12.04.1924
Efri deild: 47. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í D-deild Alþingistíðinda. (3184)

111. mál, söfnunarsjóður Íslands

Ingvar Pálmason:

Það er eitt atriði, sem jeg vildi minnast á, því að lítið hefir verið um það talað nú við þessar umræður, en það er, hvernig á því stendur, að landbúnaðurinn hefir orðið útundan með lán úr Söfnunarsjóðnum. Jeg hefi átt tal um þetta við báða forstjóra sjóðsins, og mjer skildist, að reglan væri sú, að þegar lánbeiðnir kæmu til sjóðsins, þá væru þær skrifaðar á lista, og svo væru lánin veitt í þeirri röð, sem beiðnirnar stæðu á listanum. Forstjórarnir töldu báðir, að ekkert væri því til fyrirstöðu, að landbúnaðurinn væri látinn sitja fyrir lánunum. Ef vjer athugum þessa reglu, sjáum vjer, að það er ofureðlilegt, að sveitirnar verði útundan. Allir, sem sækja um lán úr sjóðnum, verða að bíða nokkur ár, og svo eru lánin veitt, eins og jeg áður hefi tekið fram, í þeirri röð, sem beiðnirnar koma. En nú er það vitanlegt, að upphæðirnar, sem sótt er um úr sveitunum, eru alt af lægri en úr kaupstöðunum, og því er skiljanlegt, að það verði meira fje, sem gengur til kaupstaðanna. Í öðru lagi eiga bændur, sem á láni þurfa að halda, venjulega mjög erfitt með að bíða eftir þeim. En öðru máli er að gegna um menn í kaupstað, sem vilja fá lán úr Söfnunarsjóði til húsbygginga. Þeir geta venjulega bygt húsin og fleytt þeim með víxlum í 2–3 ár, ef þeir eiga eftir þann tíma víst að fá lán úr Söfnunarsjóði. Það er því eðlileg afleiðing af þessu fyrirkomulagi, að landbúnaðurinn hafi orðið útundan með lán úr Söfnunarsjóði. Þessvegna höfum við, minnihl. fjhn., viljað breyta skipulagi sjóðsins þannig, að lán til landbúnaðar væru látin ganga fyrir.

Annars tel jeg ekki ástæðu til að fara frekar út í það, sem komið hefir fram við umræðurnar. Það hafa allir virst vera á einu máli um það, að jarðarveð væri tryggara en veð í húsum í kaupstöðum. Þó virtist hv. 2. þm. G.-K. (BK) draga það í efa. Hann hjelt því fram, að breytingin hefði í för með sjer hættu fyrir sjóðinn. En jeg get ómögulega skilið, að það hafi í för með sjer hættu fyrir sjóðinn, þó að hagur viðskiftamanna hans sje betur trygður en áður. Það er því ekki hægt að skilja ummæli hv. þm. (BK) öðruvísi en svo, að hann telji jarðarveð lakara en veð í húseignum í kaupstöðum.

En svo var annað, sem sami hv. þm. (BK) sagði, sem mig langaði til að minnast á. Hv. þm. sagði, að þótt fje væri fengið gegn veði í fasteign, þá væri ekki hægt að vita nema það væri notað í verslunarbrask. Jeg skal taka það fram, að jeg þekki ekki slíkt, en það lítur út fyrir, að hv. 2. þm. G.-K. (BK) bæði þekki verslunarbrask og viti til þess, að fje hafi verið fengið út á jarðir til þess að nota til slíks. Annars kemur þetta alls ekki málinu við, því að það er aldrei hægt að fyrirbyggja, að lánsfje sje notað í verslunarbrask eða annað slíkt. Þó mun yfirleitt vera minni hætta á, að það fje, sem fengið er út á jarðir, sje notað til slíks, heldur en það, sem fengið er út á fasteignir í kaupstöðum.

Jeg ætla mjer svo ekki að fara frekar út í þetta. Jeg hefi viljað leitast við að skýra það, hversvegna lán úr Söfnunarsjóðnum gangi minna til sveitanna en til kaupstaðanna. Og jeg hefi líka viljað benda á hitt, að trygging sú, sem sveitamenn hafa að bjóða fyrir lánum sínum, muni vera öllu betri, eða að minsta kosti ekki lakari en húseignir í kaupstöðum. Og af því dreg jeg þá ályktun, að þessi breyting, sem hjer er um að ræða, geti ekki leitt til neins tjóns eða álitshnekkis fyrir sjóðinn. Vel má vera, að eitthvert fje hafi verið lagt í sjóðinn með því skilyrði, að því yrði varið til húsabygginga í kaupstöðum, en það gerir ekki neitt til, því að það er ekki ætlast til þess, að öllu fje sjóðsins verði varið til lána handa landbúnaðinum.

Jeg sje svo ekki ástæðu til að fara frekar út í einstök atriði. Jeg treysti því, að hv. deild afgreiði þetta mál þannig, að hún samþykki brtt. okkar, minnihl. fjhn., því að jeg get ekki sjeð, að hún geti gert nokkurn skaða, en er aðeins spor í áttina að því marki, að fje úr sjóðnum verði hjer eftir varið meira til landbúnaðarins en áður hefir verið.

Eitt atriði vil jeg minnast á enn, og það er, hvaðan það fje sje aðallega, sem sjóðurinn hefir yfir að ráða. Mjer er nú ekki vel kunnugt um það, því að jeg hefi alls ekki rannsakað það neitt. En það er bæði mjer og öðrum hv. deildarmönnum kunnugt um nokkurt fje, sem fer stöðugt vaxandi, og verður máske á endanum aðalstarfsfje sjóðsins, og það fje mun vera að miklu leyti, ef ekki að mestu leyti, úr sveitunum. Jeg held annars, að þegar á alt er litið, hljóti allir að sjá, að ekki er um neinn voða að ræða, þó að þáltill. sje samþykt. Og ef hv. þdm. kemur saman um, að það beri að styðja landbúnaðinn, þá er hjer einmitt ágætt tækifæri til þess að sýna það í verkinu.