29.03.1924
Efri deild: 32. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í D-deild Alþingistíðinda. (2882)

110. mál, sparnaður við starfrækslu ríkisrekstrarins

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Jeg vildi aðeins geta þess, að mjer fanst hæstv. forsrh. (JM) taka vel í tillögu nefndarinnar, og mjer finst það koma honum mest við, hvort nefndirnar eru ein eða fleiri. En jeg tel líklegt, að það sje rjett, sem hv. 5. landsk. (JJ) hjelt fram, að það sje betra, að nefndirnar sjeu fleiri en ein, svo að minna starf komi á hverja, ef þeim er ætlað að starfa kauplaust. Annars býst jeg við, þar eð hæstv. forsrh. (JM) tekur svo vel í þessa tillögu, að einhver árangur geti orðið að þessu, ef fást duglegir, ósjerplægnir menn, sem vilja vinna að þessu endurgjaldslaust, og hafa þekkingu til þess.

Hv. formaður fjvn. (JóhJóh) lýsti því, hvernig þetta mál gekk í nefndinni. Og jeg vil geta þess, að það er ekki til neins að vera að leyna því, að samkomulag var ekki gott í nefndinni, þó að samvinnan hafi máske verið heldur betri en hún er oft hjá hv. deild. En mjer finst eðlilegt, þó að flm. tillögunnar sje orðinn órólegur vegna þess, hve lengi hann hefir orðið að bíða eftir því, að nefndin afgreiddi málið, þó að jeg fyrir mitt leyti sje frekar rólegur, af því, að jeg bjóst ekki við miklum árangri í þessu máli nú á þinginu.

Jeg veit því ekki, hvort það er svo mikil eftirsjón í því, þó að þetta mál sje ekki afgreitt öðru vísi en til stjórnarinnar nú. Það vantar síst, að nógar sparnaðartillögur komi fram. Hitt er aftur á móti verra, hve fáar þeirra ná fram að ganga. Annars býst jeg við, eftir undirtektum hæstv. forsrh. (JM) að dæma, að hann muni hafa einhverjar góðar till. í þessu máli til að leggja fyrir næsta þing, og á hans ábyrgð er það hjeðan af, hvort nokkuð verður í því gert, sem að gagni kemur.