10.04.1924
Neðri deild: 47. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í D-deild Alþingistíðinda. (3017)
128. mál, yfirskoðunarmenn landsreikningsins
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg skil ekki vel, hversvegna hv. 2. þm. Árn. (JörB) finnur ástæðu til að hreyfa þessu baðlyfjamáli nú, og jeg veit ekki, hvaðan hann hefir þær upplýsingar, sem hann gaf. (JörB: Frá hv. 2. þm Rang. (KlJ)). Það eru ekki mjer vitanlega til önnur baðlyf en þau, er liggja hjá sýslumönnum til þess að láta af hendi, ef kláði kemur upp einhversstaðar. Er svo á þetta litið, að sýslumenn sjeu skyldir til að geyma þessa vel, ef á því kynni að þurfa að halda. Áður voru tóbaksblöð notuð til þessa, en nú er notað „kreolin“, og er að vísu nokkuð vandfarnara með það, því að það verður að gæta þess fyrir frosti, en jeg hygg, að það sje ekki ástæða til þess að benda sýslumönnum sjerstaklega á þetta, því þetta er tekið fram í notkunarreglunum og stendur auk þess á umbúðunum, að lögurinn megi ekki frjósa. En annars er ekki nema sjálfsagt að rannsaka þetta mál, og er mjer ljúft að lofa hv. þm. (JörB) að gera það.