25.04.1924
Neðri deild: 55. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í D-deild Alþingistíðinda. (2914)
131. mál, slysatryggingar
Flm. (Jón Baldvinsson):
Jeg býst við, að væntanleg nefnd sendi frumvarpsuppkast sitt til stjórnarinnar, og geri jeg ráð fyrir, að stjórnin sjái sjer fært að flytja það. Auðvitað er hún sjálfráð um, hvort hún gerir það eða ekki. Verði það ekki, þá mun sjálfsagt einhver þm. fást til að taka að sjer flutning málsins á næsta þingi. Jeg geri annars ráð fyrir, að ekki verði nein vandkvæði á því að fá menn til þess að taka þetta starf að sjer. Að minsta kosti veit jeg, að ekkert er þar til fyrirstöðu að því er snertir þann aðiljann, sem mjer er kunnastur. Vona jeg, að svo verði einnig um hina. Að því er snertir þann manninn, sem stjórnin skipar, þá býst jeg við, að hann verði valinn úr stjórnarráðinu. Þetta er að vísu ekki mikil borgun, sem hjer er ætlast til að greidd verði, en þó dálítil þóknun fyrir þá, sem að þessu kunna að vinna.