30.04.1924
Neðri deild: 59. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1079 í B-deild Alþingistíðinda. (305)
1. mál, fjárlög 1925
Pjetur Þórðarson:
Jeg gleymdi því þegar jeg gerði aths. í dag að tala um aðra brtt. á þskj. 462. Það er síðasta till. fjvn. og er þess efnis að fella niður einn lið, sem hv. Ed. setti inn í fjárlagafrv., um vaxtakjör af láni til Guðmundar Björnssonar sýslumanns í Borgarnesi. Það hefir verið talað um það hjer við þessa umræðu, að þessi maður hafði gert sjer vonir um það að fá einhverja lækkun á vöxtunum af þessu láni og bygt þá von sína á ummælum fjárveitinganefndar, þegar um þetta lán var samið. Jeg skal ekkert um það segja, hvort þessar vonir hafa verið bygðar á rjettmætum ástæðum eða ekki, enda mun litlu máli skifta, hvernig á það er litið. En mjer finst þessi till. hv. Ed. eiga mikinn rjett á sjer og öll sanngirni mæla með því, að hún fái að standa, því eins og kunnugt er, fjekk þessi maður 60 þús. kr. lán úr viðlagasjóði til þess að byggja sjer hús, er hann varð húsnæðislaus eftir brunann í Borgarnesi 1920. Vitanlega voru vextir þá háir, enda gert ráð fyrir því, að þeir yrðu háir, miðað við það, sem venja er um slík lán. Nú hafa bankavextir hækkað í svipað horf og þegar um þetta lán var samið í fyrstu, og sýnist ekki nema sanngjarnt, að þessi liður fái að standa, þar sem ekki er farið fram á meira en að vextirnir verði 2% lægri en bankaútlánsvextir. Fari svo, að vextir lækki á því ári, sem fjárlögin gilda, þá er ekki svo mikil áhætta fyrir ríkið, að ástæða sje til þess að neita þessum manni um vaxtalækkun þess vegna. Jeg held, að það væri miklu frekar ástæða til þess að óska eftir því, að bankavextir lækkuðu, og væri þá ríkissjóður betur settur eftir en áður, hvað sem þessum lið líður. Vildi jeg vekja athygli á þessu, af því að ekki hefir verið minst sjerstaklega á till. fjvn. um að fella niður það; sem hv. Ed. hefir lagt til í þessu efni. Vænti jeg, að hv. deild felli till. hv. fjvn. og lofi liðnum að standa óbreyttum, þar sem ekki er um nema 500–600 kr. að ræða að þessu sinni, og fer lækkandi.
Úr því að jeg er staðinn upp, ætla jeg að svara fáeinum orðum því, sem háttv. frsm. nefndarinnar sagði í minn garð í síðustu ræðu sinni. Var sumt af því rangfærslur og útúrsnúningar, og leyfi jeg mjer að senda til baka þá fullyrðingu, að jeg álíti, að till. hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) um styrk til hjónanna eystra eigi engan rjett á sjer. En þetta sagði jeg aldrei og hitt ekki heldur, að engin till. nema mín ætti rjett á sjer. En nú vill líka svo til, að jeg á hjer enga till., og er það því líka rangfærsla að kalla till. mína till. Þessi till. um styrk til Hítardalshjónanna er frá fjvn. hv. Ed., sem flutti hana með forseta Sþ. í fararbroddi. Auk þess studdu till. forseti Ed., núverandi og fyrverandi forsætisráðherra og svo allir smærri postularnir. Finnist hv. frsm. ekki neins virðandi álit 12 þm. í hv. Ed., þá er ekkert við því að segja, en hann þarf ekki að eigna mjer till. En jeg hefði haldið, að einmitt hv. frsm. metti nokkurs álit þeirra manna, sem studdu málið mest og best í Ed. Annars held jeg, að jeg nenni ekki að vera að elta ólar við hv. frsm, og býst jeg við, að hann hafi haft mesta skemtun sjálfur af ummælum sínum. Og þeirri skemtun vil jeg ekki svifta hann.
Þá er till. hv. 2. þm. Reykv. (JBald) um hækkun á áætlun stimpilgjalds á vörum þeim, sem verðtollslögin ná til. Hefði jeg haft mikla tilhneigingu til að fylgja þeirri till., ef hv. þm. hefði ekki farið eins frekt í sakirnar og farið fram á minni hækkun. Annars hafa bæði háttv. flm. till. og hv. 1. þm. S.-M. tekið fram um hana það, sem um hana þarf að segja.
Ætla jeg svo ekki að lengja frekar umr. um þessar till.