09.04.1924
Neðri deild: 46. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í D-deild Alþingistíðinda. (2890)

103. mál, endurheimt ýmsra skjala og handrita

Klemens Jónsson:

Jeg stend upp til þess að mæla með tillögu þessari, því að jeg held, að þessi tími til þess að bera tillöguna fram, sje mjög heppilega valinn. Ber það til, að jeg hefi þessa skoðun á því, að þessi tími sje hentugastur, að á fundi, sem nýlega hefir verið haldinn með Dönum og Norðmönnum, kom fram ákveðin og sterk krafa af hendi Norðmanna til Dana um endurheimt ýmissa skjala, frá safni Árna Magnússonar og ýmsum öðrum söfnum, en þó einna sjerstaklegast úr safni Árna Magnússonar. Bera Norðmenn það fyrir sig, að Árni Magnússon hafi fengið fjöldann allan af dýrmætum handritum, bókum og skjölum, snertandi Noreg og norska hagi, hjá Þormóði Torfasyni, sagnaritara konungs. Það er vitanlegt, að Árni Magnússon dvaldi hjá Þormóði tvo parta úr vetri, og segja Norðmenn, að þá hafi hann fengið að láni hjá Þormóði mörg handrit og margt annað fleira, viðkomandi sögu Noregs. Leggja nú Norðmenn allmikið kapp á að fá þessu skilað aftur. Þessa vegna held jeg einmitt, að tíminn sje nú heppilega valinn til þess að heimta aftur þau skjöl, er við eigum og eigum rjett á að fá, en jeg vil leggja áherslu á þau orð, sem hv. þm. Str. (TrÞ) viðhafði í niðurlagi ræðu sinnar, að við viljum eigi beita neinni ósanngirni í þessu máli, en vjer viljum fá rjett vorn óskertan. Að mínu áliti hefir dr. Jón sál. Þorkelsson gengið fulllangt í kröfum sínum fyrir okkar hönd. Við eigum heimting á að fá alt það aftur, sem látið hefir verið að láni. Samkvæmt skýrslu dr. Jóns Þorkelssonar er fjöldi af skjölum í safni Árna Magnússonar, sem Árni Magnússon hefir sjálfur ritað á með eigin hendi að eigi að skilast aftur, þau sjeu fengin að láni. Þessi skjöl eru öll okkar eign, og við eigum fullan rjett á að fá þau aftur. Þá eru þar og mörg önnur skjöl, sem eigi er neitt ritað á, að eigi að skilast, en eru komin hjeðan, bæði úr embættismannasöfnum og frá einstökum mönnum. Til þessara skjala höfum vjer eigi neinar kröfur lögum samkvæmt, en hitt er eðlilegast og öll sanngirni mælir með því, að vjer fáum þau aftur, að minsta kosti þau, sem eru frá söfnum, eða t. a. m. frá biskupsstólunum. Enn eru þar mörg skjöl hjeðan, sem vjer getum alls eigi krafist aftur; vjer getum eigi gengið lengra í því efni en lög standa til eða full sanngirni. Vjer getum eigi krafist aftur þeirra hluta, sem vitanlegt er um, að hafa verið gefnir Árna Magnússyni af rjettum eigendum. En einmitt þar er mjer eigi grunlaust um, að dr. Jón hafi gengið fulllangt í kröfunum. En þótt eigi sje nema sanngjarnt að heimta aftur það, er vjer eigum, og að tíminn sje nú rjett valinn til þess, vil jeg þó eigi undan fella að skýra frá minni eigin reynslu í þessu efni um það, að þetta mun þó eigi verða eins auðvelt og margir hafa haldið. Jeg man eigi glögt, við hvern Hannes Hafstein átti tal um þetta í Danmörku; mig minnir, að það hafi verið kenslumálaráðherra Dana. En þó að hann muni hafa verið hlyntur afturskilun, þá mun hann vissulega hafa orðið að hlíta ummælum yfirskjalavarðanna í þessu efni. Nú verð jeg að segja það, að það hefir reyndar oft tekist að fá hingað ýms skjöl frá Kaupmannahöfn að láni, og hefir það jafnvel tekist að fá hingað til fulls merkilegar bækur og skjöl. Þannig fjekst hingað í ráðherratíð Hannesar Hafstein hin merkilega dómabók Þórðar Guðmundssonar, og er hún hjer enn, þrátt fyrir það, að skjalaverðirair vildu alls eigi láta hana af hendi. Af eigin reynslu get jeg og sagt það, að jeg hefi reynt, meðan jeg var ráðherra, að koma dálitlu til leiðar í þessu efni. Í fyrra hitti jeg að máli í Kaupmannahöfn tvo menn úr stjórnarnefnd Árna Magnússonarsafnsins, og virtust mjer þeir vera í þessu máli fremur velviljaðir. Var annar þessara manna dr. Erslev, ríkisskjalavörður, og tók hann allliðlega í þessa málaleitun mína, en hann sagði mjer afdráttarlaust, að stjórnarnefnd Árna Magnússonar safnsins væri þannig skipuð, að þrír af nefndarmönnum mundu aldrei samþykkja, að neinu yrði skilað aftur úr safninu. En þessir menn eru sumir orðnir háaldraðir, einn þeirra er t. d. um 80 ára, og má því vænta, að bráðlega verði skift um menn í nefndinni, og að í hana setjist þá yngri menn og frjálslyndari í þessum efnum, og mætti þá vænta, að málið yrði auðsóttara.

Jeg hefi tekið þetta fram nú, til þess að það yrði hv. þingdeild ljóst, að þetta liggur eigi alveg laust fyrir, og yfir höfuð hefir reynslan orðið sú, í viðskiftunum milli Norðmanna og Dana, að þetta hefir gengið mjög illa. Ber þeim eigi saman um það, hvorir eigi sökina á þessu, og kenna því hvorir öðrum. Norðmenn kenna Dönum um þetta, en Danir kveðast vera fúsir til að skila einhverju aftur, en það hafi strandað á því, hversu Norðmenn hafi verið óliðlegir og ósanngjarnir í kröfunum. Nú skal jeg engan dóm á þetta leggja, en jeg get hugsað mjer, að svo hafi staðið á, að Norðmenn hafi orðið of kröfuharðir og krafist að fá meira frá Dönum en sanngirni var í. Því vil jeg eigi, að vjer gerum frekari kröfur en vjer álítum sjálfir vera sanngjarnt, enda þótt æskilegt væri að fá fleira en vjer getum krafist að fá að lögum, ella gæti svo farið, að vjer fengjum eigi einu sinni það, er vjer eigum skýlausan rjett á að fá aftur.