29.04.1924
Efri deild: 57. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í D-deild Alþingistíðinda. (2924)

131. mál, slysatryggingar

Sigurður Jónsson:

Eftir því sem orðið „alment“ er alment notað, þá nær það til allra jafnt. Vil jeg því halda því fram, að eftir því, sem venja er til að nota orðið í löggjöf okkar, þá nái till. til allra landsmanna.

Að vísu er það svo, að eftir því, hvernig skipa á nefndina, mætti jafnvel ætla, að hún ætti aðeins að semja lagafrv. um slysatryggingar fyrir ákveðna stjett manna, en minn skilningur er sá, að tryggingamar eigi að ná til allra landsmanna.