01.05.1924
Efri deild: 59. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í D-deild Alþingistíðinda. (2981)

143. mál, Landspítalamálið

Sigurður Eggerz:

Jeg vil leyfa mjer að vekja athygli hv. deildar á því, að undanfarandi stjórnir hafa sýnt landsspítalamálinu fullan skilning. Má í því sambandi benda á það, að keypt hefir verið lóð undir væntanlegan spítala, og í dýrtíðarvinnu fyrir nokkrum árum ljet stjórnin vinna að undirbúningi byggingarinnar. Þá var og á sínum tíma skipuð nefnd til þess að rannsaka málið og gera kostnaðaráætlun um bygginguna og undirbúa hana á annan hátt. Einasta ástæðan fyrir því, að byggingunum hefir ekki verið hrundið í framkvæmd, er fjárskortur.

Jeg hefi altaf viðurkent hinn mikla áhuga hv. 6. landsk. (IHB), og íslensku kvenþjóðarinnar yfirleitt, fyrir máli þessu og vil enn undirstrika þá viðurkenningu.

En hinsvegar tel jeg viðurhlutamikið, að till. þessari verði ráðið til lykta áður en hæstv. stjórn hefir látið uppi, hvort hún treysti sjer til að láta framkvæma hana, sjerstaklega 2. lið.

Ástæðan til þess, að jeg minnist á þetta, er sú, að fyrverandi stjórn hefir gefið loforð um, að framhald Kleppsbyggingarinnar skuli sitja fyrir öðrum byggingum, sem landið láti framkvæma.

Í fyrra lofaði stjórnin hæstv. forseta þessarar deildar því, að haldið skyldi áfram með Kleppsspítalann á síðasta ári, en því miður var það engan veginn fært, þegar til kom, og enda var hugsunin altaf sú að fullgera þá byggingu á 2 árum, í viðbót við það, sem þegar hefir verið unnið.

Jeg vildi leyfa mjer að vekja athygli hæstv. stjórnar á þessu loforði fyrverandi stjórnar, og auk þess vildi jeg, áður en jeg greiði atkvæði um till. þessa, spyrjast fyrir um það hjá hæstv. stjórn, hvort hún muni sjá sjer fært að leggja fram það fje til landsspítalabyggingar, sem 2. liður till. gerir ráð fyrir.