30.04.1924
Efri deild: 58. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í D-deild Alþingistíðinda. (3205)

127. mál, sala sjávarafurða

Forsætisráðherra (JM):

Jeg ætla aðeins að lýsa því yfir, að ráðuneytið hefir ekki borið sig saman um þetta mál. Geri jeg ráð fyrir, að sá ráðherra, sem málið heyrir undir, taki það til athugunar. Um niðurstöðuna get jeg auðvitað ekkert sagt; þetta er vandasamt mál, sem mjer er kunnugt um, að hæstv. fyrv. stjórn hugsaði mikið um.