12.04.1924
Efri deild: 47. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í D-deild Alþingistíðinda. (3180)
111. mál, söfnunarsjóður Íslands
Eggert Pálsson:
Þess hefir verið getið í sambandi við þetta mál, að bæði núverandi forstjóri Söfnunarsjóðsins og stofnandi hans hafi lýst því yfir, að þeir hefðu altaf reynt að láta lán til landbúnaðarins ganga fyrir öðrum lánum úr sjóðnum. Jeg þykist vita, að enginn vilji draga í efa, að þeir fari hjer með rjett mál. En aftur á móti hefir líka komið í ljós, að landbúnaðurinn hefir fengið tiltölulega lítið að láni úr sjóðnum. Þetta kann í fljótu bragði að virðast mótsögn, en þarf þó enganveginn svo að vera. Þess ber sem sje að gæta, að til skamms tíma hafa verið til hjer á landi peningastofnanir, sem bændum hefir þótt betur henta að leita til með lánsbeiðnir sínar. Má þar fyrst nefna veðdeildina. Á meðan brjef hennar voru í sæmilegu verði, var mun betra fyrir bændur að geta fengið lán út á jarðir sínar þar. Þá var og önnur lánsstofnun til Ræktunarsjóðurinn, sem jeg vissi, að bændum var jafnan mikið áhugamál að fá lán úr. En nú er svo komið, að hvorug þessara lánsstofnana er til lengur, eða að minsta kosti hefir hvorug þeirra nokkurt fje til að lána, og væri því mjög gott, ef bændur landsins gætu nú leitað til Söfnunarsjóðsins, því að þörf þeirra á lánum til jarðabóta er vissulega ekki minni nú en áður hefir verið. En eins og kunnugt er, þá er sá agnúi á að fá lán úr Söfnunarsjóðnum, að menn verða jafnan að bíða lengi eftir að fá þau, þar sem aðsóknin er svo mikil. En þegar menn, einkum upp til sveita, þurfa að fá lán, þá þurfa þeir að fá þau fljótt, en ekki einhverntíma síðar meir.
Jeg lít svo á, að það sje ekkert lagalega því til fyrirstöðu að breyta lögum sjóðsins. En mjer finst hinsvegar, að ekki megi breyta þeim þannig, að gengið sje fram hjá vilja þeirra manna, sem mest hafa með sjóðinn að gera, eða þannig, að sú breyting brjóti í bág við aðaltilgang sjóðsins, sem er að safna fje og geyma það fyrir menn á öruggan hátt. En til þess að geta verið á því hreina með, hvort sú breyting, sem hjer er um að ræða, muni brjóta í bág við þann tilgang sjóðsins að safna sem mestu fje, verða hv. þm. að vita, hvaðan það fje kemur aðallega, sem sjóðnum áskotnast. Og þessvegna þarf að athuga, hvaðan fjeð kemur eða hefir aðallega komið, áður en ákveðið er að gera breytingar á lögum sjóðsins. Ef fjeð kemur aðallega úr sveitunum, þá er ekki ástæða til að ætla, að það dragi úr söfnuninni, þótt ákveðið væri, að sjóðurinn skyldi vera fyrst og fremst til útlána fyrir sveitirnar. En ef fjeð kemur hinsvegar aðallega úr kaupstöðunum, má búast við, að menn hættu að leggja fje í sjóðinn, ef ákveðið væri, að það skyldi aðeins lánað til sveitanna. En ef breyting á lögum sjóðsins yrði til þess, að hætt yrði að leggja fje í sjóðinn, þá næði hann ekki lengur aðaltilgangi sínum, þeim sem sje, er fyrir stofnanda sjóðsins vakti, að gera menn sem fúsasta til að leggja fje í sjóðinn til geymslu og ávöxtunar. Jeg held því, að það væri mjög heppilegt að vísa málinu til stjórnarinnar og láta hana rannsaka málið og bera sig saman við stofnanda sjóðsins og núverandi forstjóra, og vita, hvort þeir gætu ekki fallist á hagkvæma breytingu á lögum hans. Jeg fyrir mitt leyti veit alls ekki, hvaðan fje sjóðsins aðallega er komið, og meðan svo er, get jeg ekki sagt um, hvort svona löguð breyting, sem hjer er farið fram á, er í raun og veru heppileg, og svo hygg jeg muni vera úti fleiri hv. þdm.