02.05.1924
Efri deild: 61. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1109 í B-deild Alþingistíðinda. (319)
1. mál, fjárlög 1925
Forsætisráðherra (JM):
Jeg get ekki kannast við það, að stjórnin hafi sýnt tómlæti viðvíkjandi stúdentum. Jeg hefi að vísu ekki farið mörgum orðum um það mál, en bæði í þessari hv. deild og þó sjerstaklega í hv. Nd. þóttist jeg reyna að leggja lið, sjerstaklega stúdentum erlendis. Það er mikið harðræði sýnt bæði stúdentum hjer við háskólann, en þó sjerstaklega stúdentum við nám erlendis. Þeir hafa farið hjeðan til annara landa beinlínis upp á loforð um styrk. (SE: Alveg rjett). Má nærri því segja, að hjer sje um hreint og beint gabb að ræða. Ef til vill er ekki hægt að segja svo mikið gagnvart stúdentum hjer, en það verð jeg að segja, og leggja sjerstaka áherslu á, að þingið hefir að minni hyggju ekki fyllilega gætt sóma síns að því er stúdenta erlendis snertir. Sama gildir hvað snertir dr. Alexander. Jeg talaði ekki mikið um það atriði hjer í hv. deild, af því að mjer var kunnugt um, að hún hefði eiginlega óskað þess, að fjárveitingin stæði, og var það af hreinum misskilningi, að hún komst ekki inn hjer. Það hefði þó að líkindum ekki haft neitt að þýða, vegna hv. Nd., en það var í raun og veru skylda hv. Ed. að gera hreint fyrir sínum dyrum. Jeg kveð það harðara að orði en hv. 1. landsk. (SE), að maður þessi er gabbaður á þann hátt, sem jeg veit ekki dæmi til.
Hjeðan af verður ekkert gert til að bæta úr þessu með fjárlögum. Jeg skal láta þess getið, sem og hv. frsm. fjvn. mintist á, að tímakenslufjeð, sem veitt er til mentaskólans, var lækkað í hv. Nd. um 2 þús. kr. Er það áætlunarupphæð; virðist mjer lækkunin vera of mikil og hætt við, að á þurfi að halda meira en 15 þús. kr., auk heldur meira en 13. Vitanlega verður þó reynt að halda svo sparlega á, sem frekast er unt.