09.04.1924
Neðri deild: 46. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í D-deild Alþingistíðinda. (2935)

124. mál, sparisjóður Árnessýslu

Klemens Jónsson:

Jeg hafði ekki búist við því að þurfa að taka til máls í þessu máli. Mjer fanst hæstv. fjrh. (JÞ) skýra málið svo greinilega og ljóst, að öllum væri innan handar að átta sig á því. Og síðan hefir hv. 3. þm. Reykv. (JakM) árjettað það enn greinilegar. Það er búið að sýna það og sanna, að af till. stafaði engin hætta. Jeg hafði því búist við því, að umræður mundu verða stuttar. En reyndin hefir þó ekki orðið sú. Og með því að jeg hefi haft nokkur afskifti af málinu sem fyrverandi fjrh., þá finn jeg ástæðu til þess að skýra það nokkuð frá mínu sjónarmiði.

Eftir áskorun þingsins í fyrra var sett nefnd manna til að rannsaka hag sparisjóðsins frá rótum. Jeg hygg, að ekki hafi verið völ á betri mönnum til rannsóknarinnar en þeim, sem skipaðir voru. Tveir af nefndarmönnunum hafa starfað lengi hjer við Landsbankann, og annar þeirra upp alinn þar eystra og nákunnugur öllum mönnum þar og hag þeirra. Þriðji maðurinn var gamall og reyndur bóndi eystra, maður, sem þekti vel störf sparisjóðsins og var gagnkunnugur högum manna í þessum tveimur sýslum, Árnes- og Rangárvalla, sem eiga sjóðinn. Að rannsókn lokinni áætluðu þeir beint tap 15%, en töldu auk þess allstóra upphæð miður vel trygða. En nú mun hafa þegar orðið sú reyndin, að alls ekki muni vera tapað alt það fje, sem þeir töldu að mundi ekki fást borgað. Auk þess eru svo mjög lítil líkindi fyrir því, að það fje tapist, sem þeir töldu miður trygt. Er alveg víst, að það verður þá ekki nema örlítill hluti, því matsmennirnir hafa sýnt mikla varúð og nærfærni í matinu. Hæstv. fjrh. (JÞ) mun vera á sömu skoðun um þetta, en hann er vel kunnugur þarna eystra, hefir að minsta kosti síðustu tvö árin kynst þar mjög mönnum og málefnum. Jeg held því, að hjer geti alls ekki verið um neina hættu að ræða, síður en svo. Býst jeg því fastlega við því, að þessi þáltill. gangi greiðlega gegn um deildina og þingið í heild sinni.

Það, sem aðallega hefir verið deilt um í þessu máli, er það, hvort sparisjóðurinn ætti að sameinast Landsbankanum eða halda áfram að starfa sem sjerstök bankastofnun. Þegar Landsbankaútibúið á Selfossi var sett á stofn, vildi bankinn fá sameiningu við sparisjóðinn. En því var þá neitað af eigendum sjóðsins. En síðar hefir komið í ljós, að þar hafa menn farið óhyggilega að ráði sínu. Og þegar nú í haust var farið að halda um málið opinbera fundi, kom það fram, að enn voru skoðanirnar skiftar. Á fyrri fundinum varð jafnvel meiri hluti með því, að sparisjóðurinn hjeldi áfram sem sjerstök stofnun. En þess er honum enginn kostur, þar sem hann hefir hjá hvorugum bankanna lánstraust. Á fundi 21. nóvember á Eyrarbakka hjelt jeg því óhikað fram, að sjálfsagt væri að leita samkomulags við Landsbankann. Einn bankastjóranna var staddur á fundinum og ljet það í ljós, að með vissum skilyrðum mundi bankinn ekkert hafa á móti því að taka við sparisjóðnum. Held jeg, að óhætt sje að fullyrða, að bankinn geti óhræddur lofað að greiða 80%, því að eftir því, sem jeg hefi kynst málinu, eru ekki horfur á, að tapið fari mikið fram úr 15%, þar sem talsvert mun nást inn af því, sem rannsóknarnefndin áætlaði tapað. Og ef bankinn yrði fyrir einhverju tapi, þá kæmi það alls ekki til útborgunar strax, en mundi skiftast á mörg ár. Fjárhag ríkisins er því ekki minsta hætta búin af þessu, síst nú á næstunni. Vegna þeirrar ábyrgðar, sem varpað sje á Landsbankastjórnina, hygg jeg, að hv. þm. sje óhætt að greiða till. atkvæði, því að jeg sje ekki annað en henni ætti að vera ljúft að hafa þingvilja á bak við sig í þessu máli, þar sem bankanum er hagur að sameiningunni. Landsbankaútibúið á Selfossi og sparisjóðurinn hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta gagnvart ýmsum skuldunautum, þar sem útibúið hefir 2. og 3. veðrjett í ýmsum fasteignum, sem sparisjóðurinn hefir 1. veðrjett í, og því er sameiningin líka að þessu leyti mjög æskileg.

Ummæli hv. 4. þm. Reykv. (MJ) þóttu mjer í fylsta máta einkennileg. Hann virtist koma fram sem einskonar málfærslumaður Landsbankans, sem bæri skylda til að verja hann gegn hættulegri aðför, sem þarna væri á ferðinni. En þetta er engin aðför að bankanum. Meiningin er hvorki sú að skaða bankann nje ríkið. Þvert á móti er jeg sannfærður um það, að þessi meðferð málanna er báðum til gagns, Landsbankanum og sparisjóðnum, og þá sparisjóðnum fyrst og fremst, því að annars verður hann gjaldþrota. En það má hann ekki fyrir nokkurn mun verða, því að þá mundu fátækir bændur missa inneignir sínar. Og það má alls ekki eiga sjer stað. Ríkinu er blátt áfram skylt að koma þá til aðstoðar. Vænti jeg því, að þessi þáltill. fái góðan byr gegn um þingið.