04.04.1924
Sameinað þing: 3. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í D-deild Alþingistíðinda. (3116)

41. mál, takmörkun nemenda í lærdómsdeild

Flm. (Jónas Jónsson):

Það er orðið nokkuð langt síðan tillaga þessi kom fram, en annir þingsins munu hafa valdið því, að hún hefir ekki verið tekin til umræðu fyr en nú.

Eins og sjá má, er tilætlun mín sú, að ef tillagan nær samþykki hins háa Alþingis, þá verði framvegis færri nemendur í 3 efstu bekkjum mentaskólans en verið hafa nú síðustu árin. Mun jeg færa rök fyrir því, hversvegna jeg tel breytingu þessa æskilega.

Eins og öllum er kunnugt, hefir skólinn til skamms tíma starfað með 6 bekkjum óskiftum. Ef gert er ráð fyrir, að 20 nemendur sjeu í hverjum bekk, þá geta með þessu móti verið alls um 120 nemendur í skólanum.

Nú hefir þetta breyst svo mjög hin síðari árin, að í stað 6 deilda eru komnar 14, og sýnist óhjákvæmilegt, að þær verði 15 innan skamms, ef sama aðsókn að skólanum heldur áfram.

Jeg tók það fram, að áður hefðu allir bekkir skólans verið óskiftir, en nú eru 3 neðstu bekkirnir tvískiftir, eða 6 deildir samtals, 4. og 5. bekkur þrískiftir, eða sömuleiðis 6 deildir, og svo 6. bekkur, sem enn starfar í tveim deildum, en draga mun að því, að honum verði einnig að skifta í 3 deildir, ef bekkir þeir, sem leiða til hans, verða framvegis svo fjölmennir sem þeir nú eru.

Í fyrra kom til mála, að skólinn leigði stofu úti í bæ fyrir eina deild, en það fórst fyrir vegna þess, að heppilegt húsrúm mun ekki hafa fengist.

Nú mætti gera ráð fyrir því, að frí okkar sjónarmiði, sem álítum skóla fremur til bóta, væri gleðilegt að sjá skóla þennan stækka svo mjög. En slíkum vexti skólans fylgja talsverðir annmarkar, og þá sjerstaklega kostnaðarauki fyrir ríkissjóð. Jeg vil leyfa mjer að koma með nokkrar tölur, sem sýna, hvað skóli þessi hefir kostað landið um nokkurt skeið. Jeg ætla að byrja á árinu 1878. Þá var skólinn 6 bekkir og laun fastra kennara 18 þús. kr., en 500 kr. var varið til tímakenslu. Árið 1890 voru föstu kennaralaunin tæp 20 þús. kr., og þá gengu 1100 kr. til aukakenslu. Á þessum 12 árum hafði kostnaðurinn við skólann þannig aukist h. u. b. um 3 þús. Árið 1902 er aðstaðan lítið breytt. Föstu kennaralaunin eru þá 19200 kr., en 1050 kr. voru greiddar fyrir tímakenslu. Þannig hafði kostnaðurinn svo að segja staðið í stað frá því árið 1878, og hjelst enn að mestu óbreyttur fram í stríðsbyrjun. En árið 1916 voru launin orðin samtals um 74 þús. krónur, og síðan hefir allur kostnaðurinn farið síhækkandi. Samkvæmt landsreikningnum árið 1922 voru föst kennaralaun við skólann um 100 þús. kr., og 15 þúsundum var þá varið til tímakenslu, og í fjárlagafrv. stjórnarinnar fyrir árið 1925 eru föst kennaralaun áætluð 79100 kr., en 18000 kr. er fyrirhugað að verja til tímakenslu við skólann. Með öðrum orðum: Kostnaðurinn við skólahaldið hefir vaxið svo, að til tímakenslunnar einnar er áætlað að verja á næsta ári jafnmiklu og öll föst kennaralaun við skólann námu árlega frá 1878 og fram undir stríð.

Það er að vísu fullkomlega eðlilegt í sjálfu sjer, að kostnaður við skólahaldið hlyti að aukast með dýrtíðinni, eins og öll önnur útgjöld ríkissjóðs. En mikið af kostnaðaraukanum liggur í því, að skólinn hefir verið blásinn út eins og harmonikubelgur jafnóðum og aðsóknin hefir aukist og án þess, að nokkuð hafi verið reynt til þess, af hálfu þings eða stjórnar, að taka föstum tökum á aðstreyminu. Eini maðurinn, sem nokkuð hefir reynt að sporna við hinu sívaxandi aðstreymi, er sjálfur rektor skólans. Verður því ekki talin goðgá af mjer, sem þingmanni, að taka í streng með sjálfum skólastjóranum, sem hefir starfað mjög lengi við skólann og allir vita, að ber hag hans mjög fyrir brjósti. Veit jeg, að enginn efast um, að honum gengur ekki annað til en umhyggja fyrir skólanum og nemendum hans. þeim, sem vilja kynnast áliti rektors á þessu máli, vil jeg vísa í ræður hans, þar sem hann jafnvel þrábiður pilta að sækja ekki svo fast að halda þessa braut, og bendir þeim á hina miklu og margvíslegu örðugleika, sem kunni að mæta þeim.

En þar sem skólinn nú samt sem áður hefir vaxið svo mjög, er ekki að undra, þó að kostnaður við hann hafi aukist að mun. Það, sem athugavert er, er að nemendum hans hefir fjölgað svo stórkostlega, að í stað þess, að áður voru þar aðeins 6 deildir, eru þær nú orðnar 14, og sú 15. mun áður en langt um líður bætast við, ef haldið verður áfram að tvískifta neðri deildinni, en þrískifta hinni efri.

Þá kemur það og þessu máli talsvert við, að fjárveitinganefndir þingsins og stjórnin hafa bætt við hverju föstu kennaraembættinu við skólann á fætur öðru, á ólöglegan hátt, eða án þess, að þingið beint samþykti. Jeg hygg, að síðastliðið haust hafi 4 slík embætti verið við skólann, þar sem kennurunum var borgað eins og þeir væru fastir embættismenn samkvæmt launalögunum frá 1919. Og þá var enn einum kennara bætt við nú í haust sem leið, með sömu kjörum, manni, sem að vísu er mjög duglegur kennari, en þó er sá ljóður á þessum ráðstöfunum, að á þennan hátt eru ný embætti stofnuð, án heimildar Alþingis. Enda hefir þessi síðastnefndi kennari nú farið þess á leit við þingið, að embætti hans yrði ekki lagt niður, þar sem honum hefði skilist, að það yrði varanlegt. Það verður því ekki vefengt, að við skólann starfa nú 4 eða 5 kennarar, sem hafa laun fastakennara og önnur sömu embættiskjör, án þess að þingið hafi beint bætt við fastakennaralið skólans. Þetta sýnir best, hversu skólinn hefir vaxið, og altaf hefir verið hlaðið upp nýjum og nýjum embættum við hann, skilyrðislaust, eingöngu eftir því sem aðsóknin hefir aukist.

Sje gert ráð fyrir því, að með þessu fyrirkomulagi verði framvegis 60–70 nemendur í hverjum bekk lærdómsdeildarinnar, þá er ekki of mikið reiknað, að stúdentatalan verði kring um 50 árlega alt hvað frá líður. Mun láta nærri, að þeir verði svo margir þegar á þessu vori, þegar utanskólanemendur bætast í hópinn, og getur viðkoman orðið enn meiri með þeim möguleikum, sem ríkið veitir mönnum nú til þessa náms. Til samanburðar skulum við athuga, hversu margir stúdentar útskrifast hjá Dönum árlega. Það er sú þjóð, sem við höfum mest saman við að sælda og höfum mest lært af. Stúdentaframleiðsla Dana síðustu árin verður þá sem hjer segir: Árið 1916: 868, 1917: 1013, 1918: 996, 1919: 1057, 1920: 1008, 1921: 1028, 1922: 1046.

Nú eru Danir 30 sinnum fjölmennari en við Íslendingar. Ef við margföldum þessa áætluðu stúdentatölu okkar með 30, þá fáum við 1500, eða hlutfallslega um þriðjungi meiri stúdentaframleiðslu hjá okkur en hjá sambandsþjóð okkar, sem þó er, eins og allir vita, mjög mikil menningarþjóð. Líka er aðgætandi, að þessi ár, sem jeg tók til dæmis um stúdentafjölda Dana, óx stúdentatalan þar mjög, vegna þess, að það voru sannkölluð veltiár fyrir þjóðina. þriðja stríðsárið, 1916, sáum við, að viðkoman hjá þeim var 868, og fer þá að láta nærri, að viðkoman hjá okkur verði um helmingi meiri hlutfallslega en hjá Dönum fyrir stríð og í byrjun stríðsins.

Jeg þykist nú hafa leitt rök að þessu tvennu: Kostnaður við skóla þennan hefir aukist gífurlega hin síðustu árin, og stúdentaframleiðsla okkar er tiltölulega mjög mikil, borið saman við aðra, óvenjuvel mentaða þjóð, sem þar að auki hefir mun betri skilyrði til þess að fjölga stúdentum sínum. Ef teknar eru tvær höfuðorsakir þess, að menn taka stúdentspróf: að þeir ætla sjer að verða embættismenn, eða hitt, að þeir vilja helga sig vísindastarfsemi, þá blandast engum hugur um, að Danir geta tekið við tiltölulega fleiri stúdentum en við, í þessu skyni. Þeir hafa betri efni á að halda marga embættismenn, og sjerstaklega er þeim miklu hægara að styrkja allskonar vísindastarfsemi. Veldur því stærð og efnahagur þjóðarinnar. Og ef við komum að hinum, sem taka stúdentspróf, ekki til þess að verða embættismenn, og ekki heldur til að leggja sjerstaklega stund á vísindastarfsemi, heldur til hins, að fá almenna mentun, til þess að verða betur færir um að taka þátt í lífsbaráttunni sem sjálfstæðir atvinnurekendur, þá er aðstaða Dana einnig betri að þessu leyti en okkar.

Margir þeir, sem eiga von á að erfa fje, eða hafa að öðru leyti efni á því, vilja gjarnan fá háskólamentun, en lifa síðan á efnum sínum eða sem sjálfstæðir atvinnurekendur. Slíkir menn eru afarfáir hjer, borið saman við önnur lönd. Hjer eru það hreinar undantekningar, ef menn hafa efni á dýru 12 ára námi, aðeins til að auka þekkingu sína, en ekki beinlínis til þess að búa sig undir ákveðið lífsstarf.

Þá má ekki gleyma einum meginágalla á allri „akademiskri“ mentun hjer hjá okkur.

Ef við berum t. d. enska skóla, sem leggja engu síður kapp á að veita mönnum líkamlegt en andlegt uppeldi, saman við íslenska eða danska skóla, þá er þar ólíku saman að jafna. Eins og kunnugt er, eru háskólagengnir menn í Englandi að sama skapi betur færir um alt líkamlegt erfiði sem þeir standa öðrum framar að andlegu atgerfi. Jeg bendi á þetta vegna þess, að ein ástæðan fyrir því, að jeg tel ekki æskilegt, að háskólagengnum mönnum fjölgi hjer úr hófi fram, er sú, að hvorki mentaskólinn nje háskólinn veita þeim mönnum heppilegt uppeldi, sem vilja brjóta sjer braut sem sjálfstæðir atvinnurekendur, og allra síst að því er snertir íþróttahliðina.

Þá vil jeg víkja að því, hversvegna mentaskólinn hefir stækkað með þeim fádæmum, sem jeg hefi sýnt. Til þess hafa einkum verið taldar tvær ástæður. Önnur er sú, að mentaþorsti Íslendinga sje óvenjumikill, en hin, að skólinn sje of ljettur. Jeg skal hvorugu neita, og síst hinu fyrra. það er síður en svo, að hin alkunna mentunarlöngun Íslendinga sje lastverð, heldur er hún einmitt eitt hið dýrmætasta í fari þjóðarinnar; en það er nú samt svo um mentaþrána, eins og marga aðra góða hluti, að þá má misnota.

Hitt má fremur deila um, hvort skólinn sje of ljettur fyrir nemendurna. Er varla hægt að neita því, að einkum muni neðri deildin vera fullljett viðfangs, sem sjá má af því, að straumurinn gengur óslitinn úr efstu bekkjum barnaskólans í Reykjavík upp í 1. bekk mentaskólans. Að vísu er barnaskólinn víst fremur batnandi, en mun þó varla vera neitt sjerstakt afbragð í sinni röð.

Má þá segja, að mentaskólinn sje að miklu leyti framhaldsskóli fyrir börn úr barnaskólanum í Reykjavík, en síðan gangi straumurinn óslitinn upp í háskólann.

Sumir þeirra, sem telja skólann of ljettan og segja, að af því stafi fjölgunin að miklu leyti, vilja láta fækka nemendum hans með því að þyngja skólann til muna, t. d. á þann hátt að bæta við strax í 1. bekk kenslu í einu eða tveimur þungum tungumálum. Jeg held, að þetta sje næsta varhugaverð leið, að bæta við nýjum námsgreinum til þess eins að fella nemendur á þeim. Það sýnist vera skynsamlegra að velja hæfustu nemendurna úr, og kenna þeim það, sem þeim má að gagni verða, heldur en að nota þær námsgreinir, sem duglegustu nemendurnir kæra sig lítið um að læra, til að fella liðljettingana. En það kann vel að vera, að einmitt vegna þess, hvað skólinn er ljettur, fái hann nú einkum viðbót sína hjeðan úr Reykjavík, og er það heldur ekki nema eðlilegt. Í Reykjavík býr nú um 1/5 hluti allra landsmanna, og er aðstaða foreldra, sem annars hafa dálítil efni, sjerlega góð, að láta börn sín ganga beint úr barnaskólanum upp í mentaskólann, og það þá því fremur sem þau komast þessa leið fyrirhafnarlítið. Reykvíkingar eiga því tiltölulega hægt með að gera syni sína og dætur að háskólagengnu fólki, embættismönnum, jafnvel vísindaiðkurum, án þess að hæfileikarnir sjeu sjerstaklega góðir. En að sama skapi hefir orðið erfiðara fyrir fólk utan af landi að sækja mentaskólann, því dýrtíð hefir aukist fram úr hófi í Reykjavík, og nú á síðari tímum hefir landið gert minna til þess að styrkja námsmenn við skólann en það gerði áður. Árið 1878 var t. d. varið 8000 kr. úr landssjóði til þess að styrkja nemendur í latínuskólanum. Og það var mikið fje á þeim tíma, þegar alt var mikið ódýrara en nú er, enda var dugandi mönnum þá mikið hægra að komast í gegnum skólann, þótt fátækir væru, því þeir gátu kostað sig að mestu leyti af námsstyrknum og sumarvinnu sinni. Og landið gat þá veitt svona mikið fje til styrktar nemendum, því skólahaldið var að öðru leyti ekki nándar nærri eins dýrt og nú er.

Ein ástæðan til þess, að mentaskólinn hefir vaxið svo gífurlega, er sú, að Reykjavík vantar almennan skóla, sem væri fyrir Reykjavík eins og t. d. Eiðaskólinn er fyrir Austurland. Sökum þess, að Reykjavík hefir vantað slíkan skóla, hafa Reykvíkingar notað gagnfræðadeild mentaskólans sem almennan skóla, eins og eðlilegt er, því að þar hafa þeir notið ókeypis kenslu. Síðan hafa nemendur haldið áfram stig af stigi eftir mentabrautinni. Og það er að nokkru leyti eðlilegt, að þegar ungur maður hefir fengið gagnfræðamentun hjer í skólanum og sjer straum skólasystkina halda áfram upp í lærdómsdeildina, að hann þá freistist til þess að halda áfram líka, þótt hann hafi upphaflega aðeins ætlað sjer að fá gagnfræðamentun. Og svo þegar stúdentsprófi er náð, þá finst honum rjett að ganga á háskólann, þar sem kensla er einnig ókeypis og þó örlítill styrkur. Háskólinn hefir líka vaxið svo mikið nú síðustu árin, að gætnir prófessorar álíta, að ekki þyrfti nema helming af þeim fjölda stúdenta, sem háskólann sækja, til þess að fullnægja embættaþörfinni. Þetta nær þó ekki til læknanna, því að þeir virðast ekki vera of margir, en það stafar líka nokkuð af því, að læknar hafa flust til útlanda og starfa þar, en mjer finst við ekki hafa efni á því að verja miklu fje til þess að ala upp embættismenn handa öðrum þjóðum, auk þess sem við missum oft þannig efnilega menn úr landi.

Jeg veit, að mjer muni verða svarað því af mörgum, að stækkun mentaskóla og háskóla sje til bóta bæði fyrir landið í heild sinni og sömuleiðis fyrir einstaklingana. Jeg neita því ekki, að stækkunin hefir ýmsa kosti, en hún hefir líka ýmsa ókosti. Fyrir landið hefir hún t. d. mikinn kostnað í för með sjer. Kostnaðurinn við mentaskólann hefir vaxið úr 20000 kr. upp í 120000 kr. síðan árið 1880.

Þá kem jeg að því, hvort það muni vera ágóði fyrir mennina sjálfa, sem í skólann ganga. Því er ekki að neita, að það er ágóði fyrir þá að því leyti, að aukin þekking er alt af mikils virði, en langri skólagöngu fylgja líka oft ýmsir annmarkar.

Í greinargerð tillögunnar er gert ráð fyrir því, að embættum muni fækka á næstunni. Og jeg held, að svo hljóti að verða, því að það virðast allir vera sammála um. Það hefir meira að segja verið kosningaprógram hjá einum þingmanni að leggja niður heila deild við háskólann, þótt ekki hafi borið mikið á, að reynt væri að framkvæma það ennþá. Og hvað sem því annars líður, þá held jeg, að bæði þing og kjósendur ættu að vera sammála um það, að fækka megi embættismönnum, nema læknum. Ástæðan er ekki sú, að embættismenn sjeu í sjálfu sjer of margir, heldur of margir í hlutfalli við fjárhag landsins.

Látum vera, að embættum fækki. En má þá ef til vill fjölga vísindamönnum? Jeg býst ekki við því. Það er ekki sökum þess, að við höfum ekki nóg af hæfileikamönnum. Það er ómögulegt fyrir smáa og fátæka þjóð að hafa eins blómlegt vísindalíf eins og stórar og ríkar þjóðir.

Hlutverk mentaskólans og háskólans verður því aðallega að búa hæfilega marga menn undir embætti, og fáeina menn undir sjálfstæðar rannsóknir.

Þá er eftir að athuga hitt, hvort það muni vera ávinningur fyrir landið, að margir stúdentar eða háskólagengnir menn taki sjer aðrar stöður. Jeg skal þá fyrst geta þess, að jeg álít, að mentaskólinn, eins og hann er nú, sje ekki heppileg stofnun fyrir sjómenn eða bændur eða atvinnurekendur. Aðalástæðan til þess er sú, að skólinn hefir ávalt staðið að baki slíkum skólum erlendis, að því er líkamlega mentun snertir, og þessvegna hafa stúdentar alment ekki þann líkamlega þrótt og fjör, sem þarf til þess að stunda erfiðisvinnu, eða það fjör, sem þarf til þess að ryðja sjer braut í samkepni atvinnulífsins. Það er því ekki æskilegt, að mikið verði af stúdentum í slíkum stöðum. En það gæti orðið æskilegt, ef breyting yrði á skólanum, þannig, að meiri áhersla væri lögð á líkamsmentun og ýms hagnýt fræði en nú er. Hinsvegar er hætt við því, ef mjög mikil stúdentaframleiðsla verður, að hjer myndist, eins og sumstaðar á sjer stað í öðrum löndum, langskólagenginn öreigalýður, menn, sem hafa sömu þekkingu og embættismennirnir og að ýmsu leyti sömu þekkingu og vísindamennirnir, en fá ekki neina atvinnu, sem þeir geta felt sig við eða samsvarar mentun þeirra, og lenda því oft á refilstigum og enda í vesaldómi. Máli mínu til sönnunar, hvað leitt getur af þesskonar ósamræmi í uppeldinu, vil jeg nefna dæmi hjer úr bænum. Sæmilega greindur maður, prestssonur úr sveit, hafði gengið mentabrautina og náð háskólaprófi. En hann fjekk enga atvinnu, sem hann gat felt sig við, en átti konu og börn, sem hann varð að sjá fyrir. Að síðustu var aðeins um tvent að velja fyrir hann, annaðhvort að segja sig til sveitar, eða fara að vinna erfiðisvinnu. Hann valdi rjettu leiðina og rjeð sig í vinnu við hafnargerðina hjer í Reykjavík. En hvað skeði? Almenningsálitið snjerist á móti þessum manni og vinir hans og gamlir fjelagar, þeir menn, sem hann helst vildi leggja lag sitt við, snjerust mest á móti honum. Og það varð til þess, að hann hætti við þessa vinnu eftir stuttan tíma og tók í staðinn andlega vinnu, sem hann hataði og sem var honum til skapraunar og minkunar.

Jeg vil því spyrja: Er það heppilegt að eyða stórfje til þess að gera menn of „lærða“ til þess að vinna líkamlega vinnu, og máske of lata eða of veiklaða? Jeg held ekki. Jeg held, að það sje enginn velgerningur við unga menn. Og þar til búið er að breyta mentaskólanum í það horf, að hann sje heppilegur fyrir þá menn, sem vilja brjóta sjer braut sem atvinnurekendur, er síst til bóta að hleypa fleirum í gegn um hann en þarf til þess að verða embættismenn og vísindamenn. En það, sem vantar hjer í Reykjavík, er góður, almennur skóli, þar sem unga kynslóðin geti svalað fróðleiksfýsn sinni, án þess að freistast til langrar skólagöngu. En um það, hvernig hægast sje úr því að bæta, mun jeg tala síðast í ræðu minni.

Fyrir utan það, hvað skólinn er dýr fyrir landið og hið vafasama gagn, sem mörgum verður að skólagöngunni, kemur svo hitt, að nú bætast skólanum að miklu leyti nemendur með öfugu úrvali, því eins og jeg áður hefi leitt rök að, fækkar stöðugt gáfuðu og duglegu sveitapiltunum, sem sótt geta mentaskólann, sökum þess, að skólavistin hjer í Reykjavík verður æ dýrari og dýrari, en styrkurinn minni. Og um ýmsa af þeim fátæku mönnum utan af landi, sem sækja þennan skóla, hefi jeg hugsað sem svo: Ætli þessir menn hljóti ekki að svelta? Hvernig fara þessir menn að því að lifa, þegar þeir fá engan styrk frá foreldrum sínum eða öðrum vandamönnum, þó að þeir vinni fyrir nokkur hundruð krónum og fái örlítinn styrk? Jeg held að minsta kosti, að dýrtíðin og fjárhagserfiðleikamir hljóti að hafa lamandi áhrif á þessa fátæku aðkomumenn og minka starfsþol þeirra og starfslöngun.

En Reykjavík fær alveg sjerstaka aðstöðu í þessu sambandi. Aðgangur að mentaskólanum er orðinn landfræðilegt og fjárhagslegt atriði, þ. e.: að vera fæddur í Reykjavík, eða þá að eiga efnaða foreldra. Fólk í Reykjavík á tiltölulega mjög auðvelt með að láta börn sín ganga mentaveginn, enda verða þeir æ fleiri og fleiri, sem nota sjer það. En af þessu leiðir, að það verða oft hæfileikalitlir liðljettingar úr Reykjavík, sem sökum sjerstakrar aðstöðu ganga gegnum mentaskólann og háskólann og fylla síðan embætti ríkisins og gegna vísindastarfsemi þjóðarinnar, en fátækir, bráðgáfaðir menn, sem eiga heima úti á landi, verða að fara á mis við þessa skólamentun.

Þá kem jeg að því, hvað þurfi að gera til þess að bæta úr þessu ástandi. Það þarf að þyngja og þrengja mentaskólann, svo að aðeins dugandi og gáfaðir menn geti komist í gegnum hann. Jeg viðurkenni auðvitað, að til hafa verið menn, sem hafa verið bekkjarlallar í skóla, en hafa þó reynst afbragðsmenn, eins og t. d. Niels Finsen o. fl. En reynslan hefir þó yfirleitt orðið sú, þegar slept er fáum undantekningum, að það hefir orðið efri hlutinn úr hverjum bekk, sem á hverjum tíma hafa haft mest áhrif með starfi sínu. Jeg segi ekki, að allra efstu mennirnir sjeu alt af bestir, en efri helmingur hvers bekkjar, eða máske öllu heldur efsti þriðjungur hvers bekkjar, hefir reynst vera úrvalið, jafnt þegar út í lífið er komið. Jeg álít því, að þessi leið, sem jeg hefi bent á, sje hættulaus. Ef vjer gefum á hverju ári 25 bestu prófmönnunum í hverjum af efri bekkjum mentaskólans tækifæri til þess að verða embættismenn eða vísindamenn, þá fáum vjer í þær stöður þá mennina, sem mest er varið í, til andlegra starfa.

Jeg get hugsað mjer, að hjer sjeu til þeir menn, sem þyki óviðfeldið að velja þannig úr með prófi. En þetta er þó það, sem í raun og veru er alt af gert. Ef atvinnurekendur, sem þurfa á mönnum að halda til einhvers starfa, fá umsóknir frá fleirum en þeir þurfa, þá velja þeir úr þá bestu. Og ef veita á prófessorsembætti við háskóla, þá eru umsækjendur látnir keppa um það, og sá besti valinn. það er líka mjög algengt erlendis, að samkepnispróf sjeu látin fara fram. Í Frakklandi vissi jeg t. d. til þess, að það voru einu sinni prófaðir 200 menn í ensku, til þess að velja úr 13 menn, sem þurfti til að kenna ensku við mentaskóla ríkisins og háskóla. Þeir bestu voru auðvitað valdir úr, en hinir, tæpir 200, fjellu og það var ekkert verið að hugsa um þá.

Jeg þykist nú hafa leitt rök að því, að þótt um 50 stúdentar útskrifuðust á ári, þá muni ekki vera nema 25 af þeim, sem ríkið hefir ástæðu til að sækjast eftir, bæði sökum þess, að það hefir ekki þörf fyrir fleiri til þess að gegna embættum og vísindastörfum, og líka sökum þess, að ef valið yrði úr á þann hátt, sem jeg hefi bent á, þá yrðu það bestu mennirnir, sem kæmust gegn um skólann. Hinir geta verið dugandi menn til margra hluta, þótt þeir eigi ekki erindi í þjónustu landsins. en jeg hygg þó, að ríkis geti komist af án þeirra.

En hvað því viðvíkur að hafa mentaskólann fyrir almennan skóla fyrir Reykvíkinga, þá skal jeg taka það fram, að mjer finst það óheppilegt að lokka svo marga inn á langskólabrautina án þess að gefa þeim möguleika til síðar að nota þekkingu sína sjer til lífsuppeldis. Jafnhliða því, að mentaskólinn verður þyngdur, þarf Reykjavík að fá sinn hjeraðsskóla, þ. e. almennan skóla, eins og flest sveitahjeruð vilja nú fá. Í því sambandi hefir mjer dottið í hug að mætti hafa 2 skóla í mentaskólahúsinu. Ýmsir kunnir sparnaðarmenn hjer í þinginu skuldbundu sig í fyrra að vera því fylgjandi, að heimavistarhús yrði reist við mentaskólann, en það yrði án efa til þess, að auka stúdentaframleiðsluna enn meir en orðið er. En af því jeg býst ekki við, að ráðist yrði í að byggja stórhýsi handa skóla hjer í Reykjavík nú, þá hefir mjer dottið í hug, að nota mætti húsrúm skólans að nokkru leyti fyrir hjeraðsskóla handa Reykjavík, þegar búið væri að minka sjálfan mentaskólann, svo að nemendur þar væru ekki nema 20–25 í hverjum bekk. Þá er orðinn laus helmingur af því húsrúmi, sem nú er notað til kenslu. Þetta húsrúm, sem þannig losnar, mætti þá nota fyrir almennan skóla handa Reykvíkingum, og jeg hygg, að mætti koma þannig fyrir 6 bekkjum af venjulegum dagskóla. En auk þess mætti, með ódýrri breytingu á mentaskólahúsinu, búa það þannig út, að hægt væri að kenna í öllum bekkjunum síðari hluta dags. Það væri ekki annað en að setja „.línóleum“ á gólfin og loftræstingu með rafmagni í öll skólaherbergi og ganga. Þá væri hægt að halda skólanum hreinum á mjög auðveldan hátt, og það mundi verða betri loftræsting með þessu móti, þótt kent væri í skólanum allan daginn, heldur en nú er, þó aðeins sje kent í honum fyrrihluta dagsins, með engri loftræstingu, nema gegnum opnanlega glugga. Jeg hefi bent á þetta sökum þess, að jeg veit, að það er mjög erfitt og dýrt að fá húsrúm fyrir stóran skóla, en þarna fengist það á mjög auðveldan hátt. Og mjer finst þingið ætti að stuðla að þessari breytingu, til þess að fleiri verði ekki lokkaðir inn á langskólabrautina en ástæða er til að ætla, að muni hafa atvinnu af því, þar til þá að landið hefir mentaskóla, sem gerir nemendur sína jafnhæfa til að taka þátt í framleiðslustarfseminni eins og að vera launaðir starfsmenn landsins.

Menn munu máske svara mjer því, að það sje gott, að bent sje á ódýrt húsnæði, en segja, að dýrt verði samt sem áður að fá næga kenslukrafta handa slíkum skóla. Jeg vil í því sambandi benda á það, að það mundi vera hægt að fá tiltölulega ódýra en samt góða kenslukrafta, með því að nota nær eingöngu tímakennara við skólann. Hjer í þessum bæ eru margir langskólagengnir menn, sem einskis óska fremur en að fá tekjuauka með tímakenslu. Jeg hugsa, að hjer í bænum muni vera a. m. k. hundrað slíkir menn, sem hægt væri að fá til þess að kenna við slíkan skóla fyrir tímakaup. Einn stafsmaður ríkisins vinnur nú að kenslu við mentaskólann fyrir 3 krónur um tímann, og jeg veit, að það mætti fá marga til að kenna fyrir það kaup, svo ekki þyrfti að stofna föst embætti við skólann nema til forstöðunnar. Og tímakensla er svo ódýr, að ef lagt væri 100 kr. skólagjald á hvern nemanda, þá mætti langdrægt komast af með það. Það mætti því halda mjög stóran almennan skóla fyrir Reykjavík, án þess að byggja þyrfti hús eða stofna nokkur ný embætti. Annars ætti Reykjavík auðvitað að kosta slíkan skóla eftir sömu reglum og önnur hjeruð kosta sína hjeraðsskóla. Það er ekki nema eðlilegt, að Reykjavík verði sjálf að sjá að talsvert miklu leyti fyrir almennri mentun sinna ungu borgara. En af bendingum þeim, er jeg hefi gefið, geta menn sjeð, að það þurfa ekki að verða neinar drápsklyfjar fyrir Reykjavík að hafa sinn hjeraðsskóla, þó að líkindum yrðu þar 250–300 nemendur árlega. Slíkum skóla mætti koma svo fyrir, að hann gerði fult gagn án þess að íþyngja ríkinu, bæjarfjelaginu eða nemendum, svo nokkru næmi.

Jeg vil ekki ljúka máli mínu án þess að minnast hjer á aðra tillögu, sem að vísu liggur ekki til umræðu á þessu þingi, en var áður rædd hjer í fyrra, nefnilega krafa Norðlendinga og Austfirðinga um sjerstakan mentaskóla. Jeg var og er því máli fylgjandi. Við fljóta athugun gæti sú stefna álitist að vera í mótsögn við samfærslu mentaskólans í Reykjavík, en svo er ekki. Jeg hefi leitt rök að því, að ekki sje æskilegt að uppala of marga stúdenta. En það skiftir mjög miklu máli fyrir þjóðina, að í þennan fámenna hóp veljist einmitt þeir unglingar hvaðanæfa að af landinu, sem mesta hæfileika hafa í þá átt. Flestum háttvirtum þingmönnum mun það kunnugt, að þó að skólinn á Akureyri sje ekki nema þriggja deilda skóli, er þó kent þar í fimm deildum, 2. og 3. bekkur hafa verið tvískiftir. það sama hefir átt sjer stað á Akureyri og hjer, að aukin aðsókn hefir leitt hlutfallslega til aukins kostnaðar. Enda er samband milli skólanna, þannig, að sömu orsakir liggja til vaxandi aðsóknar að báðum. Jeg hefi hugsað mjer, að fækka megi 14 bekkjum mentaskólans, sem ríkið kostar, niður í 6–8. Væri að því verulegur sparnaður. Mætti með því fækka kennurum með föstum launum við skólann, en aftur á móti yrði almenna skólanum fyrir Reykjavík haldið uppi með kenslugjöldum og framlagi úr bæjarsjóði. Á Akureyri eru nú 5 bekkir, og yrðu það áfram, aðeins í áframhaldandi röð. Akureyrarskólinn yrði þá 5 ára skóli, sem leiddi til stúdentsprófs fyrir þá nemendur, sem óskuðu þess. Í Noregi eru þó nokkrir 4 ára mentaskólar, þar sem námstíminn er 10 mánuðir á ári, 40 mánuðir alls. Það er jafnlangur námstími eins og gæti verið á Akureyri með 8 mánuðum í 5 ár. þessir 4 ára skólar í Noregi eru oftastnær í sveitum eða smáþorpum. Nýlega var einn slíkur skóli reistur í Þrándheimi, og byrjaði með 40 nemendum. Þessir norsku skólar eru fyrir þá fátæku og gáfuðu sveitamenn, sem verða að kljúfa kostnaðinn sjálfir, sem byrja seint að læra og brjótast áfram á stuttum tíma, og geta þess vegna ekki tekið þátt í kappleiknum með þeim, sem byrja slíkt nám 12–13 ára. Fyrir bæjarmenn og efnaðri manna syni úr sveit, sem byrja nám barnungir, eru í Noregi 6 ára mentaskólar, eins og hjer hefir tíðkast. En ef breyting verður gerð á Akureyri vegna efnalítilla gáfumanna, sem vinna fyrir sjer sjálfir, yrði skólinn þar bundinn við 5 ár og þungt inntökupróf.

Jeg vona, að háttvirtir þingmenn vilji líta á þessi rök fyrir því að breyta Akureyrarskólanum í þessa átt, úr því hægt er að gera það án kostnaðar fyrir ríkissjóð. Þetta er nauðsynlegt vegna þess, að fátækir námsmenn úr sveitum hafa verri aðstöðu nú en áður, eftir þá breytingu, sem gerð var á mentaskólanum, þegar grískan var feld niður og latína minkuð. Mun nú hjerumbil loku fyrir það skotið, að gáfaðir og efnilegir menn, eins og hv. þm. Ak. (BL) mun hafa talið sig, þegar hann var ungur maður, geti klofið kostnað gegnum skólann.

Að lokum vil jeg benda á, að ekkert ósamræmi er í því að takmarka stúdentaframleiðslu í Reykjavík, og láta sjer þó detta í hug að útskrifa 10–12 árlega á Akureyri. Þjóðinni er lífsnauðsyn, að embættismenn hennar og vísindamenn sjeu valdir úr allri þjóðinni. Hingað til hafa álitlegustu mennirnir vaxið upp í sveitunum. En dýrtíðin og aldurstakmark Reykjavíkurskólans er nær því að verða að útilokandi hindrun fyrir þessa menn. Eina úrræðið til að þjóðin geti notið starfskrafta þessara manna, er að breyta Akureyrarskólanum í svipað horf og Norðmenn hafa valið fyrir sína fátæku efnismenn. Að sama skapi má þá takmarka töluna í Reykjavík, eftir þörf þjóðarinnar.

Jeg geri ennfremur ráð fyrir því, að skólinn á Akureyri gæti vaxið þannig upp, að fult svo mikið tillit yrði tekið til þess, að þeir, sem gengju gegnum skólann, hefðu fengið einskonar „super“-gagnfræðamentun, þ. e. a. s., að kenslunni væri þannig fyrir komið, eins og á sjer stað í Englandi, að miklar íþróttir og verklegt nám yrðu samhliða bóknáminu. Eru miklu betri skilyrði norðanlands fyrir vetraríþróttir, t. d. skíða- og skautaferðir, róðra, siglingar og ýmsar aðrar útiíþróttir, heldur en í Reykjavík, sem er snjólaus, íslaus og með mjög óstöðuga vetrarveðráttu.

Í þessu máli eru þrjú atriði, sem vaka fyrir mjer sjerstaklega: Að fá lítinn en erfiðan mentaskóla fyrir þá, sem byrja nám seint. Að gefa mönnum tækifæri til að fá sjer langskólamentun, án þess að verða miður hæfir til líkamlegrar áreynslu. Í þriðja lagi að skapa hinum gamla Reykjavíkurskóla keppinaut. Jeg hygg, að þeir, sem eru andvígir „monopol“ í verslun, muni taka þeirri röksemd vel, þeir muni fallast á, að það myndi verða til stórbóta

fyrir skólann í Reykjavík að fá keppinaut, sem hann gæti mælt krafta sína við.

Þá vil jeg að síðustu draga saman röksemdir mínar. Fyrst, að af aukinni aðsókn að mentaskólanum hefir kenslukostnaður margfaldast, eða er nú 100–120 þús. kr., í stað þess, að áður fór hann ekki yfir 20 þús. kr. Eru þetta óþarflega mikil útgjöld.

Skólinn í Reykjavík, sem aðallega má miðast við þörf á embættismannaefnum, er of stór, og þeir af lærisveinum hans, sem ekki komast að þeim störfum, hafa tiltölulega lítil not af skólaverunni og jafnvel skaða, ef þeir eru af náminu orðnir miður færir til erfiðrar vinnu. Og aðstaða þeirra er því erfiðari af því, að hjer ríkir yfirleitt sú skoðun, að líkamleg vinna sje alls ekki samboðin langskólagengnum mönnum. Síðan yrði gerð ráðstöfun til að sjá unglingum hjer í bænum fyrir almennri mentun. Gæti sá skóli verið í mentaskólahúsinu, meðan við höfum ekki efni á að byggja sjerstakt hús þeirra vegna. Með því að nota mestmegnis tímakenslu, gæti skólinn verið ódýr í rekstri. Hjer í bæ er fjöldi manna, sem myndu fúsir til slíkrar tímakenslu. Breyting á Akureyrarskóla þarf ekki að kosta landið neitt. Óráðna gátan er aðeins sú, hvort þjóðfjelagið vill hjálpa til að breyta skólanum þannig, að hafa þar 5 hliðstæða bekki, þungt inntökupróf, og miða fyrirkomulagið til hagræðis fyrir þá menn, sem byrja seint á námi og keppa eftir embætti eða vísindum, eða verða atvinnurekendur í þjóðfjelaginu. Þessi skóli myndi gefa borgurum aukinn andlegan þroska, án þess að veikja líkamlega heilsu og starfsfjör.

Jeg legg svo tillögu þessa undir úrskurð háttv. sameinaðs þings, og vænti þess, að þó að hún nái ekki fram að ganga nú, hafi jeg nú bent á ýmsar leiðir líklegar til að geta hjálpað skólafyrirkomulagi okkar á næstu árum.