15.04.1924
Efri deild: 49. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í D-deild Alþingistíðinda. (2943)
124. mál, sparisjóður Árnessýslu
Eggert Pálsson:
Jeg vil fylgja þessari till. úr hlaði með nokkrum orðum, enda þótt mjer muni veitast tækifæri til þess að ræða hana nánar við síðari umræðu.
Þetta mál hefir undanfarið vakið allmiklar umræður og áhyggjur meðal manna austanfjalls, enda er hjer mikið í húfi fyrir einstaklinga þá, sem fje eiga geymt í sparisjóðnum. Undanfarið hefir alt staðið fast og enginn náð út einum eyri af fje sínu. Hefir nokkuð bólað á því, að menn hafi braskað með sparisjóðsbækurnar, og þær gengið kaupum og sölum. Sje jeg því ekki aðra leið heppilegri en þá, sem í till. felst. Hefir Landsbankinn mikilla hagsmuna að gæta þarna eystra, og teldi jeg því mjög heppilegt og viðeigandi, að hann tæki að sjer sparisjóðinn, enda vænti jeg þess, að það verði, þegar til kastanna kemur, engin fyrirstaða á því frá hans hendi.