05.05.1924
Sameinað þing: 5. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í D-deild Alþingistíðinda. (3221)

104. mál, fækkun ráðherra

Jakob Möller:

Jeg hefi verið því fylgjandi áður, að komast mætti af með 1 ráðherra, og hefi litið svo á, að heppilegra væri að hafa einn ráðherra en tvo. Þegar á þinginu 1922 kom fram tillaga um að hafa ráðherrana tvo, kom jeg með brtt. um að hafa aðeins einn ráðherra, en það var ekki talið geta samrýmst stjórnarskránni. En jeg verð að líta svo á, að sje það ósamrýmanlegt við stjórnarskrána að hafa einn ráðherra, þá sje það jafnósamrýmanlegt að hafa þá tvo.

Nú hefir stjórn sú, er nú situr, verið skipuð þremur ráðherrum. Hvort það hefir verið gert af því, að þeir, sem stjórnina skipa, telja það nauðsynlegt vegna stjórnarskrárinnar, er mjer ekki fyllilega ljóst, en held þó frekar, að svo muni ekki vera, því að jeg man ekki betur en tveir núverandi ráðherrar greiddu á þinginu 1922 atkvæði með því, að ráðherrar skyldu aðeins vera tveir, en einn þeirra mælti því ekki á móti.

Þar sem forsvaranlegt er starfanna vegna að hafa aðeins einn ráðherra, verður því ekki móti mælt, að þá mun þó fyllilega nóg að hafa þá tvo, þar sem alt þarf að spara, því að líta ber á málið frá þeirri hlið líka, þar sem flm. (MT) hefir eindregið lýst því yfir, að tillaga þessi væri einungis borin fram af sparnaðarástæðum, og þingið hefir á öllum sviðum reynt að sýna sparnað, og meira að segja seilst inn í hæstarjett og fækkað dómendum þar, einungis með sparnaðinn einn fyrir augum. Liggur því í augum uppi, að það er í fullu samræmi við dómarafækkun í hæstarjetti að fækka einnig ráðherrum.

Þá hefir því verið haldið fram, að stjórnin hefði heimild til þess að hafa þrjá ráðherra. Því mótmælir enginn. Og þó að tillagan verði samþykt, þá getur stjórn sú, sem nú er, setið með sína þrjá ráðherra. En hinsvegar mætti gera ráð fyrir, að hún tæki þingviljann til greina og fækkaði ráðherrunum.

Jeg skal ekki neita því, að nokkur ástæða hafi getað verið til þess að líta svo á, að tillaga þessi væri árás á stjórnina. En þar sem hv. flm. (MT) hefir marglýst því yfir, að svo væri ekki, er ekki ástæða til að halda því fram. Jeg legg alls ekki mikið upp úr því, fyrir hag ríkissjóðs, þótt við samþykt till. þessarar spöruðust 10–12 þús. kr., sem vafasamt mun þó vera, eftir því sem bent hefir verið á. En eins og hv. flm. (MT) benti á, þá yrðu það vonbrigði fyrir þjóðina, að ráðherrunum yrði ekki fækkað, því að eins og hann tók fram, þá mun það vera sterkur þjóðarvilji.

Það hafa vitanlega aðrir hv. þm. talað meira um þennan þjóðarvilja eða þjóðarkröfu en jeg. Ef það er rjett, að þjóðin hafi hrópað svo mjög um þetta, að jafnvel hafi verið óhjákvæmilegt að samþykkja fækkun dómenda í hæstarjetti, af þeirri ástæðu, þá skil jeg ekki, hvernig hv. þm. ætla að komast undan því að greiða atkvæði með tillögu þessari. Og hafi það verið krafa þjóðarinnar að fækka dómendum í hæstarjetti, þá er jeg sannfærður um, að það er ekki síður krafa þjóðarinnar að fækka ráðherrum. Eftir því sem tillaga þessi hefir verið borin fram, ber ekki að líta á fækkun þessa sem framtíðarskipulag, heldur sem bráðabirgðaráðstöfun. Og þó að jeg telji ekki gott að hafa tvo ráðherra, þá mun jeg samt greiða atkvæði með tillögu þessari, og jeg teldi það ekki vansalaust af þinginu, þegar það er búið að samþykkja fækkun á dómendum hæstarjettar, að fara að leggjast á móti þessari sparnaðarráðstöfun, sem að öllu leyti er miklu sjálfsagðari, og jeg get ekki skilið, að nokkur hv. þm. láti flokksbönd eða flokksfylgi binda sig svo mjög, að þeir fyrir það vinni til að gera þinginu slíka hneisu. Af þessum ástæðum sje jeg mjer ekki fært að greiða atkvæði móti tillögunni. (BL: En langar þó til þess!) Já, að því leyti sem jeg tel óheppilegt að hafa tvo ráðherra. En hjer liggur engin tillaga fyrir um að hafa hann aðeins einn, sem jeg myndi fúslega fylgja, ef fyrir lægi, því að það væri skipulagsbreyting, sem jeg teldi til bóta. En þessa skipulagsbreytingu tel jeg aðeins til sparnaðar.

Af því að jeg lít á þetta mál nokkuð öðruvísi en flestir aðrir hv. þm., taldi jeg rjett að gera þessar athugasemdir.