01.05.1924
Efri deild: 59. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í D-deild Alþingistíðinda. (2983)
143. mál, Landspítalamálið
Jónas Jónsson:
Jeg vil leyfa mjer að bæta nokkrum orðum við ræðu hv. 6. landsk. (IHB). Í fyrra var samþykt hjer í þessari hv. deild þál. um að skora á stjórnina að undirbúa byggingu landsspítalans og láta framkvæma hana mjög fljótlega. Við umr. um þá till. litu þm. á málið út frá þeim grundvelli, sem þá var lagður fyrir þá með þeim teikningum, sem fyrir lágu af væntanlegum landsspítala. Eftir þeim teikningum var gert ráð fyrir því, að bygt yrði ákaflega stórt hús, sem hefði hlotið að kosta einar 3 milj. kr., en auk þess hefði starfræksla þess spítala orðið landinu óhæfilega dýr, t. d. myndi upphitun með kolum ekki hafa orðið undir 70 þús. kr. árlega, miðað við þáverandi kolaverð, sem hefir reyndar ekki lækkað síðan, og enda ósjeð, hvort það lækki nokkuð í tíð núlifandi kynslóðar.
Þá tók jeg það fram, að mjer þætti aðallega tvent við mál þetta að athuga, eins og það þá var fram borið. Fyrst var það, hversu byggingin yrði afardýr, samkv. þeim teikningum, sem þá lágu fyrir. En þó að ríkissjóði kynni að takast að kljúfa byggingarkostnaðinn, þá væri hitt engu síður athugavert, hversu rekstrarkostnaður spítalans hlyti að keyra fram úr hófi og verða ríkissjóði um megn.
Og jeg er hræddur um, að þessar stóru teikningar og afarháu kostnaðaráætlanir, sem lágu fyrir þinginu í fyrra, hafi gert marga þm. skelkaða við málið. Þeir urðu hræddir um, að ríkissjóður yrði þess aldrei máttugur að reisa og kosta landsspítala. Jeg hjelt því fram þá eins og nú, að eitt höfuðatriði þessa spítalamáls væri það, að hægt yrði að nota hið heita uppsprettuvatn hjer í Laugunum til þess að hita upp væntanlegan landsspítala, og jafnvel til annara þarfa hans. Við það yrði rekstrarkostaður allur mun minni. Ennfremur var jeg þeirrar skoðunar, að ef nokkuð ætti að verða úr byggingu spítalans í fyrirsjáanlegri framtíð, þá yrði að breyta fyrirkomulagi hans frá því, sem gert var ráð fyrir þá, og hafa hann minni, að minsta kosti í byrjun, jafnvel þó að læknum landsins þætti það miður. Jeg þóttist sjá, að ef siglt yrði með svo fullum seglum sem gert var þá, yrði það einungis til þess, að við fengjum engan spítala fyrst um sinn, vegna þess eins, að ríkissjóður gæti ekki komið honum upp, og því síður starfrækt hann.
Með till. þeirri, sem hjer liggur fyrir, virðist vera fundinn grundvöllur, sem gerði það kleift að ráða fram úr þessu spítalabyggingarmáli á viðunandi hátt, ef þjóðinni er nokkur alvara að koma sjer upp landsspítala.
Þessi till. er flutt í samráði við tvo þeirra manna, sem mest hafa fengist við rannsóknir og kostnaðaráætlanir í þessu máli, þá húsameistara ríkisins og prófessor Guðmund Hannesson, og ennfremur hefir einn hinn frægasti læknir landsins, prófessor Guðm. Magnússon, fallist á till.
Í till. er aðeins farið fram á það, að fyrst um sinn verði aðeins bygður nokkur hluti væntanlegs spítala, en þó þannig, að hann megi strax koma að notum út af fyrir sig, en síðan á að halda áfram og bæta við bygginguna, eftir því sem fjárhagur landsins leyfi.
Það gleður mig, að hæstv. fjrh. (JÞ) hefir lýst því yfir, að hæstv. stjórn ætli sjer að verða við þeim tilmælum till. að láta leggja nýjan grundvöll að byggingu spítalans, með því að fá nýjar teikningar af minna húsi en menn hafa áður hugsað sjer. Þetta er fyrsta sporið í áttina.
Aftur á móti líkaði mjer ekki, hvernig hæstv. ráðherra (JÞ) tók undir 2. lið till., því að jeg fæ ekki betur sjeð en að ráðgerðum framlögum úr ríkissjóði sje þar mjög í hóf stilt. Eftir því að dæma, sem hv. meðflm. minn (IHB) hefir sagt, þá er ástæða til að ætla, að landsspítalasjóðurinn muni hjálpa málinu áfram, eins og ráð er gert fyrir í till., og verð jeg þá að. segja, að ekki er til mikils mælst, þó að landið legði fram árlega í 4 ár 75–100 þús. kr. til byggingar landsspítalans, þegar því er kleift að leggja einstökum kaupstöðum, eins og t. d. Ísafirði, til 25 þús. kr., til þess að koma upp sjúkrahúsi. Það er ekki svo að skilja, að jeg sje að amast við þessari styrkveitingu til Ísafjarðarkaupstaðar. Jeg hefi greitt henni atkv., af því að mjer virtust góð rök mæla með henni; en mjer finst það líka of mikil svartsýni, að ríkissjóður geti engan veginn lagt fram 75–100 þús. kr. á ári til þess að koma upp spítala, sem ekki á að kosta meira en Landsbankahúsið kostaði, en þar sem þó eiga að vera rúm fyrir yfir 60 sjúklinga, að því er áætlað er, og þar sem um leið er bætt úr hinni brýnu þörf læknadeildar háskólans.
Jeg álít, að það verði ekki nógsamlega þakkað, ef stjórn landsspítalasjóðsins treystir sjer til að leggja fram til þeirrar spítalabyggingar, sem till. gerir ráð fyrir, 75 þús. kr. árlega í 4 ár, og er því þess að vænta, að sú bygging komist upp á 4 árum. Og þetta er án efa hægt að framkvæma, ef þingi og stjórn er alvara að hrinda landsspítalamálinu í framkvæmd.
Þá er 3. liður till. Mjer þykir slæmt, að hæstv. forsrh. (JM) er ekki við, því þetta mál varðar hann. En jeg vil þó taka það fram, að það er margra manna mál, að svo framarlega sem hægt væri að láta spítalann verða aðnjótandi heita vatnsins í Laugunum, þá muni hann geta orðið tiltölulega mjög ódýr í rekstri. Og mjer finst, að það ætti að vera auðvelt að komast að samningum við bæinn um þetta atriði. Bærinn ætti að sjá sjer hag í því að stuðla þannig að því, að landsspítalinn komist sem fyrst upp, því vitanlega mundi Reykjavík græða mjög mikið á því, ef hjer væri bygður nýr spítali.
Það er nálega óhugsandi, að Reykjavík neitaði um þetta, því það er svo víða úti um land, að hjeruð kosta spítala sína sjálf að miklu leyti, en hjer á að byggja stóran spítala aðallega fyrir Reykjavík, að öllu leyti á landsins kostnað, en Reykjavík á aðeins að leggja til þennan náttúruauð, sem hún á fólginn í Laugunum. Mjer finst því, að það væri mjög ósanngjarnt af bæjarstjórninni, ef hún neitaði um það. Og jeg skal taka það fram, að jeg veit, að bæjarfulltrúarnir eru sumir með þessu. En jeg veit hinsvegar, að borgarstjóri vill láta leiða heita vatnið úr Laugunum til barnaskóla, sem hann vill láta byggja austan við bæinn, og nota það til upphitunar í skólanum, og einnig til notkunar við væntanlega sundstöð.
En þegar um það er rætt, hvort heldur barnaskóli Reykjavíkur eða landsspítalinn eigi að fá að nota þessu guðs gjöf, sem heita vatnið í Laugunum er, þá er enginn vafi á því, að landsspítalinn eigi að ganga fyrir, því barnaskólinn starfar þó ekki nema 6–7 mánuði af árinu, en spítalinn allan ársins hring.
Jeg undirstrika það, sem hv. 6. landsk. (IHB) sagði, að húsameistari ríkisins hefir sagt, að svona bygging mundi verða mjög ódýr nú. Hann hefir sagt um Ísafjarðarspítalann, að vegna kreppunnar væri hægt að fá alveg ótrúlega lágt tilboð um byggingu hans nú. Og jeg vil árjetta það, sem hv. meðflm. minn (IHB) sagði, að með samkomulagi við landsspítalasjóðinn og minkun hússins, og með því að fá til afnota heita vatnið í Laugunum, er hægt að byggja landsspítala á næstu árum, ef það annars nokkurntíma er mögulegt, og það er yfirleitt ómögulegt að segja, að ríkissjóði sje það ofvaxið. Kjörin hjá landsspítalasjóðnum eru svo góð, að það er algerlega ómögulegt að fá ódýrara lán. Annars er það aðalatriðið með þessa byggingu, eins og aðrar, að gera hana svo úr garði, að reksturinn verði ódýr, en það verður hann með því að nota heita vatnið úr Laugunum. Það væri því alveg óafsakanlegt af hv. deild, eða hæstv. stjórn, að tefja fyrir þessu máli nú, einmitt þegar stendur sjerstaklega vel á með að koma því í framkvæmd.
Að því er notkun heita vatnsins snertir, þá er með því sparað miklu meira en því svarar, sem þarf til eldiviðar. Það sparast líka mjög mikil vinna. Þeir menn, sem hafa yfir húsum að ráða, sem eru með stórum miðstöðvum, eins og t. d. skólameistarinn á Akureyri, segja, að það þurfi feikna vinnu við miðstöðina. Skólameistarinn á Akureyri segir, að ef svo óheppilega vildi til, sem menn vona að verði ekki, að skólahúsið brynni, þá vildi hann láta byggja skólann upp aftur á hverajörð einni í Eyjafirði, til þess að geta hitað hann upp með heitu vatni og sparað landinu með því stórfje árlega.
Jeg hefi nú orðið nokkuð fjölorður um þetta, og er það sökum þess, að mjer hefir fundist hæstv. fjrh. (JÞ) gefa þessu atriði alt of lítinn gaum.