30.04.1924
Neðri deild: 59. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1058 í B-deild Alþingistíðinda. (301)

1. mál, fjárlög 1925

Bjarni Jónsson:

Jeg vil minna menn á það, að í ræðu minni í gær var jeg meinlaus að því leyti, að jeg beindi ekki skeytum mínum til nokkurs manns. Jeg fann að því, hvernig niðurstaðan er orðin af þeim góða vilja, sem þessir ágætu menn hefðu komið með til þingsins; en jeg beindi því ekki að neinum sjerstökum, enda veit jeg ekki, hvernig hver þingmaður hefir greitt atkvæði um hin og þessi mál, þar sem jeg hefi verið fjarstaddur. En jeg sje niðurstöðuna. Fjárveitinganefnd nefndi jeg ekki, en hjer má ef til vill segja máltækið: Veit hundur hvað jetið hefir. Varð jeg hissa á, hvað mikilli reiði hv. frsm. (ÞórJ) hefir safnað við mig. Hann hefir bókstaflega borið á mig lygi og annað þvílíkt. Hann hefir verið að segja frá því, hvað jeg hafi talað við hann fyrir mörgum árum, og það á þann hátt, sem ekki er vant að gera á opinberum mannfundum eða þjóðþingum. Þetta hefir mjer komið undarlega fyrir, með því að jeg hefi ekki unnið til þesskonar hluta. En mest verð jeg hissa, þegar jeg sje, að hv. fjvn. hefir orðið svo reið við mig, að hún leggur á móti alveg sjálfsagðri lánbeiðni handa sjúkum manni. Þó ekki sje ugglaust um, að honum batni, er þó von um að stöðva sjúkdóminn á því stigi sem er. Þegar hv. fjvn. finnur upp á að láta frsm. sinn segja, að þetta lán megi fá í hvaða peningastofnun sem er, þá verð jeg að segja, að hún er ekki vönd að sínum sannleika. Það vita allir á þessu landi, að það er ekki hægt að fá þesskonar lán í nokkurri peningastofnun hjer á landi. Það er frágangssök. Þeir um það, hvort þeir vilja láta saklausan mann gjalda mín, en jeg býst ekki við, að allir hv. þm. geri það.

Þá vil jeg minnast á styrkinn til Þórdísar Ólafsdóttur. Hún fjekk styrk fyrir nokkrum árum og var hv. fjvn. falið að bera hann fram. En hann var feldur á síðasta ári, og þess vegna hefir hún ekki unnið að þessu starfi í ár. En fyrir það ár, sem hún hafði styrkinn, hefir þing og stjórn haft skýrslu, og gæti hv. frsm. kynt sjer hana. Vona jeg, að að því athuguðu sjái nefndin ekkert á móti því að fallast á styrkinn.

Hv. frsm. mintist á, að jeg hefði talað um marga liði, þar sem brigðmælgi hefði komið fram af þingsins hálfu. Reyndi hann að hrekja staðhæfingu mína, en gat það ekki. Þinginu er sem sje skylt að standa við þá samninga, sem stjórnin gerir. Þegar stjórnin hefir samið við einstakan mann, þá eiga þeir samningar að standa. Þannig var samið við dr. Alexander Jóhannesson. Hann afsalaði sjer launuðu starfi og tók að sjer kenslu í málfræði við háskólann upp á sömu launakjör og dósentar, að hann fengi sömu aldursuppbót og dýrtíðaruppbót eins og þeir. Þetta er samningur, sem á að standa þangað til hann hefir brotið hann af sjer. Það er áreiðanlegt, að væri leitað um þetta til dómstóla í því landi, sem dómstólar eru, mundi landið verða dæmt til að standa við sinn samning. Annars gat hv. frsm. ekki hrakið neitt af þessu. En hann fór að tala um sýslumanninn í Borgarnesi; jeg hafði ekki nefnt, að verið væri að svíkja hann. Jeg vissi, að nefndin gekk út frá 2% lægri vöxtum hjá honum en alment gerist, þó að jeg myndi ekki hvort það voru 5 eða 6%.

Jeg get bent á fleiri dæmi um, að þingið hafi brugðist gefnum loforðum. Fyrir nokkru samdi eitt þingið við smið hjer í bænum, sem var launaður eftirlitsmaður við byggingar hjá bæjarstjórn, samdi við hann um að taka að sjer aðstoðarstörf hjá húsameistara ríkisins og veitti honum 7 þús. kr. í laun. Þessir samningar voru sviknir strax á næsta ári.

Í fjárlögum var það ákveðið fyrir nokkrum árum, að Árni Th. Pjetursson skyldi fá 500 kr. (árlega) þangað til stjórnin veitti honum jafngott starf og hann hafði áður. Nú er samþykt að breyta þessu. Þó er það loforð Alþingis prentað í sjálfum fjárlögunum.

Þá kem jeg að þeirri speki hv. frsm., að þingið geti ómögulega skuldbundið sig nema eitt ár í senn. Hvernig stendur á því, að við keyptum handrit Jónasar heitins Jónssonar dyravarðar og ákváðum fyrstu afborgun, aðra og þriðju? Engum manni datt í hug að svíkja um afborganir. (Frsm. ÞórJ: Þetta var ákveðið alt í sama skifti). Nú er verið að kaupa handrit frá Jóni Jónssyni sagnfræðingi, einn hluta þetta ár og annan hluta hitt árið o. s. frv. Áreiðanlega skuldbindur þingið sig til útborgana í framtíðinni, enda eru ekki dæmi til þess, að nokkur, sem kemst inn í 18. gr. fjárlaganna, hafi verið tekinn burtu þaðan nema dauðinn hafi tekið hann. Þar ákveður eitt þing mönnum æfilanga fjárveiting.

Jeg hefi sýnt fram á, að þegar þingið hefir gefið ákveðin loforð, er því skylt að efna þau; enginn dómstóll í heimi — nema ef til vill hjer — myndi vera svo sljóskygn að dæma á annan veg. Við erum ekki hjer til að játa, að alt sje rjett, sem dæmt er; hver má hafa sína skoðun. (TrÞ: Er verið að ráðast á hæstarjett?). Jeg er ekki að tala um neinn rjett. Hefir nokkur heyrt mig nefna nokkurn rjett? Jeg var ekki að tala um rjett, jeg var að tala um órjett. (TrÞ: Hv. þm. sagði, að hvergi nema hjer yrðu dæmdir svo vitlausir dómar). Ef til vill, sagði jeg; hvort það verður gert, getur hv. þm. sagt sjer sjálfur.

Hv. frsm. hefir ekki hrakið neitt af því, sem jeg hefi sagt um brigðmælgi frá þingsins hálfu, að hún hefir þrásinnis átt sjer stað. Jeg þekki engan hættulegri blett á nokkru löggjafarþingi en þann, að ganga á bak orða sinna og gefa öðrum það fordæmi. Jeg gleymdi í gær að geta þess atriðis, sem helst mætti benda öðrum þjóðum á, hvaða aumingjar hjer væru að verki, og það er sendiherramálið. Þingið vill leggja niður okkar eina sendiherra fyrir nokkrar þúsundir, sem þó er óvíst, að sje hægt að spara við þetta.

Þó hv. frsm. vilji bera brigður á það, sem jeg sagði um veðurathuganirnar, þá kemst hann ekki upp með það. Það er ósatt, að veðurspárnar sjeu svo óákveðnar, að þær geti ekki orðið til hjálpar. Það hefir hv. þm. fengið úr sinni eigin smiðju. Í mörgum löndum koma þær að ágætum notum, og svo mun verða hjer á landi, þegar hin væntanlega stöð kemst upp. Hann reiknar þá ekki meira vert að bjarga mannslífum. (BL: Það getur eins orðið öfugt). Þetta kann auðvitað að vera, ef veðurspáin er skökk. Jeg lít á þetta sem öryggisráðstöfun, sem leiði ávalt til góðs. Þegar kona Gísla Súrssonar barði manninn niður með lurk, álitu margir það Gísla til skaða, en þó mætti ekki setja þá reglu, að það væri altaf til skaða.

Þá var eitt, sem hv. frsm. hjelt fram, að jeg hefði ekki talað af einlægni, þegar jeg taldi þessa upphæð smávægilega. Jeg get fullvissað hann um, að svo var. Þeim góðu herrum, sem fara með fjármálin, þyrfti að fara að skiljast það, að fjárhagurinn verður ekki bættur með eintómri þröngsýni, með því að grína í aurana, en gleyma þúsundunum. Hitt gat hv. frsm. ekki sagt nema með vondri samvisku, að jeg hefði aldrei verið viðstaddur. Jeg var viðstaddur í byrjun þings. Þá hjelt jeg ræðu um fjármálin og benti á, hvert skyldi halda, og hv. þm. var frjálst að fara eftir því, hefðu þeir viljað. Hv. frsm. getur sjálfsagt reiknað það út, að jeg, 1/28 hluti deildarinnar, mundi ekki hafa ráðið um niðurstöðu allra mála. Það sagði hann rjettilega, að ríkissjóður væri fyrir þjóðina, en þjóðin ekki fyrir ríkissjóð. Aðeins að hann hefði í tillögum sínum fylgt þessu fram og munað, að ríkissjóður var þjóðarinnar eign, sparisjóður hennar eða banki, sem hún getur notað þar, sem aðrar peningastofnanir komast ekki að eða eru ekki nógu greiðviknar. Lánsstofnanirnar verða auðvitað að fara eftir vissum reglum um lán sín. En sjóður þjóðarinnar getur lagt fram fje, lánað það eða gefið, eftir vild. En að ríkissjóður sje sjóður þjóðarinnar, virðist hvorki hv. fjvn. nje hv. deild hafa gert sjer ljóst. En það á að sálga þjóðinni til þess að koma upp sjóðnum, eins og þjóðin væri til fyrir hann, en hann ekki fyrir þjóðina. Hjer er verið að draga úr framleiðslu landsins til þess að auka sjóðinn, í stað þess að efla framleiðsluna, því að með því móti bætist hagur þjóðarinnar mest. Það er vafalaust gott að eiga sjóð. Og hann gæti orðið mikill, ef hann yrði lagður á vexti og þjóðin gæti beðið eftir því í langan tíma að mega skerða hann. En jeg hygg, að viturlegri sje sú leið, að verja því fje, sem til er, til þess að efla með framleiðsluna, og þar með afkomu alþjóðar.

Hv. frsm. mintist á styrkinn til stúdenta. Hann gat þess, að það hefði ekki verið ætlun nefndarinnar að lækka hann, en engu að síður hefir hún lækkað hann um helming. Vildi hv. nefnd skipa öðrum sjóði, sem Alþingi hefir ekkert vald yfir, að leggja jafnmikið af mörkum til stúdentanna. Hv. frsm. sagði margt kynlegt í því sambandi. Hann sagði meðal annars, að það væri hægt að neyða háskólaráðið til þess að leggja fram helming fjárins. Ennfremur hjelt hv. frsm. því fram, að samkvæmt reglugerð sáttmálasjóðsins væri það meðal annars verkefni hans að styrkja íslenska stúdenta. En í reglugerðinni er hvergi talað um stúdenta sjerstaklega, heldur námsmenn yfirleitt. Stúdentar eru að vísu námsmenn, en það eru einnig allir aðrir, er nám stunda. Og háskólaráðið ákvað að láta ekki aðra fá styrk úr sjóðnum en þá, er hefðu lokið kandídatsprófi hjer og vildu fara utan til framhaldsnáms. Sjóðurinn er ekki stærri en það, að hann getur ekki tekið að sjer stúdenta alment, auk þessara kandídata og annara, sem hann samkvæmt reglugerðinni verður að sjá um. Má þar til dæmis nefna útgáfu vísindarita. Verði stúdentum veittur styrkur úr sjóðnum, þá yrði að hætta slíkri útgáfu. Og það er enginn vafi á því, að leggi sjóðurinn fram þennan helming styrksins til stúdenta nú, þá verður hann látinn leggja fram báða helminga næst. Eftir því, sem hv. frsm. og þeir, sem honum fylgja um þetta mál, hafa talað, þá er enginn vafi á því, að það getur orðið verra fyrir háskólann að hafa þennan sjóð heldur en engan. Og það er einnig verra fyrir stúdenta, því að það verður til þess eins, að styrkurinn til þeirra lækkar. Þar sem landssjóður er til vegna þjóðarinnar, þá er ekki nema sjálfsagt og eðlilegt, að þeir fái styrk úr honum, því að þeir eru brot af þjóðinni engu síður en aðrir, og feður þeirra og mæður eru það líka og hafa lagt sinn skerf í þennan sjóð og eru kjósendur; og það verða þessir stúdentar einnig á sínum tíma.

Hv. frsm. sagði, að háskólasjóðurinn greiddi kennurum skólans ritlaun fyrir þær bækur, er þeir rita, en svo er ekki. Hann veitir aðeins styrk til útgáfu vísindarita kennaranna, en greiðir engin ritlaun. Væri gaman að vita, hvaða tilberi hefir veitt hv. frsm. þessa fræðslu. Flestir þeir styrkir, sem veittir hafa verið úr sjóðnum til bókaútgáfu, hafa verið svo litlir, að þeir, sem hafa fengið styrk, hafa orðið að bæta við hann úr vasa sjálfs sín og hafa ekki fengið það endurgreitt, nema ef um alþýðlegar bækur hefir verið að ræða. Þá hafa þeir fengið l/20 hluta eða svo. Þó segir hv. frsm., að þeir teygi að óþörfu úr ritgerðunum til þess að fá sem mest fyrir þær. Þó að jeg ef til vill verði rengdur í þessu, sökum þess að jeg starfa við skólann, þá skal jeg taka það fram, að jeg er ekki háskólinn, en hefi leyft mjer að tala um þetta sökum þess, að það er enginn hjer viðstaddur af hlutaðeigandi mönnum til þess að bera blak af háskólanum. Er það hart, að hv. frsm. skuli leyfa sjer, hjer á hinu háa Alþingi, að bera slík brigsl sem þessi á háskólann. Þess ber einnig að geta, að þessi sjóður er ekki stór, sem sjá má af því, að renturnar eru ekki nema 50 þús. kr. á ári. Hv. frsm. sagði, að við, sem vildum veita fje til vísinda og lista, reyndum þar með að innræta þjóðinni, að sem flestir ættu að ganga þennan veg. En jeg hefi aldrei látið slíka skoðun í ljós, því jeg hefi einmitt um tugi ára varað menn við að ganga þá braut, sem jeg tel versta veg, sem hægt sje að ganga í þessu landi. Er það von að jeg líti svo á, þegar sjálfur háskólinn er svívirtur í umræðum á Alþingi. Og jeg veit, að hver sá maður, er verið hefir í þjónustu þessa lands, ræður engum, hvorki ungum nje gömlum, að ganga þá braut, því það er bæði vanþakklátt og illa launað. Þar sem hv. frsm. leyfir sjer að bera það á borð fyrir menn, að jeg hafi gert lítið úr viti og skilningi bænda, þá eru það ósannindi, því jeg er kunnur að því um tugi ára að hafa haldið því fram í stúdentahóp, að bændur beri meira skyn á skáldskap en við hinir svonefndu lærðu menn, og við það þori jeg enn þá að standa, hvernig sem bændur hjer á þingi reynast. Þá hneykslaði það hv. frsm. mjög, að jeg hjelt því fram, að það væri ilt fyrir stúdenta að skulda mikið að námi loknu. Jeg held því þó fram ennþá, að sje vont fyrir menn að koma með 6–7 þús. kr. skuld á bakinu frá prófborðinu, og eiga svo að þjóna landinu, sem vanþakkar alt og launar illa. Þá sagði hv. frsm. sögu af sjálfum mjer. (Frsm. ÞórJ: Jeg ætlaði ekki að meiða hv. þm. með þeirri sögu. Það er rjeft, mjer gramdist heldur ekki saga hans. En úr því farið var að minnast á þetta, þá skal jeg taka það sem dæmi máli mínu til stuðnings, að þegar jeg varð kandídat, þá skuldaði jeg svipaða upphæð og jeg mintist á áðan, sem sje 6–7 þús. kr., og loksins eftir 24 ár varð jeg að greiða síðustu skuldina með nýju láni. Og menn skulu ekki ætla, að þetta hafi verið vaxtalaust öll þessi ár og hafi ekki verið mjer byrði, þó að jeg ef til vill hafi borið það betur en margur annar. Enda hefi jeg átt betra með það en margir, því fáir hafa verið vinsælli en jeg, enda þótt jeg hafi oft verið stórorður hjer á þingi.

Þá mintist hv. frsm. á styrkinn til listamanna. Í því sambandi vil jeg taka það fram, að ekki má blanda saman fjárveitingu til þess að kaupa listaverk og námsstyrk. Því fullnuma listamenn á að styrkja með því að kaupa af þeim verk þeirra, en þá, sem eru að læra, á að styrkja til náms, því að þeir eiga ekki minni heimtingu á námsstyrk en þeir, sem geta gengið í alla skóla landsins og notið þar kenslu endurgjaldslaust. Vona jeg því, að till. mínar um listastyrk verði samþyktar og að hv. frsm. greiði þeim atkvæði. Jeg ætla mjer ekki að tala jafnlengi og hv. frsm., enda hefi jeg ekki eins mörgu að svara sem hann, og jeg get ennfremur slept að svara mörgu, sem hann sagði í reiði sinni.

Hv. nefnd hefir lagt það til, að styrkur til hjúkrunarnáms verði feldur niður, en jeg vænti þess, að hv. nefnd taki aftur þá till. sína, er hún hefir heyrt, hvernig á stendur. Hjer er ekki um utanfararstyrk að ræða, heldur aðeins lítinn styrk til hjúkrunarkvenna, sem lokið hafa námi hjer, en eiga um tíma að ganga í sjúkrahús til þess sjerstaklega að læra meðferð á tæringarsjúklingum. Er styrkur þessi aðallega ætlaður hjúkrunarkonum, sem dvelja til sveita, og er ekki nema sanngjarnt að veita hann, þegar þess er gætt, að hjúkrunarkonur þessar fá ekkert kaup meðan þær dvelja í sjúkrahúsunum. En erlendis fá slíkir lærlingar húsnæði, mat og kenslu ókeypis, og jafnvel eitthvert kaup. Jeg skal taka það fram, að einn af merkustu læknum landsins bað mig um að tjá hv. þm. þetta, og vænti jeg, að hv. fjvn. haldi ekki till. sinni til streitu, er hún hefir heyrt boðskap þennan.

Jeg vil geta þess, að þó jeg hafi borið fram till. um stúdentastyrkinn eftir beiðni og í nafni háskólaráðsins, þá geri jeg það einnig af sannfæringu minni, því jeg veit, að hjer er satt og rjett skýrt frá að því er snertir háskólasjóðinn.

Jeg gæti sagt ýmislegt um aðrar brtt. hv. nefndar, en jeg hirði ekki um að vera að karpa við hv. frsm. um þær. Jeg vona, að jeg hafi ekki meitt hv. frsm. í orðum mínum. Það er þó eitt atriði, sem jeg vildi minnast á, og það er styrkurinn til Jóhannesar Lynge Jóhannssonar. Hv. frsm. sagði það í gær, að maður þessi væri ekki fær um að inna þetta starf af hendi, sem hann hefir unnið að undanfarið og notið styrksins fyrir. Hygg jeg vafasamt, að hv. frsm. geti talað um þetta, og hlýtur hann því að hafa þetta eftir öðrum. Jeg bið því hv. þingmenn að virða þessi orð hv. frsm. að vettugi, þar til hann hefir nefnt heimildarmann sinn, og væri gott, að hann gerði það, svo hægt væri að ná í þann sannleikspostula, svo honum líðist ekki að rægja þannig saklausa menn. Það má segja um hann eins og skáldið segir:

Þjer má vera þungleikið,

þegn, í tuski hörðu.

Stærri höfum stykkjum við

steypt á bera jörðu.

Það hefir verið brotin höggormstönnin úr þeim, sem meinlausari hafa verið en þessi rógberi.