29.03.1924
Efri deild: 32. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í D-deild Alþingistíðinda. (2879)

110. mál, sparnaður við starfrækslu ríkisrekstrarins

Forsætisráðherra (JM):

Um þessa till. er það að segja, að jeg get ímyndað mjer, að stjórninni verði mögulegt að fá hæfa menn til þess að athuga þetta efni, án þess þó að kosta miklu til. Get jeg þó ekki sagt þetta með fullri vissu, því að jeg hefi ekki talað við slíka menn nú, en jeg hefi ástæðu til að halda, að svo kynni að geta orðið. Annars tel jeg, að mögulegt myndi verða að hafa eina nefnd, því ef fleiri væru, mætti frekar búast við, að skoðanamunur þeirra gæti staðið tillögunum fyrir þrifum.

Eins og jeg hefi áður tekið fram, tel jeg heimild eftir þál. ekki nægilega til þess að eyða fje úr ríkissjóði í þessu skyni, svo að teljandi sje. En jeg get lýst því yfir, að jeg muni taka þetta mál til athugunar.