12.04.1924
Efri deild: 47. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í D-deild Alþingistíðinda. (3182)
111. mál, söfnunarsjóður Íslands
Frsm. minnihl. (Jónas Jónsson):
Jeg vil aðeins taka það fram, að jeg lít svo á, að sú frávísunartillaga, sem hv. 1. landsk. (SE) ber fram og vill láta hv. deild samþykkja, sje aðeins annað form til þess að eyða málinu. Jeg álít því, að þeir, sem vilja aðhyllast breytingu þá, sem felst í þáltill., verði að ganga hreint til verks og samþykkja þáltill. en fella till. hv. 1. landsk.