05.05.1924
Sameinað þing: 5. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 420 í D-deild Alþingistíðinda. (3243)

137. mál, íslenskt happdrætti

Flm. (Magnús Jónsson):

Jeg býst við, að jeg megi lýsa yfir því, fyrir hönd okkar allra flm. þessarar till., að við höldum henni fram, og væntum þess, að hún verði samþykt. Í okkar augum er síðari partur till., um að ágóðinn skuli renna til landsspítalans, alveg eins mikið aðalatriði eins og fyrri parturinn. En auðvitað bindur þetta ekki lengra en það nær hendur stjórnarinnar. Það eru aðeins svo og svo margir hv. þm., sem láta í ljós sinn vilja í þessu máli við stjórnina. Vil jeg því fastlega vænta, að till. verði samþykt eins og hún liggur fyrir, þótt jeg á hinn bóginn leggi ekki neinn fjandskap við málið inn í þá till., að vísa málinu til hæstv. stjórnar.