04.04.1924
Sameinað þing: 3. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í D-deild Alþingistíðinda. (3118)
41. mál, takmörkun nemenda í lærdómsdeild
Forsætisráðherra (JM):
Það hefir komið svo margt fram við umræðumar um þessa till., að það virðist auðsjeð, að hv. flm. lítur á hana sem lið í gagngerðum breytingum á skólaskipun í landinu. En jeg sje ekki, að hægt sje að taka afstöðu til slíkra stórmála nú, og get ekki skilið, að hv. flm. (JJ) ætlist til, að þeim sje ráðið til lykta á einum stuttum fundi í Sþ. Enda hygg jeg, að ekki sje rjett að vinda of bráðan bug að breytingum á þeim málum.
Jeg get annars verið ógnarlega stuttorður um þessa till. Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) hefir sagt það, sem þurfti að segja, og jeg hefi þar litlu við að bæta. En jeg held, að þetta sje ekki rjetta leiðin til þess að fækka stúdentum. Jeg er sammála hv. 4. þm. Reykv. (MJ) um það, að slík þröngvun muni ekki vera heppileg til þess að takmarka tölu stúdenta. Annars held jeg, að sumt af því, sem hv. flm. (JJ) sagði um þetta mál, sje alls ekki rjett. Hann vildi gefa í skyn, að rektor væri hlyntur þessari till. Jeg veit það, að rektor hefir varað við aðstreymi til skólans og þykir, eins og fleirum, stúdentaframleiðslan of mikil. En jeg geri ráð fyrir, að fáum hafi dottið í hug, að þetta væri ráðið.
Hv. flm. hefir ekki talað um, hvernig eigi að framkvæma það, sem hann leggur til í þessu máli. Hann hefir forðast það, því að þetta hlýtur að koma afar illa niður á þeim piltum, sem eru utan af landi.
Þá sagði hv. flm., að stjórnin hefði altaf látið undan með að auka kenslukraftana. Auðvitað hefir stjórnin orðið að sjá um það, að piltar fengju kenslu í skólanum, hverjir sem uppfyltu lögskipuð skilyrði. Hv. flm. sagði, að bætt hefði verið við 4 ólöglegum embættum. En þetta er alls ekki rjett. Þó að þessi embætti sjeu í orði kveðnu ekki föst, þá eru þau gömul og stofnuð með fullum vilja og ráði þingsins, sem altaf veitir fje til þeirra á fjárlögum ár frá ári sem fastra aukakennaraembætta. Þá vil jeg benda á það, að skifting skólans í stærðfræðis- og máladeild hefir aukið mjög kostnað við hann. En hv. flm. talar ekkert um, að það valdi auknum kostnaði. Skal jeg nú, til svars þessari niðurskurðartill., skýra frá, hvernig háttað er skipun nemenda í skólanum.
4. bekkur er þrískiftur. Er máladeildin tvískift, og eru í öðrum hlutanum 23 nemendur, en 16 í hinum. Í stærðfræðideildinni eru 11 nemendur. Geta þeir, sem í stærðfræðideildinni eru, haft með hinum sameiginlega tíma í nokkrum námsgreinum, en alls ekki í öllum. Í 5. bekk eru 18 í máladeild og 9 í stærðfræðideild, eða samtals 27, og er því minst á mununum, að ekki sjeu í þeim bekk jafnmargir og hv. flm. ætlast til að verði í framtíðinni. Í 6. bekk eru 14 í máladeild og 6 í stærðfræðideild. Ef tilgangurinn er sá, að hverfa frá þessari skiftingu, minkar auðvitað kostnaðurinn við kensluna. En jeg tel það mikla afturför að hætta við skiftinguna.
Hv. flm. sagði — eða það mátti skilja á ræðu hans — að færri nemendur væru utan af landi en úr Reykjavík. Á síðasta hausti eru 50 nemendur í 4. bekk, og þar af eru 18 frá Akureyri og 12 annarsstaðar frá utan af landi Er því ekki nærri því helmingur úr Reykjavík. Auk þess voru hjer allmargir fyrir utanbæjar, sem tóku hjer próf.
Hv. flm. mintist á, að skólinn væri of ljettur, þar sem nemendur úr efsta bekk barnaskólans gætu tekið við hann inntökupróf. En efsti bekkur barnaskólans býr einmitt nemendur undir mentaskólann, og jeg held, að þar sje góð kensla, meira að segja mjög góð.
Að Reykjavík vanti almennan skóla á borð við Eiðaskólann vil jeg ekkert um segja. En telur hv. flm. kvennaskólann ekki almennan skóla? Eða ef hann miðar við gagnfræðaskóla, þá er Flensborgarskólinn ekki langt í burtu. Það er að allra dómi ágætur skóli, og fult svo heppilegur að minni hyggju eins og hann væri í Reykjavík.
Að menn fyrirlíti líkamlega vinnu, veit jeg ekki hvort er rjett. Minsta kosti veit jeg, að ekki einungis stúdentar, heldur og embættismenn, hafa unnið svipaða vinnu og hv. flm. mintist á, án þess að skammast sín fyrir það.
Um útflutning lærðra manna er það að segja, að hjer fyrir nokkru, þegar læknafæð var í Noregi, fóru fáeinir læknar þangað hjeðan frá Íslandi. En það var ekki af því, að ekki væru til fyrir þá embætti hjer. Embættin voru auð, en þóttu illa launuð.
Annars held jeg, að ekki sje vert að lengja mikið umræður um þessa till. Jeg býst við að hún eigi sjer ekki langan aldur, og þá finst mjer ekki rjett að eyða löngum tíma í það, sem ekki snertir hana, svo sem skólamálin í heild sinni. Þau verða svo hvort sem er ekki til lykta leidd á einum stuttum fundi í Sþ. Jeg vona, að menn ljúki því sem fyrst afgreiðslu þessa máls og taki til þeirra starfa, sem nauðsynlegt er að koma frá.