02.05.1924
Sameinað þing: 4. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í D-deild Alþingistíðinda. (3211)
104. mál, fækkun ráðherra
Forsætisráðherra (JM):
Þessi till. er ekki alveg ný á þingi. Það hefir komið fram áður þáltill. um að fækka ráðherrunum í tvo. Það er rjett, sem hv. flm. (MT) sagði, að á þinginu 1922, er till. kom fram um að ráðh. skyldu aðeins vera tveir, þá var ekki talið, af forseta, að hún kæmi í bág við stjórnarskrána; þó er því ekki neitandi, að 13. og 14. gr. stj.skr. gera ótvírætt ráð fyrir því, að ráðherrarnir sjeu þrír. Hv. flm. (MT) fór ekki alveg rjett með greinargerð stjfrv. þar var sagt, að ráðherrarnir mættu vera færri en þrír um stundarsakir. Ef ráðherra fer úr embætti milli þinga, þá er rjett, að við það standi, þangað til þing kemur saman. Þegar Pjetur heitinn Jónsson dó, fanst mjer í fyrstu rjettast, að skipaður yrði ráðherra í hans stað, en það varð þó úr, að þeir voru aðeins tveir, þangað til þing kom saman. En þegar nýtt ráðuneyti var myndað á þinginu 1922, þá urðu þeir aftur þrír. Hitt dæmið, sem hv. flm. (MT) mintist á, var líka aðeins bráðabirgðaráðstöfun. Jeg skal ekki neita því, að það mætti komast af með tvo ráðherra, en hitt er áreiðanlegt, að samkv. stjskr. eiga þeir að vera þrír. Menn vita, að um það hefir verið deilt, hvort það sje brot á stjórnarskránni, að ráðherrarnir sjeu tveir eða aðeins einn ráðherra. Úrskurður hæstv. forseta Nd. um það mál, sem hann kvað upp 1922, er mjög glöggur. Hann kvaðst ekki geta leyft slíkri þáltill. að koma fram, þar sem hann áliti, að þó að þetta orki tvímælis, þá telji hann rjett, að vísa ekki tillögunni frá. Jeg fjelst þá á úrskurð forseta. En hitt veit jeg, að ýmsir góðir lögfræðingar telja þetta beint brot á stjórnarskránni. Þegar nú svo er, að það er í samræmi við stjórnarskrána, konungur hefir ákveðið það, og það er og samkv. öðrum lögum, að ráðherrar sjeu þrír, þá sýnist ekki mikið út á það að setja. Lögin ráða þar meira en þáltill. (MT: Hvaða lög?) T. d. fjárlög, þar sem ákveðin eru laun þriggja ráðherra.
Jeg skal taka það þegar fram, að beinn konungsúrskurður hefir ekki verið notaður um tölu ráðherra, en um verkaskiftingu þeirra er öðru máli að gegna.
Till. sú, er hjer liggur fyrir getur ekki átt við núverandi stjórn heldur að næsta ráðuneyti skuli skipað tveim ráðherrum. Þessvegna á ræða hv. flm. (MT) ekki við þessa stjórn, sem nú fer með völdin. Jeg tel það algerlega rangt að binda til frambúðar, með konungsúrskurði, tölu ráðherra, því það væri hægt, er ný stjórn kæmi, að fella þann úrskurð úr gildi. Meðan þingið veitir þrem ráðherrum laun, þá er ekki hægt að segja, að þeir skuli ekki vera þrír. Þegar talað er um sparnað í þessu sambandi, þá er það auðvitað, að dálítið sparast við fækkunina, en þó vil jeg minna á það, að eins og á stendur nú, þá eyðast ekki nema tvenn ráðherralaun, því eftirlaun mín nema alt að ráðherralaunum, auk þess falla burt eftirlaun atvinnumálaráðherra. Ef jeg færi úr ráðuneytinu, mundi sparast aðeins nokkuð á annað þús. kr. Hitt sem hv. flm. (MT) talaði um, sem sje það, hver ráðherrann hann vildi að færi, þá skal jeg taka það fram, að jeg bjóst ekki við slíku frá honum. Geri jeg ráð fyrir, að hann sje stuðningsmaður stjórnarinnar, því annars væri hann ekki að því, að setja slíkar reglur um þetta. Hv. flm. sagði, að út liti fyrir, að í núverandi stjórn væri meiri liðljettingar en fyrverandi stjórn, en hann mótmælti því sjálfur með orðum sínum um hæstv. fjrh. (JÞ), er hann talaði um vinnudugnað hans, borið saman við dugnað hæstv. atvrh. (MG). En jeg skal taka það fram, enda þótt jeg viti, að öllum hv. þm. er það kunnugt, að hæstv. atvrh. (MG) er vinnumaður með afbrigðum. Og um traust Íhaldsflokksins á honum þarf hv. flm. (MT) ekki að efast.
Hv. þm. (MT) neitaði því, að till. sín væri árás á stjórnina. Jeg veit þá ekki hvað er árás, ef ekki það, að fara fram á það, að einn ráðherranna sje settur af.
Annars var alt tal hv. þm. nánar um þetta mál mjög óviðeigandi. Jeg skil ekki, hvað hv. þm. (MT) á við, þegar hann talar um það, hvað eftir annað, að fjrh. gripi inn í verkahring atvrh. Jeg get ímyndað mjer, að fjrh. komist ekki hjá því, þegar talað er um fjármál, að tala um framkvæmdir hinna ráðherranna. Hv. þm. neitar því, að till. sje árás á stjórnina, látum svo vera, en ekki get jeg neitað því, að mjer finnist hann hafa ráðist nokkuð að einum þeirra.
Hv. þm. (MT) segir, að það sje ekki tilætlunin, að þetta verði til frambúðar, því að undir eins og batni í ári, þá eigi ráðherrarnir aftur að verða þrír. Jeg geri ráð fyrir, að hv. þm. mundi telja batnað í ári, ef spurningin væri um það, að hann ætti að verða ráðherra. Annars er mál þetta, eins og nú stendur á, ómerkilegt og getur ekki haft neina þýðingu. Það er búið að ákveða, að þessi stjórn skuli skipuð þrem ráðherrum, og því verður ekki haggað. Og það er alveg ástæðulaust að vera að ákveða nokkuð um framtíðina í þessu efni, enda tæplega mögulegt, eins og jeg hefi áður sagt.