05.05.1924
Sameinað þing: 5. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í D-deild Alþingistíðinda. (3228)

104. mál, fækkun ráðherra

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg vil aðeins, út af orðum hv. 1. þm. Ám. (MT), um afstöðu hæstv. atvrh. (MG) til Flóaáveitunnar, víkja nokkuð að því máli.

Jeg var að nokkru leyti milligöngumaður fyrir stjórn Flóaáveitufjelagsins, þegar úrslit málsins voru á prjónunum, og mjer var því fullkunnugt um það, að í því þriggja manna ráðuneyti, sem þá sat að völdum, var það þáverandi fjrh, sem nú er atvrh., sem veitti því fyrirtæki þann afgerandi stuðning. Það er, enn sem komið er, ekki hægt að dæma neitt um það, hvort sú stjórnarráðstöfun fær lof sögunnar, en hvað sem því líður, þá var það atvrh. (MG), sem átti mestan þátt í henni.

Jeg vil líka leiðrjetta það, sem hv. þm. sagði um fjárhag ríkissjóðs, þegar sá fjrh.(MG) ljet af stjórn snemma á árinu 1922. Landsreikningurinn fyrir 1921 sýnir, að það er alls ekki rjett, sem hv. þm. hjelt fram. Þá um áramótin var í ríkissjóði 2463786.54 kr., en um næstu áramót þar á eftir var sú upphæð komin niður í 1200000 kr., og það er mjög vel skiljanlegt, þó hægt væri að eyða þeirri upphæð á árinu 1922, þar sem tekjuhallinn í reyndinni var 2,6 milj. kr. á því ári.