BK) getur litið svo á, að nefndin verði ekki starfi sínu vaxin. Ef stjórnin á að snúa sjer til hinna og þessara í hvert skifti, eins og hv. þm. (BK) vildi vera láta, þá mun reynast erfitt að fá til þess menn án nokkurrar þóknunar, en þá er sparnaðurinn búinn að vera.
Jeg get verið samþykkur hæstv. forsrh. (SE) um það, að ef núv. fræðslumálastjóri á ekki rjett til eftirlauna, nema samkv. lögunum frá 1919, þá verði nokkuð hart að honum gengið. En þetta atriði vil jeg einmitt, að athugað verði í nefnd.