05.05.1924
Sameinað þing: 5. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í D-deild Alþingistíðinda. (3232)

104. mál, fækkun ráðherra

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg hefi ekkert tilefni gefið til þessa samanburðar, sem hv. 1. landsk. (SE) kemur með. Jeg var aðeins að mótmæla hv. 1. þm. Árn. (MT), að fjeð hafi verið til, en hefi ekki neitað því, að ríkissjóður hafi átt í sjóði, og það var það, sem hv. 1. landsk. (SE) var að sanna.