30.04.1924
Neðri deild: 59. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í B-deild Alþingistíðinda. (307)
1. mál, fjárlög 1925
Ágúst Flygenring:
Jeg vildi aðeins gera athugasemd við till. háttv. 2. þm. Reykv. (JBald) um, að styrkur til Eimskipafjelagsins skuli greiðast með hlutabrjefum, sem sjeu forgangshlutabrjef. Virtist mjer hann halda því fram, að sama væri, hvort styrkurinn væri veittur á þennan hátt eða þannig, að ekkert gjald kæmi fyrir. (JBald: Nei, alls ekki). En hv. þm. ætti að vita, að ekki er krafist forgangshluta, nema um sje að ræða hjálp við stofnanir, sem komnar eru að gjaldþroti. En um þetta er alls ekki að ræða, heldur aðeins augnabliksörðugleika, sem meðal annars munu stafa af afborgunum og vöxtum af hollenska láninu. Styrkurinn verður að skoðast sem ívilnun frá landinu fyrir það, að fjelagið siglir á smáhafnir, sem öðrum fjelögum þykir ekki borga sig að láta skip sin koma á. Er auðvitað leiðinlegt, að fjelagið skuli ekki sjá sjer fært að komast af hjálparlaust. En þetta er ekki nema eðlilegt. Strax og fjelagið hafði eignast fyrstu skip sín byrjaði reiptogið milli Norðlendinga og Sunnlendinga, og vildu hvorirtveggja fá skipin inn á hverja smáhöfn. Er því ekki þess að vænta, að fjelagið gæti orðið gróðafyrirtæki og varð ekki við betra búist en að halli yrði ekki rekstrinum. En bæði Bergenska fjelagið og Sameinaða gufuskipafjelagið hafa grætt stórfje. Vita líka allir, að íslensku skipin eru dýrustu skip, sem sigla hjer austur um haf.
Þá er till. hv. sama þm. um 500 þús. kr. til atvinnubóta. Veit jeg, að hv. þm. muni sjá, að slík till. nær ekki nokkurri átt, því að þótt þetta fje væri látið í tje, mundi það ekki bæta hið minsta úr. Fyrir opinbert fje er venjulega unnið eitthvað það, sem alls ekki borgar sig, og benda má t. d. á Öskjuhlíðarfarganið og annað slíkt, sem landið hefir ráðist í. Vil jeg segja, að betra sje að veita fátæku fólki beinan styrk en að leggja út í að láta vinna að framkvæmdum, sem engin skilyrði hafa til að gefa nokkurn arð. Et það aðeins til að halda kaupgjaldi svo háu, að enginn vill leggja hönd á plóginn af einstökum athafnamönnum. Hjer þarf engrar nefndar við og allir vita, af hverju atvinnuleysið stafar, sem annars vilja athuga það. Á sveitirnar þýðir ekki að minnast í þessu sambandi, þar sem það er auðvitað, að sveitabændur geta alls ekki borgað 14 kr. á dag. Atvinnuleysið verður að bæta á skynsamlegan hátt, og það verður ekki bætt með öðru en því, að verkin, sem unnin eru, borgi sig. Það þýðir ekkert að segja þetta kaup vil jeg fá, ef ekki borgar sig að láta vinna fyrir það kaup. Og það er ekki mikið vit í að telja mönnum trú um, að betra sje að fá vinnu einn dag í viku og fá 14 kr. en að hafa vinnu 6 daga vikunnar og fá 50 kr. Það er ekki svo, að þetta verði læknað með peningum einum, heldur verður lækningin að koma og á þann hátt, að breytt verði um skipulag og hugsunarhátt í verkalýðsfjelögunum. En það er einmitt, að hugsunarhætti verkalýðsins hefir verið beint í öfuga átt við það, sem rjett var og sjálf sagt, og er það einmitt þessi hv. þm. (JBald) og aðrir „leiðtogar alþýðu“, sem hafa afvegaleitt verkamennina þannig. Þetta veit hv. þm. sjálfur mjög vel, eins og það einnig er á vitorði alls almennings, enda þótt fáir hafi haft djörfung til að benda leiðtogum verkalýðsins á þennan beiska sannleika. Jeg vildi helst ekki hafa þurft að taka þetta fram, úr því að hv. þm. gaf mjer ástæðu til þess, þá gerði jeg það, ekki síst fyrir þá sök, er hann með eggjandi glotti viðurkennir það, að atvinnuleysið sje ekki af vinnurekendunum einum að kenna; það er alveg rjett hjá hv. þm.; sökin liggur ekki síður hjá hinum málsaðiljanum. Það hefir nýlega verið valdboðið, að verkamönnum skuli greitt hærra kaup, og samtímis er hrópað hátt um það á Alþingi að verja milj. kr. til þess að hækka kaupið. Jeg vildi gjarnan geta átt tal við hv. þm. um þetta. Hjer þarf engrar milliþinganefndar við. Alþingi getur, ef það vill, fyrirskipað þetta.